Á mánudagsmorgnum...

Skrifað 15. mars 2004, kl. 08:50

...er t.d. ágætt að kenna spam-síunni í Thunderbird að henda öllum frekari bréfum frá fattlausum og óvandvirkum "nemendum frá Háskóla Íslands sem eru að vinna verkefni í markaðsrannsóknum".

Um daginn fékk ég könnun senda á netföng upp úr viðskiptamannagrunni Iceland Express (það var útskýrt). Þetta var heljar löng könnun á ensku um það hvernig mér líkaði Ísland, og hvar og hvenær ég hefði fyrst heyrt um landið, og hvort ég hefði í hyggju að heimasækja það einhvern tíman aftur...! (Hint: Það kemur skýrt fram í viðskiptamannagrunni Iceland Express að ég a) er íslenskur ríkisborgari, og b) er búsettur á Íslandi!)

Áðan fékk ég svo snubbótt skeyti, án allra útskýringa, þar sem þess var óskað að ég svaraði "10 stuttum spurningum". Það var ekki tilgreint í hvaða tilgangi könnunin væri gerð, né heldur hvað yrði gert við upplýsingarnar sem ég gæfi. Af forvitni smellti ég á vefslóðina í bréfinu og sá þá að þetta stytt, íslenskuð útgáfa af könnuninni sem ég svaraði um daginn.

Lag dagsins er lagið úr brúðumyndunum um tékknesku klaufabárðana. Dú-dú-dúdúdúdúdú-dú-dú-dúúú...

P.S.: Þetta með spam-síuna er grín, en mér er alvara með restina.


Svör frá lesendum (3)

  1. Svanhildur svarar:

    Arrrrrrgh! Nú er ég komin með þetta fj... lag á heilann!

    15. mars 2004 kl. 09:27 GMT | #

  2. svansson.net svarar:

    Hey, veistu að laglínan eins og þú skrifar hana þarna smellpassar hérumbil alveg við stefið úr Benny Hill.. - ég fékk það líka á heilann þegar ég sá þetta...

    dúdú-dúdú-dúdúdúdú-dúdú-dúdú-dúdúúúdúdú

    15. mars 2004 kl. 09:35 GMT | #

  3. Zato svarar:

    Amm ég er viss um að Iceland Express hafa fengið einhvern bónus forritara til að gera þetta fyrir sig ..örgglega einhvern Slava sem þeir hóta að stinga og henda í bryggjuna ef hann vinnur ekki.

    15. mars 2004 kl. 10:25 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)