Vefforritari vill kynnast HTML og CSS gúrú með langtímasamband í huga

Skrifað 19. apríl 2004, kl. 13:57

Við hjá Hugsmiðjunni/Eplica erum að leita að klárum vefforritara með góða þekkingu á XHTML, CSS og vefstöðlum almennt.*

Verður að hafa notað Valideitorinn (og fílað það!), og má gjarnan þekkja örlítið til miðlunar gagna á XML formi (t.d. RSS).

Almenn forritunarkunnátta er einnig mjög vel séð.

Hvað er málið?

Mig vantar einhvern við hliðina á mér í að forrita kórrétt, aðgengisvænt, töflulaust HTML og CSS útlit á alls kyns vefsvæði fyrir stóra og virðulega viðskiptavini (í blandi við litla og spennandi viðskiptavini :-). Þetta er krefjandi vinna sem kallar á útsjónarsemi og skapandi hugsun (og slatta af smámunasemi). Viðkomandi mundi að sjálfsögðu gera fleira en bara HTML og CSS forritun, en það yrði þó kjarninn í starfinu.

Við hjá Hugsmiðjunni höfum farið langfremstir á Íslandi undanfarna 18 mánuði í þróun nútímalegra vinnuaðferða við smíði og viðhald vefsvæða, m.a. hvað varðar endurnýtanleika í kóða, aðgengi fatlaðra, beitingu CSS og töflulauss HTMLs, o.fl. Að mörgu leyti erum við að gera hluti sem eiga engan sinn líka í heiminum í dag.

Engu að síður sjáum við enn fjölmörg sóknarfæri til að bæta vinnuaðferðirnar okkar og auka gæði þess sem við sendum frá okkur. Við erum hvergi nærri hættir að hreyfast, og til að ná hámarks fart langar okkur að ráða s.s. 1 stk. metnaðarfullt HTML/CSS gúrú við hliðina á mér.

Við erum lítill og samhentur hópur (8 manns) með mikinn metnað fyrir því sem við erum að gera (mest spennandi vinnustaður sem ég hef unnið á a.m.k.).

Er einhver til í tuskið? Er einhver sem þú þekkir sem gæti haft áhuga?

Sendu Hugsmiðjunni skeyti eða hafðu sambandi við mig persónulega. (Sjá netfang neðst á þessari síðu.)

*) Mig langaði til að bæta því við vildum sér í lagi gjarnan fá kvenkyns forritara, en vinnufélögum mínum fannst það óviðeigandi. :-)


Svör frá lesendum (3)

  1. Salvör svarar:

    Hæ. er ekkert að leita mér að vinnu en er svo ánægð með mig eftir að hafa uppfært femínistavefinn í svona töflulaust dæmi og með stílskjali. Ég ætla næsta misseri að láta nemendur mína alla reyna að vinna svoleiðis. Ég gerði þetta reyndar í frontpage 2003 sem er náttúrulega ekki sérlega fín græja en þessi útgáfa er alla vega búin að kveðja þetta themes mikrosoft dæmi.

    Hér er afraksturinn: http://www.feministinn.is/index.htm

    27. apríl 2004 kl. 00:03 GMT | #

  2. Guðmundur svarar:

    Sælir Ég hef taggað töflufríar vefsíður núna hátt á annað ár. Ég er vel að mér í CSS og HTML þar sem ég starfa sem freelance PHP forritari. Ég get beitt fyrir mig flestum aðferðum við útlitshönnun vefja og hef ágætt auga fyrir grafík.

    2. maí 2004 kl. 18:41 GMT | #

  3. Már svarar:

    Takk fyrir svörin (hér og í tölvupósti).

    20. maí 2004 kl. 18:50 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)