Disclaiming
I like Matthew Thomas' Disclaimers. Every item in his list apply to me.
Cool.
Also good by Matthew: Discussions in unwanted places, on how 'discussions' tend to form naturally in social (software) situations.
I like Matthew Thomas' Disclaimers. Every item in his list apply to me.
Cool.
Also good by Matthew: Discussions in unwanted places, on how 'discussions' tend to form naturally in social (software) situations.
Svansson prófar undirskrifalistana og kemst ađ ţví ađ ólíkt mótmćlalistanum, ţá samţykkir stuđningslistinn margendurteknar undirskriftir frá gervifólki. Úbs!
Gunnar Gríms spyr skemmtilegrar spurningar varđandi 'Stóra hćstaréttardómaramáliđ':
[Ef dómstólar stađfesta úrskurđ jafnréttisráđs um ađ ráđningin hafi veriđ ólögleg, en dómarinn situr áfram] "erum viđ ţá ekki međ ólöglegan hćstaréttardómara? Er ţađ hćgt?"
Svariđ viđ ţessari spurningu er ekki eins augjóst og ţađ virđist í fyrstu. :-)
Gunnar bloggar svo líka um hleranir lögreglu á símtölum, samvinnuţýđleika Landsímans í slíkum málum (krefjast víst ekki dómsúrskurđar), og hugmyndir manna um ađ fella niđur kröfuna á dómsúrskurđ fyrir slíkar hleranir. Gunnar spyr:
"Nú vilja ţeir lögfesta símahleranir án dómsúrskurđar! Reyndar ţurfa ţeir ađ fá úrskurđ eftir á en [ef dómurinn hafnar beiđninni,] hvađ ćtla ţeir ţá ađ gera viđ ţađ sem ţeir hleruđu? Afhlera ţađ? Hreinsa úr minninu á sér líka? Hvílíkt bull!"
Góđ spurning :-)
Svavar gefur Neytenda- og umhverfisverndartipp:
"Fyrir hvert epli sem ţiđ kaupiđ frá Svíţjóđ, Englandi eđa Hollandi hafa fariđ x margir olíulítrar í flutninga. En fyrir Hvert epli sem ţiđ kaupiđ frá Kína hafa fariđ 6x margir olíulítrar í flutninga. Ţótt eplin kosti ţađ sama eruđ ţiđ ađ eyđa verđmćtu eldsneyti og auđlindum jarđar í hégóma og vitleysu."
Svipađ gildir um fjölmargar neysluvörur, s.s. heimilistćki. Mađur á helst ađ kaupa dýra og vandađa hluti sem endast lengi (ţađ má t.d. taka lán eđa nota afborganir til ađ létta sér greiđslubyrđina), frekar en ađ kaupa ódýra hluti sem endast stutt. Til lengri tíma litiđ eru ódýru hlutirnir jafn dýrir og ţeir dýru (1/6 af verđinu, 1/6 af endingunni) en mađur er búinn ađ eyđa mörgum sinnum meira magni af náttúruauđlindum (málmur, plast, bensín í flutninga, etc.) heldur en ef mađur hefđi keypt einn dýran endingargóđan hlut.
Ég var fyrir nokkrum dögum síđan ađ sćkja gamla trausta Frigadaire ísskápinn okkar Stínu úr viđgerđ (skipt um úrbrćdda pressu). Ísskápurinn var smíđađur í Bandaríkjunum 15. september 1945, og kostađi líklega mörg mánađarlaun venjulegs verkamanns á sínum tíma. Hann kćlir mjög vel, eyđir ekkert sérstaklega miklu rafmagni, í ćđum hans rennur núna nýr og umhverfisvćnn kćlimiđill, og hann mun líklega halda áfram ađ ţjóna hlutverki sínu í einhverja áratugi í viđbót.
Svavar óskar eftir rebelum í tónlistamyndband. Ég er búinn ađ bjóđa mig fram sem rebell af tegundinni 'pólitískt viđrini' sem dansar ekki ('stelpur dansa'). Lengi lifi rokkiđ!
Brúđarbandiđ spilar í kvöld á Grandrokk. Ókeypis inn!
Frumvarp Dómsmálaráđherra um breytingar á útlendingarlögum hefur vakiđ sterk viđbrögđ. Settir hafa veriđ upp undirskriftalisti gegn frumvarpinu og annar til stuđnings ţví.
Ég setti mitt nafn á mótmćlalistann og hvet ađra til ađ gera ţađ sama.
Mér finnst ţetta frumvarp samt alls ekki alslćmt, og eins og Friđjón R. Friđjónsson bendir á í grein á Frelsi.is, ţá er sumt af ţví sem andstćđingar frumvarpsins mótmćla atriđi sem hafa veriđ í gildi í útlendingalögunum í mörg ár. Engu ađ síđur tel ég, ţótt frumvarpiđ bćti á köflum litlu viđ núgildandi lög, ađ mótmćlin sýni einmitt ađ ýmislegt í ţeim lögum og ţessum breytingatillögum dómsmálaráđherra, einflaldlega stríđir gegn siđferđiskennd stórs hluta ţjóđarinnar.
Ţó svo ađ stjórnarskráin og almenn lög í landinu fjalli fyrst og fremst um íslenska ríkisborgara, og strangt til tekiđ ţurfum viđ ekki ađ láta sambćrilegar leikreglur gilda um útlendinga/innflytjendur, ţá finnst fólki ađ sumt eigi einfaldlega ađ gilda jafnt um alla, sama hvađan ţeir koma og hvers vegna. T.d. virđingin fyrir hjónabandi fólks, jafnvel ţótt annađ ţeirra sé útlendingur yngri en 24 ára (gisp!). Ţetta og margt annađ í frumvarpinu finnst fólki fáránlegt og óréttlátt.
Mótmćlin sýna einfaldlega ađ bćđi frumvarpiđ og gildandi lög um útlendinga eru á vissan hátt úr takti viđ réttlćtiskennd íslendinga, og ég efast ekki um ađ margir ţeirra sem skrifa undir mótmćlin vilja gjarnan sjá meiri og opnari umrćđu og miklu róttćkari tillögur (og betur ígrundađar) um úrbćtur í málefnum útlendinga á Íslandi.
Frumvarpiđ og viđbrögđin viđ ţví bera ađ vissu leyti vitni pólitískum ţankagangi dómsmálaráđherra, sem virđist ekki alltaf vera í takti viđ skođanir kjósenda og almennings. Ţó hef ég samt örlítiđ á tilfinningunni ađ lćtin sem orđiđ hafa yfir ţessu útlendingalagafrumvarpi, séu ađ einhverjum hluta sprottin úr röđum pólitískra andstćđinga hans sem vilja gera sér mat úr lélegu frumvarpi til ađ afla honum óvinsćlda. Gćti ţađ veriđ?
Samt, ţađ eitt ađ Félag "framfarasinna" skuli "fagna frumvarpinu", hlýtur ađ segja segja sína sögu, og eins og áđur sagđi ţá skrifađi ég undir mótmćlin gegn frumvarpinu.
Engu ađ síđur fagna ég ţeirri umrćđu sem skapast hefur um ţessi mál vegna frumvarpsins, og vona ađ á ţví verđi gerđar róttćkar breytingar til gagns.
(Atriđin í listanum vísa á ákveđna kafla ofar á síđunni.)
Nýleg svör frá lesendum