Die Hard Jesús
Sá Jesúmyndina (Passion of the Christ) í gćrkvöldi, og ég veit ekki enn alveg hvađ mér finnst.
Ofbeldiđ var nefnilega svo grafískt og blóđbađiđ svo yfirgengilegt ađ ţađ komu stundir ţar sem ég hreinlega efast um ađ leikstjóranum vćri full alvara međ ţessu öllu saman. Útkoman var allt ađ ţví súrrealísk, og minnti stundum meira á klassíska splattermynd, en grafalvarlega trúarlega frásögn. Ţađ hálfa í ofbeldinu hefđi veriđ mjög mátulegt, og ţá hefđi myndin líklega náđ ađ skila mun sterkari hughrifum en ella.
Mel Gibson gerđi ađ mínu mati tvö megin misök:
Hann hefđi átt ađ sleppa helmingnum af blóđinu og ofbeldinu og gefa ţannig áhorfendum smá ráđrúm til ađ međtaka undirliggjandi bođskap sögunnar og upplifa ţau feikna sterku hughrif sem ţessi annars prýđis vel gerđa mynd bauđ upp á.
Mér fannst hann líka klikka á ađ ákveđa hvort hann vildi sýna Jesú sem raunverulegan mann af holdi og blóđi sem áhorfendur ćttu ađ fyllast samkennd međ, eđa hvort hann vildi sýna Jesú sem guđlega/ofurnáttúrlega veru, sem missir rúmlega fjóra lítra af blóđi í einni blóđbađssenu (skömmu fyrir hlé) og stendur alltaf upp jafn hraust og til í tuskiđ sama hversu margir vondir karlar eru búnir ađ buffa hana í spađ. Ţessi Jesús hans Gibsons minnti mig einna helst á Bruce Willis í Die Hard.
P.S. Mér fannst mjög kostulegt ađ sjá ađ á tröppunum fyrir utan Regnbogann stóđu norpandi einhverjir grey menn frá Krossinum og Baptistasöfnuđinum í Kópavogi og réttu öllum sem áttu leiđ hjá litla litprentađa bćlkinga međ trúbođsáróđri. Ţađ átti greinilega ađ ná fólki međan ţađ var enn í losti eftir splatterinn. :-)
P.P.S. ţetta er líkleg ekki mjög viđeigandi viđbót, en ég stenst ekki mátiđ ađ nefna hvađ mér finnst Monica Bellucci svakalega heillandi leikkona. ...og međ fallegar hendur.
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum