Morgunpælingar
"Leiðin til heljar er lögð/vörðuð góðum ásetningi"
Mér hefur alltaf leiðst þessi setning. Aðallega af því hvað fólk skilur hana vitlaust, og misbeitir henni oft í rökræðum eins og hún merki að góður ásetningur leiði mann óhjákvæmilega í ógöngur, eða að það að allar tilraunir til að gera heiminn betri geri hann bara verri.
Í höndum (munni?) þessa fólks breytist þetta ágæta spakmæli í níhílíska gaddakylfu.
Það sem setningin kennir okkur er einfaldlega það að góður ásetningur getur í sumum tilfellum haft þveröfugar afleiðingar við það sem ætlað var í upphafi - og að góðum ásetningi þurfi alltaf að fylgja vænn skammtur af gagnrýnni hugsun og heilbrigðri skynsemi.
Annað sem ég var að velta fyrir mér í morgun á leiðinni með Garp til dagömmunnar, var hvort félagarnir sem skrifa á Vantrú.net dragi nokkurn tíman upp mynd af því sem þeim þykir jákvætt við trú á guði og hindurvitni? Í svipinn man ég ekki eftir neinum skrifum þar sem þeir segja hvaða kosti þeir sjái við guðstrú sem fyrirbæri. (Ég viðurkenni fúslega að ég hef ekki lúslesið síðuna þeirra í leit að svona dæmum.)
Þessi pæling kom í framhaldi af því að ég var að velta fyrir mér hvað það er mikilvægt að vera sanngjarn þegar maður gagnrýnir fólk og hugmyndir þess.
Ef maður ræðst að einhverju(m) í sífellu án þess að viðurkenna jákvæða eiginleika viðkomandi (fyrirbæris), og virðist gleyma að fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott, þá verður gagnrýni manns hol að innan í augum þeirra sem standa álengdar og fylgjast með og þeir taka síður mark á manni.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (12)
Óli Gneisti svarar:
Ég verð bara að játa að ég man í fljótu bragði ekki eftir neinu sem mér finnst jákvætt við guðstrú né aðra trú á yfirnáttúruleg fyrirbrigði.
2. apríl 2004 kl. 09:14 GMT | #
Matti Á. svarar:
Í fljótu bragði man ég ekki eftir því að hafa séð þig draga upp mynd af því sem þér þykir jákvætt við Vantrú.net ;-)
Annars er eins og mig rámi í að ég hafi af og til bent á að hugsanlega hafi trú einhverjar jákvæðar hliðar. Síðast í gær í athugasemdum við grein hjá Árna.
Þessu tengt - hvað þykir þér jákvætt við: {stríð, Bush, Kárahnjúka og Internet Explorer} og geturðu vísað mér á skrif þín þar sem þessi jákvæða mynd er dregin upp ;-)
2. apríl 2004 kl. 09:22 GMT | #
Már svarar:
Matti, ég hef margoft lýst því yfir að ég sé efnislega sammála mörgu (líklega flestu) því sem þið segið á Vantrú.net. Það hefur sjaldnast (kannski aldrei) verið aðalatriðið í því sem ég hef skrifað, en hefur fengið að fljóta með í framhjáhlaupi.
Matti, þú gleymdir 'morð' og 'nauðganir á litlum börnum' úr litstanum þínum yfir slæma hluti sem ég ætti að mæra til að mega teljast marktækur. :-)
2. apríl 2004 kl. 09:41 GMT | #
Svansson.net: (no title)
2. apríl 2004 kl. 09:52 GMT | #
Matti Á. svarar:
Nei, ekki alveg, þetta er varla sambærilegt. Það sem ég vildi benda á er að margir komast upp með mjög harða afstöðu til ýmissra mála án þess að fá svipaða gagnrýni og við Vantrúarpennar - hvað veldur því?
Eins og ég hef bent á í Vantrúarpistli, sem tengist þessari umræðu, höfum við Vantrúarpennar ákveðnar skoðanir á trúmálum og afsökum okkur ekkert fyrir það.
Ég vitna annars í Bertrand Russell.
Bertrand Russell: Has Religion Made Useful Contributions to Civilization?
2. apríl 2004 kl. 10:02 GMT | #
Matti Á. svarar:
Ég er að sjálfsögðu ekki með allar Vantrúargreinar í kollinum, en renndi yfir mínar og get ekki betur séð en að í greininni Kristniboðsdagurinn megi finna dæmi þar sem bent er á eitthvað jákvætt við það sem trúmenn gera.
Restin af greininni er svo gagnrýni á Kristni - en ég er nokkuð viss um að hjá Vantrúarpennum má finna fleiri tilvitnanir eins og þessar.
2. apríl 2004 kl. 10:22 GMT | #
Már svarar:
Matti, ekki misskilja mig, ég er ekki að gera neina kröfu á að þið breytið ykkur á neinn hátt.
Mér varð hugsað til ykkar í framhaldi af almennum pælingum um eitthvað sem maður gæti kallað "sanngjarna gagnrýni", eða "áhrifaríka gagnrýni". Þær pælingar mínar voru hluti af ákveðinni sjálfsrýni minni sem var áframhald af samræðum sem ég hef átt við fólk nýverið um málefni sem eiga ekkert skylt við Vantrú.net.
2. apríl 2004 kl. 10:26 GMT | #
Matti Á. svarar:
Ég skil það Már, mér finnst bara frekar ósanngjarnt þegar menn dæma vef eins og Vantrú útaf stöku greinum, eins og Guðmundur Svansson sem hættir að lesa Vantrú að eigin sögn vegna þess að honum líkar ekki myndasyrpa sem sýnir að Nasistar voru upp til hópar kristnir - ég veit ekki, kannski mistúlkar hann þetta eins og aðrir og gefur sér að verið sé að segja að kristnir séu Nasistar. Ég les Deigluna daglega þó margt af því sem þar hefur verið skrifað sé fullkomið kjaftæði.
Að sjálfsögðu verður maður stöðugt að ígrunda eigin afstöðu og vera meðvitaður um að það eru fleiri en ein skoðun á flestum málum. Það er ekki þar með sagt að allar skoðanir séu réttar, það kemur jafnvel fyrir að maður hefur sjálfur rangt fyrir sér :-)
2. apríl 2004 kl. 10:39 GMT | #
Matti Á. svarar:
Í athugasemdinni fyrir ofan mætti frekar standa "sumt af því sem þar hefur verið skrifað...." þar sem ég vísa í Deigluna enda sá vefur í miklum metum hjá mér.
2. apríl 2004 kl. 10:45 GMT | #
svansson.net svarar:
Það var nottla ekki bara þessi eina grein - hún var kannski meira svona dropinn.
Það að hætta að lesa vef er ekki endilega e.k. mótmæli eða viðbrögð. Ég missti líka bara áhugann.
Ég les Múrinn alltaf reglulega og reyni að fylgjast með flestum pólitísku vefritunum þó þar sé eitt og annað misgáfulegt. En ég les ekki Málefnin og fylgdist ekki með spjallþráðunum á Vísi. Ég les heldur ekki stjórnmálaumræður á Huga. Ég les heldur ekki Vantrú.net
2. apríl 2004 kl. 11:02 GMT | #
Gunnar svarar:
Ég les heldur ekki vantrú lengur. Og ástæðunum held ég fyrir mig, nenni nefnilega hvorki að rífast við Óla né Matta, ekki heldur um hluti sem hægt er að færa rök fyrir ;>
7. apríl 2004 kl. 00:12 GMT | #
Zato svarar:
Ég mundi telja mig algeran trúleisingja, en ég tel að flest trúabrögð séu stofnuð á góðum hugmyndafræðum, þ.a.e.s siðfræði reglur.
Gallinn finnst mér að trúabrögð, hafa oft reglur sem útskúfa alla aðra sem eru ekki þeirra trúar og flest alla sem passa ekki inn í hið "æskilega" félagsminstur, t.d. hommar, lessbíur og fólki sem mótmælir kenningum trúarinnar t.d. vísindamenn, heimspekingar.
Æi, ég gæti svo sem rantað eins og brjálæðingur í allan dag, en það hefur svo sem ekkert upp á sig.
7. apríl 2004 kl. 20:04 GMT | #