Færslur miðvikudaginn 21. janúar 2004

Kl. 15:43: Mont: Nýr vefur Símans 

Ég óska Símanum til hamingju með nýju vefina sína, nýja lúkkið og nýja lógóið. Ég má til með að monta mig aðeins af því ég kom aðeins að þessu verkefni sem sjálfsstæður verktaki í samstarfi Origo sem sérlegur HTML og CSS hönnuður, og gaf góð ráð varðandi aðgengileika og uppbyggingu vefsíðnanna, auk þátta sem vörðuðu samþættingu útlits milli margra aðskildra vefsvæða á vefum símans.

Síðurnar eru skrifaðar með töflulausu og nettu HTML og CSS stillingum sem stjórna útlitinu. (Það var ákveðið að byrja á að nota HTML 4.01 Transitional til að auðvelda flutning á efni af eldri vefsvæðum.) Líklega má finna ennþá einhverja hnökra á þessu vefsvæði eins og öllum öðrum nýopnuðum vefsvæðum, en ég held að Símanum og Origo hafi almennt tekist mjög vel upp, og vefsvæðið eigi eftir að verða Símanum til mikils sóma þegar fram líða stundir.

Síminn.is er náttúrulega bara eitt fjölmargra vefsvæða sem ég hef komið nálægt undanfarið rúmt ár, og unnið með töflulausu HTML og CSS layouteringu. Flest hinna verkefnanna má finna á verkefnasíðu Eplica ehf en á daginn er ég vefari og aðgengishönnuður fyrir Eplica ehf.

Svör frá lesendum (6) | Varanleg slóð

Kl. 12:55: Eitt mennsk, mörg mennsk 

Það fer í taugarnar á mér að það er ekki til íslenskt hvorugkyns nafnorð sem merkir manneskja eða einstaklingur. Öll orðin sem við notum yfir mannverur eru annað hvort karlkyns eða kvenkyns, og sama hvað við reynum þá höfum við alltaf tilhneygingu að tengja kyn orðsins kyni aðilans sem um er rætt. Þannig eru karlmenn frekar "aðilar" og "einstaklingar", en konur oftar "verur" og "manneskjur". Öll þessi orð hafa innbyggðar tengingar við ýmist karllæg eða kvenlæg gildi/eiginleika og lita með blæbrigðum sínum alla umræðu um fólk. ("Fólk" er hvorugkyns en hefur enga eintölumynd.)

Því dettur mér í hug að kannski sé mögulegt og hreinlega skynsamleg að taka í notkun nýtt orð:

Mennsk

no, hk. Manneskja, einstaklingur, mannvera, aðili, persóna. Sbr. "Mensch" í þýsku og "en mennsk" í öðrum norðurlandmálum.

Eintala: Mennsk, mennsk, mennski, mennsks. Fleirtala: Mennsk, mennsk, mennskum, mennska.

Bara pæling...

Svör frá lesendum (8) | Varanleg slóð

Kl. 12:39: Staðan... 

Vel að merkja, þá er ég kominn heim frá úgglandinu. Þreyttur eftir 10 daga dvöl í góðu yfirlæti hjá mömmu og manninum hennar. Þreyttur af því Garpur var afar háður mér allan tímann af því hann saknaði mömmu sinnar og svaf af þeim sökum of lítið og þýddist seint og illa við ömmu sína og granddad Steve. Ástandið var rétt að komast í eðlilegt horf um það leyti sem við flugum heim. Dæmigert.

Í lestinni til Stansted byrjaði Garpur svo að fá mjög háan hita (ábyggilega hátt í 40 gráður) og ca. 5 mínútum eftir að við vorum búnir að horfa eftir ferðatöskunni okkar hverfa eftir færibandinu við innritunarborðið þá gubbaði litla mennskið yfir mig allan. Þessi líka fína mjólkurbaseraða kraftgusa, og ilmandi í þokkabót. (Ungbarnagubb er einhver verst lyktandi andskoti sem fyrirfinnst.)

Flugvallarklósettvaskar, handþurrkublásarar, fataskipti (íþróttabuxur úr nálægri verslun á flugvellinum), og hitastillandi mixtúra úr Boots. Feðgarnir ferðbúnir. Caol Ila úr viskíbúðinni. Þramm, þramm, þramm, klyfjaður eins og útlaginn við hringtorgið á Suðurgötunni. Hlið 1. Flugvél.

Flugferðin gekk mjög vel. Ibuprofen mixtúran vann sitt verk og við þrömmuðum fram og aftur flugvélina og eignuðumst vini í hverri sætaröð. Urðum syfjaðir. Blésum til allra fingurkossi - góða nótt. Sofnuðum samt ekki. Grétum lendingargrátnum sára (fúlt að vera bundinn í sætið framan á pabba í meira en 20 mínútur), keyrðum í handfarangurskerrunni eftir göngum Leifsstöðvar, réttum konunni í glerbúrinu vegabréfið okkar, reyndum að klappa dópleitarhundinum í farangursmóttökunni, og hittum mömmu. Elsku mömmu. Dasaðir.

Garpur er enn veikur. Hitinn rýkur upp í 40 gráður milli þess sem við kýlum hann niður með mixtúrunni (að ráði hjúkrunarfræðingsins á Læknavaktinni). Næturnar eru verstar - svefnlausar. Vonandi batnar honum fljótt. Geisp.

Sendu þitt svar | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í janúar 2004

janúar 2004
SunMán ÞriMið FimFös Lau
        1. 2. 3.
4. 5. 6. 7. 8. 9. 10.
11. 12. 13. 14. 15. 16. 17.
18. 19. 20. 21. 22. 23. 24.
25. 26. 27. 28. 29. 30. 31.

Nýleg svör frá lesendum

  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Unnur María (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Valdís (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)
  • Hrafnkell (Vélrænar þýðingar)
  • Már (Vélrænar þýðingar)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)