Voriđ er ađ koma
Stína sá hunangsflugu í fyrradag - heilum 3 dögum fyrir sumardaginn fyrsta! Bjartsýnisfluga!
Og fuglarnir eru farnir ađ syngja í garđinum okkar á morgnana.
Ég vaknađi um sexleytiđ í morgun og sat í borđstofunni ađ vinna á tölvuna og heyrđi í ţeim inn um gluggann. Ţađ var vođa vorlegt og vakti upp minningar úr suđurherberginu á Árósi ţegar ég var lítill.
Svo fíla ég rosalega vel ađ fara í sturtubađ snemma á morgnana, ţví ţá skín morgunsólin inn um gluggann á bađherbergisskápinn og birtan er svo notaleg. Mađur vaknar vođa vel viđ ţađ.
Og svo vekur morgunsólin Garp alltaf međ ţví ađ skína á hann inn um ţríhyrnda gluggann í svefnherberginu undir súđinni. Hitar hann upp ţar sem hann liggur međ sćngina sína kuđlađa undir sér.
Ég veit ađ viđ ćttum ađ hengja upp gluggatjöld eđa setja teppi yfir rimlana í rúminu hans, en ţetta er bara eitthvađ svo sćtt ađ ég fć mig ekki til ţess.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (3)
Óli Jens svarar:
Vorid er víst alltaf ad koma fyrr og fyrr hérna í Danmörku líka. TV2 vedurfréttakallinn var ad segja í gćr ad blóm og tré vćru komin í blóma nćstum hálfum mánudi fyrr en fyrir 10 árum sídan (minnir ad thetta séu réttar tölur).
En semsagt, vorid er komid líka hérna í Danmörku, fyrsta grillid var sídasta laugardag (danirnir voru steinhissa á okkur íslendingunum ad grilla svona snemma, kassamadurinn á bensínstödinni thar sem ég keypti kolin missti nćstum andlitid), fótboltabullurnar komnar í gardana ad sparka bolta á milli sín, árekstrar í hjólaumferdinni aukast um 100% etc etc ... ahh , yndislegt líf :-)
21. apríl 2004 kl. 18:10 GMT | #
Qi svarar:
vá já.... heggurinn og kirsuberjatrén eru blómstrandi í Amaliehave og ég fór í siglingu frá Nyhavn í dag. Sól, heiđskýrt og 17°C. Ákvađ ađ taka túristann alla leiđ í tilefni veđursins og.... sólbrann á skallanum. Ţađ er gott ađ vera í .dk.
21. apríl 2004 kl. 19:20 GMT | #
Haukur svarar:
Ţađ er nú rúm vika síđan ég fékk heimsókn .... hunangsflugudrottning ákvađ ađ koma inn í stofuna hjá mér, hún var eins og borđtenniskúla ađ stćrđ :S
Voriđ er komiđ - sumariđ er sko ađ koma, ójá.
21. apríl 2004 kl. 20:34 GMT | #