Hvernig veffyrirtækin nota 'Keywords'

Skrifað 7. apríl 2004, kl. 11:06

Ég fór áðan stuttan rúnt um heimasíður helstu íslensku veffyrirtækjanna og gerði úttekt á notkun þeirra á keywords leitarorðum. Niðurstöðurnar tala sínu máli.

Nú veit ég ekki hvort það megi lesa neitt markvert út úr þessum gögnum, en nördinum í mér finnst þetta pínu áhugavert. Mig grunar að það mætti gera svona leitarorðaúttekt á heimasíðum í fleiri geirum viðskiptalífsins, s.s.: heimasíðum banka og fjármálafyrirtækja, ferðaskrifstofum, tölvuverslunum, afþreygingarvefsvæðum, o.fl.

Ath, ég feitletraði nokkur orð í listunum sem mér þóttu skemmtileg í ljósi þess að þarna eru á ferðinni stikkorð/leitarorð sem hinn almenni vefnotandi sér ekki, en leitarvélar (t.d. Google) nota hins vegar til að flokka síður fyrir leitarniðurstöður sínar.

Annað veldi / Curio

"Annað Veldi, CurioWeb, Simulation, Model, Hydro-Thermal, Power System, Iceland"

Atom01

"Index, Oddur Snær, Hermann Fannar, Ingvi Þór, Magnea Matthíasdóttir, Svavar Örn, Vefumsýsla, Forritun, Hugbúnaður, Netkerfi, Internet, Disill 3, Web, Atom, Nulleinn, Vefstýrikerfi, CMS, Hugbúnaðargerð"

Dísill

hjá þeim er tómt.`

ECWeb / Íslensk fyrirtæki

"Heimasíður, Heimasíða, Vefsíða, Heimsíðuhönnun, Vefráðgjöf, Vefverslanir, Vefverslun, Internetið, Internet, intranet, innranet, Netið, Net, Heimasíðugerð, Vefsíður, vefsíðugerð, Heimasíða, Vefsíða, Vefumsjónarkerfi, Vefstjórnarkerfi, Vefumsjónarkerfi, Vefumsýslukerfi, CMS, Content Management, Vefumsjón, Vefsíðusmíði, Heimasíðusmíði, Hönnun, Forritun, Ráðgjöf, Vefurinn, Vefur, Eplica, Innn, Lisa, Vefsýn, Soloweb"

Eplica / Hugsmiðjan

"eplica, eplica.is, hugsmiðjan, hugsmidjan.is, hugsmiðjan ehf, eplica ehf, vefumsjónarkerfi, vefumsjónarkerfið, vefstýrikerfi, vefumsjón, vefur, vefir, vefa, vefja, vefhönnun, heimasíða, heimasíðugerð, vefforritun, vefforritari, vistun, hýsing, vefsetur, vefsetra, ráðgjöf, þjónusta, vefumsýslutól, veftól, vefstjórn, vefstjórnkerfi"

Innn

"Vefur, Vefsíðugerð, Vefumsjón, Ráðgjöf, Forritun, Internet, .NET, ASP, ASP.NET"

Origo

Engar keywords upplýsingar.

Vefur

"vefur, vefhönnun, heimasíðugerð, vefforritun, vistun, skráning, lén, vefsíðugerð, vefumsjónarkerfi, vefstjóri, fréttabréf, ráðgjöf, þekking, vefauglýsingar, rekstur, vefsetur, vefkannanir, kannanir, könnun, vefkönnun, skoðanakönnun, Davíð Stefánsson"

Vefsýn

"vefviðhaldskerfi, vefkerfi, þróun, greining, markaðssetning, vefsmíði, content maganagement, soloweb, webobjects, java, frontbase, vefsmíði, forritun, hönnun, netið, hugbúnaður, uppsetning, námskeið, css, html, javascript, hýsing, fréttir, fréttakerfi, hágæðalausnir, traust lausn, ánægðir viðskiptavinir, hýsing, vefhýsing, pósthýsing, póstfang, póstföng, ftp, hýsingarþjónusta, innranet, útlitshönnun, vefforrit, vefforritun, vefur, vefun, vefhugbúnaður, vefhönnun, vefviðmót, viðmót, viðmótshönnun, innranet, ytranet"


Svör frá lesendum (13)

  1. egill svarar:

    Úff, hvað er málið með veffyrirtæki að setja inn nöfn samkeppnisaðilla í keywords?

    Tók eftir því að ef þú ferð á www.finna.is, sem er í eigu sama fyrirtækis og EcWeb, þá er www.ecweb.is fyrsta niðurstaða þegar leitað er t.d. að Eplica eða Innn.

    Mér þykja þetta slöpp vinnubrögð og gefur ekki jákvæða mynd af viðkomandi.

    7. apríl 2004 kl. 11:42 GMT | #

  2. Tómas Hafliðason svarar:

    Hvernig er það með leitarvélar, hafa þær ekki minnkað notkun eða vægi þessara orða út af misnotkun?

    Annars eru það auðvitað miklar pælingar hvernig síður eiga að rankast best á leitarvélum. Fræði sem maður hefur nú ekki kynnt sér mjög mikið.

    7. apríl 2004 kl. 13:13 GMT | #

  3. bió svarar:

    Sniðug samantekt. Þetta minnir mig á að við rákumst in-da GM days á að Kolrassa krókríðandi aka Bellatrix notaði Björk, Bjork í keywords hjá sér.

    Það þótti athyglisvert.

    7. apríl 2004 kl. 13:23 GMT | #

  4. Bjössi svarar:

    skemmtileg samantekt hjá þér!

    ecweb fóru nú samt alveg með þetta með að setja inn nöfn samkeppnisaðila!

    7. apríl 2004 kl. 13:31 GMT | #

  5. Gulli svarar:

    Gaman að sjá 'keywords' hjá þér því ég er búinn að velta fyrir mér að undanförnu hvernig sé best að þýða orðið yfir á íslensku.

    Beinast liggur við lykilorð en í hina áttina liggur beinast við password :)

    Veit einhver um góða þýðingu á leitar 'keywords' ?

    7. apríl 2004 kl. 13:51 GMT | #

  6. Ragnar svarar:

    Hmm, náungi sem vinnur hjá Google fullyrti við mig í síðustu viku að Google ignoraði meta-keywords, einmitt vegna þess að þau væru misnotuð. Memo: sýna honum dæmið um Eplica...

    Interesting

    7. apríl 2004 kl. 14:09 GMT | #

  7. Már svarar:

    Gulli, ég segi 'keywords' af því ég er að vísa til nafnsins á `` reglunni. Í almennu tali segi ég ýmist 'leitarorð' eða 'stikkorð'. Fólk virðist skilja þau hugtök ágætlega.

    7. apríl 2004 kl. 14:11 GMT | #

  8. Már svarar:

    Tommi, leitarvélarnar eru jú margar farnar að minnka vægi keywords upplýsinganna. Þekktasta dæmið er Google, sem eins og Ragnar bendir á, sleppir þeim alveg. (Ég hélt reyndar að Google tæki eitthvað smá mark á þeim. Þannig var það allavega)

    Hins vegar er Google ekki eina leitarvélin á vefnum, og því er aldrei að vita hvenær þessi lýsigögn koma að notum.

    7. apríl 2004 kl. 14:15 GMT | #

  9. Már svarar:

    Egill, ECWeb tilvísunin efst í leitarniðurstöðunum á Finna.is er auglýsing en ekki venjuleg leitarniðurstaða. Persónulega finnst mér það innan eðlilegra marka.

    Þó mættu Finna.is ganga hreint til verks og taka skýrt fram að þarna er á ferðinni auglýsing en ekki leitarniðurstaða.

    En hvernig er það, notar einhver Finna.is yfir höfuð??

    7. apríl 2004 kl. 14:23 GMT | #

  10. Einar svarar:

    Ég persónulega notast hvorki við leitarvélar finna.is né leit.is (var ekki til e-ð eitt íslenskt leitarbatterí í viðbót?). Í þau fáu skipti sem ég fer á leit.is, þá er það til þess að skoða þjónustusíður þeirra. Reynsla mín er sú að Google finnur einfaldlega betri niðurstöður, þó svo að um íslenska vefi sé að ræða. (má alltaf nota site:.is).

    Einnig er ég sammála því að það er mjög lélegt ef fyrirtæki eru að setja nöfn samkeppnisaðila sinna í keywords hjá sér.

    7. apríl 2004 kl. 15:08 GMT | #

  11. Oddur Snær Magnússon svarar:

    ég er bara frekar svekktur að mitt fyrirtæki skuli ekki vera listað hjá þeim ! hva er það ekki nógu gott fyrir þá eða. .. hnuss

    7. apríl 2004 kl. 16:13 GMT | #

  12. egill svarar:

    Már, þetta er auglýsing tengd við leitarorð. Sem svo byggist á t.d. keywords. Ekki satt? Eða er tilviljun að þessi auglýsing birtist alltaf þegar maður notar e-ð af þessum atriðum úr keywords ? :)

    Norskt samsæri? Það held ég!

    7. apríl 2004 kl. 22:19 GMT | #

  13. Hugi svarar:

    Sorrí, Oddur, það er greinilegt að ekki öll fyrirtæki eru þess virði að stela viðskiptum frá :-).

    Varðandi íslenska þýðingu á "keywords" hef ég venjulega notað "lyklunarorð". Fólk á það til að ruglast ef maður notar "lykilorð", heldur þá stundum að átt sé við "aðgangsorð".

    12. apríl 2004 kl. 18:57 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)