Die Hard Jesús

Skrifað 20. mars 2004, kl. 21:41

Sá Jesúmyndina (Passion of the Christ) í gærkvöldi, og ég veit ekki enn alveg hvað mér finnst.

Ofbeldið var nefnilega svo grafískt og blóðbaðið svo yfirgengilegt að það komu stundir þar sem ég hreinlega efast um að leikstjóranum væri full alvara með þessu öllu saman. Útkoman var allt að því súrrealísk, og minnti stundum meira á klassíska splattermynd, en grafalvarlega trúarlega frásögn. Það hálfa í ofbeldinu hefði verið mjög mátulegt, og þá hefði myndin líklega náð að skila mun sterkari hughrifum en ella.

Mel Gibson gerði að mínu mati tvö megin misök:

Hann hefði átt að sleppa helmingnum af blóðinu og ofbeldinu og gefa þannig áhorfendum smá ráðrúm til að meðtaka undirliggjandi boðskap sögunnar og upplifa þau feikna sterku hughrif sem þessi annars prýðis vel gerða mynd bauð upp á.

Mér fannst hann líka klikka á að ákveða hvort hann vildi sýna Jesú sem raunverulegan mann af holdi og blóði sem áhorfendur ættu að fyllast samkennd með, eða hvort hann vildi sýna Jesú sem guðlega/ofurnáttúrlega veru, sem missir rúmlega fjóra lítra af blóði í einni blóðbaðssenu (skömmu fyrir hlé) og stendur alltaf upp jafn hraust og til í tuskið sama hversu margir vondir karlar eru búnir að buffa hana í spað. Þessi Jesús hans Gibsons minnti mig einna helst á Bruce Willis í Die Hard.

P.S. Mér fannst mjög kostulegt að sjá að á tröppunum fyrir utan Regnbogann stóðu norpandi einhverjir grey menn frá Krossinum og Baptistasöfnuðinum í Kópavogi og réttu öllum sem áttu leið hjá litla litprentaða bælkinga með trúboðsáróðri. Það átti greinilega að ná fólki meðan það var enn í losti eftir splatterinn. :-)

P.P.S. þetta er líkleg ekki mjög viðeigandi viðbót, en ég stenst ekki mátið að nefna hvað mér finnst Monica Bellucci svakalega heillandi leikkona. ...og með fallegar hendur.


Svör frá lesendum (1)

  1. Ágúst svarar:

    Kannski myndin hefði komið best út í Hitchcock-stíl :-)

    20. mars 2004 kl. 23:03 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)