Cashinn

Skrifað 29. janúar 2004, kl. 11:23

Ég hef heyrt aðdáendur Johnnys Cash halda því fram að þegar hann flytur lög sem aðrir tónlistarmenn hafi gert fræg, þá eignist Cash lagið eftir það og tilfinning manns fyrir upprunalegu útgáfunni verði aldrei söm og áður.

Ég var áðan að rekast á Nine Inch Nails lagið "Hurt" í flutningi Johnnys Cash, og eftir því sem ég hlusta oftar á það, kemst ég meira og meira á þá skoðun að þessi kenning eigi við einhver rök að styðjast.

Magnað (hljóðdæmi). Ég þarf greinilega að kynna mér Cashinn betur.


Svör frá lesendum (3)

  1. Unnur svarar:

    Ég er svo ósammála þér varðandi Hurt að ég get ekki einu sinni byrjað að lýsa því :) Ekki það að hans útgáfa sé ekki fín, geðsýkin í Trent bætir bara hvað mig varðar svo miklu miklu meiru við lagið en Cash gæti nokkurntíman gert.

    29. janúar 2004 kl. 11:27 GMT | #

  2. Einar Örn svarar:

    Enn áhrifaríkara er að horfa á myndbandið, sem ég skrifaði um á síðunni minni fyrir rúmu ári.

    Sú síða er reyndar dauð, en þú ættir að reyna að finna myndbandið. Mjög áhrifaríkt, sérstaklega þegar maður gerir sér grein fyrir því hversu stutt hann átti eftir þegar hann gerði myndbandið.

    29. janúar 2004 kl. 13:45 GMT | #

  3. Jón Heiðar svarar:

    Aðrir karlsöngvarar eru allir eins og mjóróma fermingardrengir við hliðina á Johnny Cash. Þar má t.d. nefna Bono, Tom Petty, Nick Cave og Trent Reznor en Cash toppaði þá alla.

    29. janúar 2004 kl. 20:14 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)