Kominn

Skrifað 20. maí 2004, kl. 20:05

Er kominn heim, er að dunda mér við að lesa spamið mitt (rösklega fjögur þúsund ruslbréf á 18 dögum), og koma mér aftur í netgír og vinnustuð.

Getur einhver reddað mér miðum á Metallica? Er til í að gera alls kyns ósiðlega hluti fyrir greiðann, en harðneita að borga eitthvað helv. svartamarkaðsverð.

Djöfull var gott að eiga 18 daga frí með Stínu og Garpi í úgglöndum, og vera 90% net- og tölvupóstlaus á meðan. (Ég skoðaði tvisvar tölvupóst fyrstu dagana, og kíkti á nokkur blogg í gærkvöldi.)

Annars skilst mér að Dabbi Kóngur hafi haldið uppi fjörinu á klakanum á meðan ég var í burtu.


Svör frá lesendum (9)

  1. Einar Örn svarar:

    Neibbs, ég kannast ekki við að Davíð hafi verið í fréttunum. Allavegana hef ég ekki tekið eftir neinu.

    Annars, velkominn aftur.

    20. maí 2004 kl. 22:28 GMT | #

  2. Bragi svarar:

    Velkominn heim Már minn. Vona að dvölin hafi gert þig að betri manni. Síðan er bara spurning hvort þú sért maður í smá svaðilför seinna í sumar?

    21. maí 2004 kl. 10:03 GMT | #

  3. Már svarar:

    Bragi, það var einmitt það fyrsta sem ég hugsaði þegar ég horfði út um gluggann á flugrútunni í gær, var hvað mig langaði geðveikt í einhverja svaðilför bráðum -- helst fyrr en seinna.

    21. maí 2004 kl. 10:14 GMT | #

  4. Jósi svarar:

    Annars er það títt í netfréttum á meðan þú varst farinn að Movable Type er ekki lengur frítt. Ég ætla að skrifa grein um málið einhverntímann en á meðan getur þú lesið þetta: http://diveintomark.org/archives/2004/05/14/freedom-0

    21. maí 2004 kl. 15:24 GMT | #

  5. Már svarar:

    Já, ég er búinn að lesa megnið af umræðunni um verðlagninguna á MT. Sér í lagi hafði ég lesið greinina hans Pilgrims og var sammála megninu af henni - þó það fari í taugarnar á mér hvernig hann ýkir 700 dollara verðtöluna (hann segist hafa verið að not "personal" útgáfuna sem var ókeypis, en miðar þá 0 dollara við 700 dollarana sem full "commercial" útgáfa kostar í dag. "commercial" útgáfan kostaði áður 150 dollara.)

    Hasarinn í kringum leyfismálin og verðlagninguna og það hvernig Six Apart eru smátt og smátt að gera breytingar á hvoru tveggja eftir því sem fólk skammast í þeim sýnir berlega tvennt: annars vegar að þau eru fattlausir klaufar að senda frá sér svona vanhugsað leyfi og verðskrá, og hins vegar að Six Apart er tilbúið að hlusta á kröfur og hugmyndir viðskiptavina sinna og bregðast við gagnrýni með breytingum.

    Annars fannst mér Kottke segja skynsamlega hluti

    21. maí 2004 kl. 15:46 GMT | #

  6. Einar Örn svarar:

    Ég var einmitt búinn að bíða eftir einhverjum MT pælingum í íslenska bloggheiminum. Hef ekki nennt að skrifa um þetta sjálfur. Ég skil margt í þessu hjá þeim Trott hjónum, en þetta var líka hálfgert klúður.

    Auðvitað er það rétt að fyrirtæki borgi almennilega fyrir MT. Til dæmis eru síður einsog fyrir Kerry og Bush að nota MT og borga sennilega bara 100 dollara fyrir, sem er grín.

    Ég nota MT talsvert, til dæmis á www.egils.is, sem og á mínum prívat síðum. Hjá Ölgerðinni er þetta á staff vef líka og þar eru um 90 notendur allt í allt.

    Mér fannst þó gott hjá Menu að fá fram ummæli um hvernig fólk er að nota þetta. Til dæmis er mín prívat síða í raun 4 blogg, sem myndi þýða að ég ætti að borga peninga, sem mér fyndist ósanngjarnt ef ég væri bara með prívat bloggið.

    En hins vegar er MT svo öflugt sem uppfærslukerfi fyrir fyrirtækjavefi að það er bara eðlilegt að þau rukki almennilega fyrir það. Ég hef fengið notagildi útúr MT á borð við forrit, sem kosta 50falt meira en MT.

    21. maí 2004 kl. 17:40 GMT | #

  7. Matti Á. svarar:

    "Til dæmis er mín prívat síða í raun 4 blogg, sem myndi þýða að ég ætti að borga peninga, sem mér fyndist ósanngjarnt ef ég væri bara með prívat bloggið."

    Eins og fram kemur hjá Choate er þetta ekki rétt túlkun.

    The restriction goes more to the number of web sites produced by the software, not the number of actual weblogs. Mena has more to say about this.

    This means that if you are 1 author and you use 11 different weblogs to power your 1 web site, or even 300 weblogs to power your 3 web sites, you can use the free version. It doesn’t cost you $600. It doesn’t cost $1.

    Semsagt, þú þarft ekki að borga fyrir þína prívat síðu.

    21. maí 2004 kl. 20:22 GMT | #

  8. Már svarar:

    Það að Movable Type (eða Six Apart) skilgreini hugtakið "weblog" með svona ólíkum hætti í forritinu annars vegar og í notkunarskilmálunum fyrir forritið hins vegar, undirstrikar náttúrulega enn betur hversu vanhugsuð þessi aðgerð þeirra var.

    Phil Ringnalda og fleiri gagnrýna notkunarskilmálanna, og Ben og Mena svara alveg merkilega oft með því að segja: "Já svona stendur þetta í skilmálunum, en í alvörunni þá meinum við eitthvað allt annað." ... sem er að mínu mati alveg óttalega kjánalegt. :-)

    21. maí 2004 kl. 23:32 GMT | #

  9. Tóti svarar:

    Þetta er nú bara aðallega klaufalega gert hjá þeim. Ég dekkaði þetta aðeins á og held að þetta sé togstreita á milli TypePad hliðarinnar og MT hliðarinnar í SixApart. Þau ofmátu hvað fólk var til í að borga fyrir TypePad (eða svona hluti yfirleitt) og halda síðan að ástæðan fyrir slöku gengi TypePad sé að MT sé ofnotað og frítt.

    Svo er það náttúrulega málið að yfirgnæfandi meirihluti MT notenda sem heyrist eitthvað í eru síðan lið sem myndi aldrei borga uppsett verð fyrir svona, en er til í að donate-a eitthvað ef þeir eru ekki skikkaðir til þess. Svona lið eins og þið ;-)

    Það er síðan erfitt að koma þeim tekjum fyrir í Excel skjali fjárfesta.

    22. maí 2004 kl. 13:03 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)