Útlendingaæsingur

Skrifað 16. apríl 2004, kl. 09:27

Frumvarp Dómsmálaráðherra um breytingar á útlendingarlögum hefur vakið sterk viðbrögð. Settir hafa verið upp undirskriftalisti gegn frumvarpinu og annar til stuðnings því.

Ég setti mitt nafn á mótmælalistann og hvet aðra til að gera það sama.

Mér finnst þetta frumvarp samt alls ekki alslæmt, og eins og Friðjón R. Friðjónsson bendir á í grein á Frelsi.is, þá er sumt af því sem andstæðingar frumvarpsins mótmæla atriði sem hafa verið í gildi í útlendingalögunum í mörg ár. Engu að síður tel ég, þótt frumvarpið bæti á köflum litlu við núgildandi lög, að mótmælin sýni einmitt að ýmislegt í þeim lögum og þessum breytingatillögum dómsmálaráðherra, einflaldlega stríðir gegn siðferðiskennd stórs hluta þjóðarinnar.

Þó svo að stjórnarskráin og almenn lög í landinu fjalli fyrst og fremst um íslenska ríkisborgara, og strangt til tekið þurfum við ekki að láta sambærilegar leikreglur gilda um útlendinga/innflytjendur, þá finnst fólki að sumt eigi einfaldlega að gilda jafnt um alla, sama hvaðan þeir koma og hvers vegna. T.d. virðingin fyrir hjónabandi fólks, jafnvel þótt annað þeirra sé útlendingur yngri en 24 ára (gisp!). Þetta og margt annað í frumvarpinu finnst fólki fáránlegt og óréttlátt.

Mótmælin sýna einfaldlega að bæði frumvarpið og gildandi lög um útlendinga eru á vissan hátt úr takti við réttlætiskennd íslendinga, og ég efast ekki um að margir þeirra sem skrifa undir mótmælin vilja gjarnan sjá meiri og opnari umræðu og miklu róttækari tillögur (og betur ígrundaðar) um úrbætur í málefnum útlendinga á Íslandi.

Frumvarpið og viðbrögðin við því bera að vissu leyti vitni pólitískum þankagangi dómsmálaráðherra, sem virðist ekki alltaf vera í takti við skoðanir kjósenda og almennings. Þó hef ég samt örlítið á tilfinningunni að lætin sem orðið hafa yfir þessu útlendingalagafrumvarpi, séu að einhverjum hluta sprottin úr röðum pólitískra andstæðinga hans sem vilja gera sér mat úr lélegu frumvarpi til að afla honum óvinsælda. Gæti það verið?

Samt, það eitt að Félag "framfarasinna" skuli "fagna frumvarpinu", hlýtur að segja segja sína sögu, og eins og áður sagði þá skrifaði ég undir mótmælin gegn frumvarpinu.

Engu að síður fagna ég þeirri umræðu sem skapast hefur um þessi mál vegna frumvarpsins, og vona að á því verði gerðar róttækar breytingar til gagns.


Svör frá lesendum (7)

  1. svansson.net svarar:

    Hátíðlegur í dag - þetta er ekki ósvipaður tónn og maður sér stundum í leiðurum Morgunblaðsins;)

    16. apríl 2004 kl. 10:00 GMT | #

  2. Már svarar:

    Ég nennti ekki að tækla þetta á þessum "skrifið undir mótmælalistann því annars deyja þúsund lítil börn og sætar kanínur kvalafullum dauðdaga!!!!!" nótum sem mér finnst svoldið einkenna þetta mál.

    Þú mátt alveg eiga þína stríðni með það að ég skrifi eins og Morgunblaðið. Ég les aldrei Morgunblaðið, og enn síður leiðarann í því, og hef því ekki minnstu hugmynd um hvað þú ert að tala. :-)

    16. apríl 2004 kl. 10:15 GMT | #

  3. Gulli svarar:

    Ég held að það sé ekki tímabært að fullyrða að Íslendingar séu almennt á móti þessu frumvarpi þó svo að 80% færri undirskriftir seú komnar hjá fylgjendum. Á netinu hefur söfnunin á Deiglunni fengið mun meiri auglýsingu (og verið lengur í gangi). Það kæmi mér þó kannski ekki á óvart að góður meirihluti segði sig vera á móti frumvarpinu, en ekkert er hægt að fullyrða um það þó að 2500 undirskriftir hafi fengist nú. Ég vildi fá vísindalega könnun á þessu, en ekki innantómar fullyrðingar (sem hafa einkennt þessa umræðu).

    Svo verð ég að nefna það að mér finnst að innflytjendur/útlendingar ættu ekki endilega að hafa sama rétt og innfæddir. Ég held að þín fullyrðing um að gagnstæð skoðun sé almenn standist ekki.

    16. apríl 2004 kl. 13:21 GMT | #

  4. Már svarar:

    Gulli, ég hélt að það væri augljóst að ég er aðallega að tala um fólkið sem hefur skrifað undir mótmælin og er á móti lögunum/frumvarpinu. Það er þá a.m.k. á hreinu núna.

    Á einum stað tala ég um "siðferðiskennd stórs hluta þjóðarinnar" en tek um leið fram að þar "tel ég" svo vera. Sömuleiðis fullyrði ég á einum stað að pólitískar skoðanir hæstvirts dómsmálaráðherra séu oft úr takti við skoðanir meirihluta þjóðarinnar. Ég þori að hengja mig upp á þetta atriði. (Eflaust má segja það sama um mig í ýmsum málum og fjölmarga aðra. :-)

    P.S.: Mér þykir voða leitt hve fáir hafa skrifað undir stuðningsyfirlýsinguna við frumvarpið, þrátt fyrir að sá listi samþykki margskráningar gervimenna. :-)

    16. apríl 2004 kl. 14:03 GMT | #

  5. Ragnar svarar:

    Spurningin er einföld: viljum við leyfa útlendingum að koma til Íslands og búa þar (og þar með stækka og þróa genasamsetningu íslensku þjóðarinnar - veitir ekki af) eða viljum við banna þeim það? Þá skil ég ekki þá hugmynd að útlenskir Íslendingar eigi að hafa skertan rétt á við íslenska Íslendinga. Það sér hver maður til hvers slík mismunum hlýtur að leiða...

    16. apríl 2004 kl. 17:08 GMT | #

  6. Tommi svarar:

    Már, ég held að þú vanmetir áhrif ritstjórnar. Menn ritstýra alltaf svona undirskriftasöfnun og fara yfir listana og eyða út erroneus skráningum. Líkurnar á vitlausri skráningu eru þvi á endanum jafn miklar báðum megin.

    17. apríl 2004 kl. 16:41 GMT | #

  7. Tómas Hafliðason svarar:

    Ég held að Már sé einmitt ekki að miskilja þetta hjá þeim nema kannski hvað varðar stóru ritstýringuna þegar listunum var einfaldlega eitt. Annars held ég að lítil sem engin ritstýring hafi farið fram.

    Eðlilega við svona lista er að telja hvern einu sinni og birta ekki tölur nema að þær séu raunverulegar. Það er amk. mjög varhugavert að birta tölur þegar þetta er svona galopið eins og þetta var hjá þeim.

    Auðvitað þarf að ritstýra svona listum á einhverju leyti, alveg sama hvað er gert, þá er aldrei hægt að komast hjá einhverskonar misnotkun. Sú misnotkun er þeim mun meiri sem varnir eru minni.

    20. apríl 2004 kl. 16:15 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)