Svæðanudd / Fótanudd
Stína hefur undanfarið fundið fyrir helaumum, bólgnum bletti á vinstri fæti, rétt aftan (neðan?) við táberg þriðju og fjórðu táar. Hún var dáldið slæm um páskana, og svo aftur núna síðustu daga.
Mér fannst þetta áhugavert, en áhugi mömmu minnar á svæðanuddi hefur fyrir löngu kennt mér að svona aum svæði á fótunum eru oft í tengslum við önnur líkamleg vandamál. Ég ákvað því að leita á netinu að kortum yfir taugasvæðin á fótunum, til að sjá hvað þetta gæti verið.
Eftir smá eftirgrennslan í Google komst ég að því að 'svæðanudd' heitir 'reflexology' á ensku. Hér eru helstu myndirnar sem ég fann af nuddsvæðunum undir fótunum: Interactive Foot Chart, 1, 2, 3, 4, 5, 6, 7.
Myndirnar sýna flest allar sömu merkingarnar, en þó finnur maður einstaka frávik, og það er greinilegt að þær eru misnákvæmar og sumar hverja aðallega bara sætar á dálítið naívan hátt.
Í leiðinni fann ég nokkur kort yfir nuddsvæðin í höndunum, en þau eru um margt sambærileg svæðunum á fótunum: 8, 9.
Svæðanudd á margt skylt með nálastungum, t.d. að eiga rætur að rekja til austurlanda fjær, og að vera af þeim sökum litið hornauga á vesturlöndum. Þegar maður skoðar þær síður sem fjalla um svæðanudd á netinu, þá sést greinilega að það er mikið stundað af sama fólki og stundar 'reiki' og kristallalækningar, og svoleiðis dót, þannig að maður hefur strax tilhneygingu til að setja svæðanuddið í sama flokk og nýaldar...kuklið (sorrí dettur ekkert betra orð í hug).
Ég hef hins vegar á tilfinningunni að það sé ekki sanngjörn flokkun.
Það þarf ekki annað en einfaldar tilraunir á eigin fótum (og höndum), í dáldinn tíma, til að sannfærast um að það eru oft tengsl milli aumra bletta á höndum og fótum, og krankleika annarsstaðar í kroppnum. Hins vegar má eflaust deila um hvort það að nudda þessa aumu bletti hafi í einhver læknandi áhrif á viðkomandi krankleika.
Mig grunar að einhverjar gáfulegar rannsóknir hafi verið gerðar á svæðanuddi en mér gefst ekki tími núna til að leita að þeim, né heldur að vitsmunalegri umræðu um mögulegan lækningamátt svæðanudds. Ég vona að þessi dagbókarfærsla hjálpi mér að muna eftir að gera það við tækifæri.
Þangað til ætla ég að nudda auma blettinn undir fætinum á Stínu í von um að það hafi einhver jákvæð áhrif, og reyna að finna svar við því hvað gæti valdið þessum heljar eymslum.
P.S. Miðað við fótamyndirnar sem ég er búinn að skoða, þá gæti aumi bletturinn á Stínu haft eitthvað að gera með hjartað... eða lungun... eða þindina... Hmmm... :-)
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum