Spennandi HTML og CSS slóðir
Frá Simon Willison, Dean Edwards er bilaður maður. Hann er á fullu að forrita javascript einingu, sem hann kallar IE7, sem lagfærir fullt af villum í CSS og DOM stuðningi Internet Explorer 5.5 og 6.0 á Windows (sjá dæmasíðuna). Einingin er enn ókláruð, en það verður mjög spennandi að sjá hvernig endanlega útkoman verður, og hvort honum tekst að láta þetta virka líka á IE 5.0.
Frá Mark Pilgrim, Code Style birta niðurstöður kannana um hvaða leturgerðir eru uppsettar hjá Windows, MacOS, og UNIX notendum.
Frá Mark Pilgrim, Chris á Dithered.com viðheldur heljar ítarlegum lista yfir alls kyns CSS brellur og hvaða áhrif þær hafa í mismunandi vöfrum. Mér þykir þetta áhugavert, þótt ég noti sjálfur bara örfáar brellur af þessum lista - og sú sem ég nota mest er "Non-Validating". :-/
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (8)
JBJ svarar:
Minn maður á vaktinni!
Keep it up! :)
8. mars 2004 kl. 11:36 GMT | #
Jósi svarar:
Og þrátt fyrir notkun á underscore hackinu þá heldurðu því fram neðst á síðunni þinni að hún hafi "kórrétt CSS". Það er áhugavert að smella á þann takka og fá skilaboðin "does not validate" :)
9. mars 2004 kl. 01:14 GMT | #
Már svarar:
Aha! Þessi hnappur átti að vera horfinn. Ég hafði gleymt að gera "Rebuild" á þessa einingu í MT. Takk Jósi. (Tölvupóstur hefði líka virkað.)
En varðandi það af hverju ég kýs að nota undirstriks-brelluna, þá er ég búinn að sóa mörgum (mörgum!) vinnudögum samanlagt í að kljást við vitleysurnar í Internet Explorer á hátt sem samræmist CSS staðlinum og gefur tæknilega "kórrétta" útkomu.
Dag einn, stuttu fyrir jól, ákvað ég loks að þetta gengi ekki lengur. Lífið væri of stutt og undirstriks-brellan svo saklaus að ég gæti ekki réttlætt það fyrir mér (eða viðskiptavinum mínum!) að nota ekki bestu og áhrifaríkustu leiðina til að kljást við IE villurnar, bara til að fá "klapp á bakið" frá W3C.
Ég er vissulega vefstaðlanörd, en ég er líka pragmatískur. :-)
9. mars 2004 kl. 01:43 GMT | #
Gunnar svarar:
Var að skoða leturgerðaslóðirnar með bekknum mínum (alltaf þessum sama ;) og þá rákumst við á að samkvæmt þessu þá eru aðeins 77.94% Windowsvéla með Times New Roman uppsett. Án þess að ég nenni að telja upp fleiri dæmi þá finnst mér listinn vera langt í frá því að passa við mína upplifun af leturgerðum í grunnuppsetningum.
Fór að skoða þetta aðeins betur og sá þá að þessar upplýsingar eru fengnar með því að láta fólk merkja við úr lista http://www.codestyle.org/css/font-family/sampler-Windows.shtml hvaða leturgerðir eru á vél þess. Fyrir nú utan að vera ekki leið sem ég myndi almennt mæla með þá er það "besta" þetta hér: "If the named fonts appear to be different from your default font, it means the font is installed". Og hvað er svona fyndið við þetta? Jú, vefsíðan er í Times New Roman og því sjá flestir enga breytingu á letri ;> Að auki er þetta neðarlega í listanum og því augun farin að þreytast á þessum pælingum sem ekki eykur nákvæmnina. Ég hefði haldið að þetta væru nær því að vera 100% sem væru með Times New Roman uppsett, auk nokkura annara leturgerða.
Ferlega fúlt, ég varð ekkert smá glaður þegar ég sá tengilinn hjá þér, þetta nefnilega vantar illilega. En það þýðir lítið að treysta á fólk til að skrá svona, við erum víst mannleg...
9. mars 2004 kl. 21:47 GMT | #
Már svarar:
Já ég tók eftir þessu þegar ég svaraði könnuninni. Ég glotti í hljóði og passaði mig á að merkja við Times New Roman, þótt leiðbeiningarnar segðu mér að ég ætti líklega ekki að gera það. ;-)
Mig grunar að sama vandamál skýri hversu fáir mælast með letur eins og "Arial" (og jafnvel "Verdana"). Það er einhver slatti af fólki sem er með það letur sjálfgefið í vafranum sínum.
Engu að síðu held ég að þessi síða sé gagnleg - eins langt og hún nær. Það er rétt að hún gefur nokkuð skakka mynd af þeim leturgerðum sem fólk er með sjálfgefnar, en það eru í yfirgnæfandi hluta tilfella leturgerðirnar sem við vitum fyrir að allir eru með uppsttar hjá sér. Hins vegar gefur hún nokkuð skýra mynd útbreiðslu allra hinna leturgerðanna sem við vitum ekki eins mikið um.
10. mars 2004 kl. 11:41 GMT | #
gunnar svarar:
Rétt er það, hún gefur einhverja mynd af öðrum leturgerðum og því gagnleg sem slík. Ég varð bara spældur af því að ég hélt að þarna væri komin alvöru konkret heimild um leturgerðir :)
11. mars 2004 kl. 18:32 GMT | #
Jósi svarar:
ARRRGHH.. ég get ekki haldið aulahúmornum í mér. Ég biðst afsökunar fyrirfram.
<djók> Ég held að ef þú sjálfur fyrir nokkrum mánuðum hefðir ferðast fram í tímann til dagsins í dag, þá hefðir þú ekki verið ánægður með sjálfan þig. í þessari grein: http://mar.anomy.net/entry/2003/04/16/21.28.48/ þá varstu a.m.k. aðeins meiri validation púristi. Ég er með þá tilgátu að eftir nokkra mánuði í viðbót þá verður þú farinn að nota töflur aftur... </djók>
14. mars 2004 kl. 22:20 GMT | #
Már svarar:
Já ég mun brátt feta í fótspor Lockergnome vefsins! (Nördabloggheimar út í heimi standa í ljósum logum af illdeilum vegna nýjustu útlits-/kóðabreytinganna á vefnum http://www.lockergnome.com/ ;-)
Ást manns (mín) á vefstöðlum og kórréttum vinnubrögðum á í sífelldum átökum við löngunina til að sjá praktískar útkomur og léttan kóða sem er auðvelt að viðhalda. Þetta verður á köflum hreinræktaður tragí-kómískur harmleikur um ástir í meinum. "Leiftrandi ást - sagan um rafeindastelpuna og and-rótendarstrákinn..."
15. mars 2004 kl. 05:43 GMT | #