Deiglugrein um Kvennaslóðir á villigötum
Snæbjörn Gunnsteinsson skrifar á Deiglunni "Kvennaslóðir - hagur kvenna?" um kvensérfræðingavefinn Kvennaslóðir. Pistillinn er því miður ansi slakur, en í honum gagnrýnir Snæbjörn Kvennaslóðir með tilvísunum í rannsóknir á neikvæðum áhrifum "jákvæðrar mismununar". Málið er bara að Kvennaslóðir hafa ekkert með jákvæða mismunun að gera [a.m.k. ekki þá tegund jákvæðrar mismununar sem rannsóknirnar beindust að], heldur þvert á móti snýst verkefnið um að markaðssetja kvensérfræðinga sem traustan kost fyrir fjölmiðlafólk í leit að álitsgjöfum, opinberar nefndir, og stjórnir fyrirtækja. Það væri nær að Snæbjörn fagnaði Kvennaslóðunum því markmið þeirra er einmitt að draga úr þörfinni fyrir reglur um "jákvæða mismunun".
Það er þó áhugavert að vita að kennari í háskólanum ku hafa lagt fram formlega kvörtun (kæru?) til siðanefndar Háskólans vegna þess að verkefnið mismuni Körlum. Ég veit ekki alveg hvað mér finnst um þá aðgerð.
P.S. mig langar til að mæta á Karlakvöldið á Grandrokk annað kvöld kl. 20:00. Þar talar fólk frá Félagi ábyrgra feðra, og Félagi einstæðra foreldra. Ingólfur V. Gíslason talar, og Ævar Kjartansson, auk almennrar umræðu. Ég get hins vegar ábyggilega ekki mætt því Stína verður að vinna þetta kvöld og Garpur sofnar einmitt um þetta leyti... Foreldrahlutverkið eh? :-)
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum