Færslur Þriðjudaginn 27. apríl 2004

Kl. 09:16: Aðrar leiðir í fréttamiðlun fyrir Norðurljós og Frétt hf. 

Ef fjölmiðlafrumvarp Davíðs á bara að ná til reksturs dagblaða en ekki tímarita eða fréttavefmiðla (sbr. færslu gærdagsins), þá legg ég til að Norðurljós/Frétt hf. geri eftirfarandi:

  • Leggi niður Fréttablaðið og stofni í staðinn öflugan og nútímalegan fréttavef (í samkeppni við Mbl.is)

  • Setji á stofn sjö tímarit: Mánudagsblaðið, Þriðjudagsblaðið, Miðvikudagsblaðið, Fimmtudagsblaðið, Föstudagsblaðið, Laugardagsblaðið og ... viti menn ... Sunnudagsblaðið.

  • Leitist við að ná hagræðingu með því að hafa bókhald, launamál og aðra yfirbygingu á einni hendi, ráði einn framkvæmdastjóra yfir tímaritadeildina, og sjö ritstjóra - einn fyrir hvert tímarit.

  • Fréttastofa fréttavefsvæðisins (Vef-fréttarinnar hf.) semji svo um reglulega endurbirtingu frétta og greina við hina og þessa prentmiðla - t.d. Mánudagsblaðið, Þriðjudagsblaðið, Miðvikudagsblaðið, Fimmtudagsblaðið, Föstudagsblaðið, Laugardagsblaðið og ... viti menn ... Sunnudagsblaðið.

  • Sviðað háttalag mætti hafa á sölu (og endursölu) auglýsinga, og rekstri sjálfstæðs blaðburðarfyrirtækis.

Þetta gæti auðveldlega gengið, og gæti jafnvel skilað betri árángri en núverandi fyrirkomulag - nema fjölmiðlafrumvarp Davíðs banni mönnum að eiga eitt vefsvæði og sjö tímarit...

Svör frá lesendum (14) | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í apríl 2004

apríl 2004
SunMán ÞriMið FimFös Lau
        1. 2. 3.
4. 5. 6. 7. 8. 9. 10.
11. 12. 13. 14. 15. 16. 17.
18. 19. 20. 21. 22. 23. 24.
25. 26. 27. 28. 29. 30.  

Nýleg svör frá lesendum

  • credit loans (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Baltytierry-online (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Mara25Olsen (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Rich (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)