Hvað er fjölmiðill?

Skrifað 26. apríl 2004, kl. 14:15

Ég hef verið að pæla í sambandi við fjölmiðlafrumvarpið hans Davíðs. Nú erum við með samkeppnislög og þau ná til fjölmiðla eins og annara fyrirtækja.

Þarf virkilega sérstök lög til að tryggja heilbrigða samkeppni á fjölmiðlamarkaðnum?

Í því sambandi er kannski eðlilegt að spurja: Hvernig skilgreinum við fjölmiðla?

  • Er Hagkaupsblaðið fjölmiðill? Ef nei, af hverju ekki?
  • Hvað með "Dagskrá vikunnar"?
  • Geta vefsvæði talist til fjölmiðla?
  • Er Femin.is fjölmiðill? En Einkamál.is? En Símakskrá.is? En Sjónvarp.is? En Hagkaup.is?
  • Hvað með "tímaritið" sem Landssíminn gaf út nýverið? og Hugi.is? (Fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu á fjarskiptamarkaði sem á/gefur út afþreygingarblað og vinsælt afþreygingarvefsvæði)
  • Hvað með RUV.is? (sami aðili með ljósvakamiðil og vefsvæði)
  • Hvað með Mbl.is? (sami aðili á öflugt dagblað og vefsvæði)

Mér sýnist þetta vera hafta- og hentistefnu ormagryfja.

(Byggt á kommenti við dagbókarfærslu hjá Bjarna.)


Svör frá lesendum (3)

  1. Sindri svarar:

    Er þessi listi ekki einmitt forsendan fyrir lögunum? Ýmis stórfyrirtæki eru farin að sölsa undir sig "fjórða valdið" í krafti fjármagns. Mér finnst í ljósi frétta frá Bandaríkjunum (sem eru allt öðruvísi heldur en á Íslandi) full ástæða til að sporna við því að Herra Stórríkur geti náð að sölsa undir sig alla fjölmiðla.

    (Sjá þó mitt svar hjá Bjarna, sem einhverjum finnst kannski þvert á þetta svar.)

    26. apríl 2004 kl. 23:06 GMT | #

  2. Már svarar:

    Sindri, þessi listi sýnir einungis hvað það er erfitt að skilgreina "fjölmiðla" og setja höft á hver má "eiga" fjölmiðla.

    Ef frumvarpið á bara að ná til dagblaða (pappírssneplar sem eru gefnir út daglega) og ljósvakamiðla, þá undirstrikar það enn frekar að þetta eru sértækar skammtímaaðgerðir gegn 'óæskilegum' einstaklingum en ekki raunverulega almennar aðgerðir.

    Hreinræktaðir ljósvaka og daglegir pappírsfjölmiðlar eru deyjandi fjölmiðlunarform, og aðrar útgáfuleiðir eru að ná sífellt aukinni fótfestu ("Tímarit" Morgunblaðsins, "Birta" hjá fréttablaðinu, Mbl.is hjá Morgunblaðinu, og RUV.is/frettir/ hjá RÚV. Svo má spurja sig hvort Femin samsteypan sé ekki fjölmiðlafyrirtæki...).

    Ef, hins vegar, frumvarpið á að ná til allra fjölmiðla, þá hlýtur það sér í lagi að ná til (flest)allra þeirra sem ég tel upp í færslunni og þá mun það hafa frámunalega heftandi áhrif á alla upplýsingamiðlun, og útgáfu á Íslandi.

    Hvort heldur sem er þá finnst mér þetta hið bjánalegasta.

    26. apríl 2004 kl. 23:27 GMT | #

  3. Bragi svarar:

    Ég er alveg sammála þér Már að erfitt er að skilgreina fjölmiðlana og meiri vinna hefði átt að fara fram af skýrsluhöfundum og frumvarpströnurum. Þetta mál er allt hið klaufalegasta og sýnir kannski vel hvernig núverandi valdhafar eiga það til að láta skapsveiflur ráða gjörðum sínum. Hins vegar verð ég að segja það að sjálfum finnst mér fréttaflutningur Fréttablaðsins og DV í dag sýna fram á þörfina fyrir einhverjar reglur um eignarhald fjölmiðla. Þar ganga þeir örna eiganda sinni ef ´það má orða það þannig. Ákaflega óviðkunnanlegur málflutningur þar á ferðinni, sérstaklega hjá DV. Einhver takmörk verða að vera á eignarhlut, núverandi eign Baugs á Norðurljósum held ég að hafi skekkt markaðinn. Ekki er ég samt viss um að slíkt eigi að vera svona einbeitt árás á eitt fyrirtæki á meðan þessi lög snerta í raun engan annan á markaði.

    27. apríl 2004 kl. 00:08 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)