Hafiði séð þetta?

Skrifað 16. mars 2004, kl. 11:51

http://www.lemurstelpur.[ritksoðað]

Sjúkt!


Svör frá lesendum (10)

  1. Logi svarar:

    Ég sé núna eftir því að hafa bent Má á þessa síðu. Það er engin leið að vita hvort þessi saga er sönn eða login, hvort maðurinn á myndinni er ógeðslegur ofbeldismaður eða hvort síðan er rógburður af verstu sort sem Már er núna að bera víðar.

    Næst sit ég á mér og sýni ekki linkinn.

    16. mars 2004 kl. 12:01 GMT | #

  2. Már svarar:

    Iss Logi, þú ert húmorslaus terpa sem fílar ekki lemúrabrandarana mína!! :-)

    16. mars 2004 kl. 12:14 GMT | #

  3. Unnur svarar:

    Ég skil ekki hvað þú meinar með misskilningur? Veistu eitthvað meira um þetta mál en aðrir netverjar sem hafa tjáð sig um þetta?

    16. mars 2004 kl. 12:25 GMT | #

  4. Logi svarar:

    Unnur: Misskilningur vísar víst til þess að þegar hann sá urlið fyrst hélt hann að þetta væru svona lemúrastelpur... haha.

    16. mars 2004 kl. 12:58 GMT | #

  5. Unnur svarar:

    Logi: ah... skil. Þetta er semsagt misskilnginur af sama tagi og veldur því að ég fer í súpermarkaðinn og les klúryrði utan á matarpakkningum.... Már: afhverju ertu með lemúra á heilanum? Annars las ég langa umræðu um þetta á töflunni á Dordingli í gær, enginn þar vissi neitt en það voru inmitt mjög skiptar skoðanir um réttmæti þess að vísa á þetta.

    16. mars 2004 kl. 13:14 GMT | #

  6. Már svarar:

    Jæja vælukjóar, ég er búinn að ritskoða endinguna á tilvísunartextanum. Blah...

    En varðandi þessa síðu sem má ekki tala um... en allir vita samt hver er og vísa vinum og kunningjum á í tölvupósti og spjallskeytum... þá er ég bara þannig gerður að ég tek ekkert mark á svona nafnlausum árásum og myndbirtingum. Mér fannst síðan og innihald hennar ómerkileg.

    Hins vegar barst mér þessi vefslóð með spjallskeyti, án allra útskýringa, og áður en ég hafði smellt mér á hana þá reyndi ég að ráða af vefslóðinni hvert innihaldið kynni að vera. Það eina sem mér datt í hug var "eitthvað stelpublogg þar sem lemúrar eru þema".

    Það þarf vart að taka fram að ég varð fyrir herfilegum vonbrigðum þegar ég komst að hinu sanna við að smella.

    P.S. áhugi minn á lemúrum er persónulegt mál sem ég vil ekki ræða frekar hér. ;-)

    16. mars 2004 kl. 13:34 GMT | #

  7. Unnur svarar:

    Ég var ekkert að væla. Ég bara misskildi þig þannig að þú vissir eitthvað um þetta...

    17. mars 2004 kl. 00:48 GMT | #

  8. ragnar svarar:

    Ákveðin vonbrigði að átta sig á slóðarmisskilningnum. Fannst meira til lemúranna koma...

    17. mars 2004 kl. 01:10 GMT | #

  9. Bragi svarar:

    Ég deili ástríðu þinni á lemúrum á hinn undarlegasta hátt. Ég man t.d. enn þann dag í dag þegar ég og Hrólfur héldum fyrirlestur um lemúra hjá Sigurkarli í Vistfræðinni hér forðum daga.

    17. mars 2004 kl. 13:08 GMT | #

  10. R svarar:

    Ég þekki málavexti nokkuð náið og get staðhæft að þetta er hvorki logið né ýkt. Ræfillinn er fundinn, þökk sé árvökulum netverjum, og málið er komið til lögreglu. Tilgangurinn með síðunni var enginn annar en að hafa uppi á manninum svo hægt væri að kæra hann fyrir líkamsárás.

    26. mars 2004 kl. 02:20 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)