Vefforritari vill kynnast HTML og CSS gúrú með langtímasamband í huga
Við hjá Hugsmiðjunni/Eplica erum að leita að klárum vefforritara með góða þekkingu á XHTML, CSS og vefstöðlum almennt.*
Verður að hafa notað Valideitorinn (og fílað það!), og má gjarnan þekkja örlítið til miðlunar gagna á XML formi (t.d. RSS).
Almenn forritunarkunnátta er einnig mjög vel séð.
Hvað er málið?
Mig vantar einhvern við hliðina á mér í að forrita kórrétt, aðgengisvænt, töflulaust HTML og CSS útlit á alls kyns vefsvæði fyrir stóra og virðulega viðskiptavini (í blandi við litla og spennandi viðskiptavini :-). Þetta er krefjandi vinna sem kallar á útsjónarsemi og skapandi hugsun (og slatta af smámunasemi). Viðkomandi mundi að sjálfsögðu gera fleira en bara HTML og CSS forritun, en það yrði þó kjarninn í starfinu.
Við hjá Hugsmiðjunni höfum farið langfremstir á Íslandi undanfarna 18 mánuði í þróun nútímalegra vinnuaðferða við smíði og viðhald vefsvæða, m.a. hvað varðar endurnýtanleika í kóða, aðgengi fatlaðra, beitingu CSS og töflulauss HTMLs, o.fl. Að mörgu leyti erum við að gera hluti sem eiga engan sinn líka í heiminum í dag.
Engu að síður sjáum við enn fjölmörg sóknarfæri til að bæta vinnuaðferðirnar okkar og auka gæði þess sem við sendum frá okkur. Við erum hvergi nærri hættir að hreyfast, og til að ná hámarks fart langar okkur að ráða s.s. 1 stk. metnaðarfullt HTML/CSS gúrú við hliðina á mér.
Við erum lítill og samhentur hópur (8 manns) með mikinn metnað fyrir því sem við erum að gera (mest spennandi vinnustaður sem ég hef unnið á a.m.k.).
Er einhver til í tuskið? Er einhver sem þú þekkir sem gæti haft áhuga?
Sendu Hugsmiðjunni skeyti eða hafðu sambandi við mig persónulega. (Sjá netfang neðst á þessari síðu.)
*) Mig langaði til að bæta því við vildum sér í lagi gjarnan fá kvenkyns forritara, en vinnufélögum mínum fannst það óviðeigandi. :-)
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum