Færslur laugardaginn 13. mars 2004

Kl. 20:46: Læsileg "spam-varin" netföng með GIF-mynd og CSS 

Mér finnst þetta dáldið sniðugt: Dæmi um Spam-varin netföng með GIF-mynd og CSS.

Þarna er á ferðinni örlítið endurbætt útgáfa af hugmynd Egils og félaga hjá KB Banka. Þessi nálgun hefur þann stóra kost fram yfir hugmyndina sem ég fékk um daginn, að það er miklu auðveldara að láta þessa ganga upp sjónrænt. HTML-lega séð er þessi ekki eins hreinleg, en CSSið sem þarf til að láta hana virka er mun einfaldara og viðráðanlegra.

En varðandi endurbæturnar sem ég gerði á frumhugmynd Egils og félaga:

  • Í fyrsta lagi læt ég CSS reglurnar segja @-myndinni að stækka og minnka með stærð letursins á síðunni, en það hjálpar þeim sem sjá illa agnarlítil @-merki og tryggir að heildar yfirbragð síðunnar heldur sér ágætlega þótt notendur breyti leturstærðunum.
  • Í öðru lagi leik ég mér að því að gera @-myndina negatíva (hvíta með @-táknið sem gegnsætt 'gat') og þannig verður hún a) næstum 'ósýnileg' þeim sem ekki eru með CSS stuðning í vafranum sínum, og b) getur skipt litum með textanum þegar músað er yfir netfangið (ef það er tilvísun á 'hafðu samband' síðu).
  • Í þriðja lagi setti ég bil á milli léns-nafnsins og HTML kóðans sem inniheldur falda "hjá" textann, til að tryggja að engir fái "notandidomain.is" þegar þeir velja og afrita netfangið. Ástæðan er sú að Opera vafrinn neitar að afrita "hjá" textann, af því hann er falinn með display:none skipun. Auka bilið tryggir þannig að Opera-notendur fá a.m.k. "notandi domain.is" (með bili á milli "notandi" og "domain") og geta 'giskað í eyðuna' ;-). Ég fel þetta auka bil með því að setja margin-right:-.33em á myndina.

Við hjá Eplica erum núna að prófa okkur áfram með að nota þessa tækni á nýopnuðum vef Samtaka iðnaðarins og fleiri vefsvæðum sem eru í farvatninu.

Helsta vandamálið sem ég hef rekist á er að maður þarf að eiga (og nota!) sérstaka @-mynd fyrir hverjar aðstæður fyrir sig. Þannig þurfa að vera til skrárnar 'hja-fotur.gif', 'hja-starfsfolk.gif', o.s.frv. svo hægt sé að bregðast við ófyrirsjáanlegum útlitsbreytingum (leturstærð, -gerð, etc.) án þess að þurfa að breyta HTML kóðanum á viðkomandi stað á vefnum. Þrátt fyrir að maður passi sig á því, þá verða alltaf einhverjar takmarkanir á þessu. Þetta er alla vega betra en ekkert.

P.S. Spammerar eru svín!

Svör frá lesendum (11) | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í mars 2004

mars 2004
SunMán ÞriMið FimFös Lau
  1. 2. 3. 4. 5. 6.
7. 8. 9. 10. 11. 12. 13.
14. 15. 16. 17. 18. 19. 20.
21. 22. 23. 24. 25. 26. 27.
28. 29. 30. 31.      

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)