Stefgjaldasamningur fyrir vefsíður?
Bjarni sendi um daginn fyrirspurn til STEFs um hvort hann gæti borgað einhver lágmarks stefgjöld gegn því mega með löglegum hætti útvarpa (linka á) tónlist úr dagbókinni sinni þegar hann skrifar dagbókarfærslur um tónlist eða tónlistarmenn.
Hann hefur núna fengið þau svör að það sé ekki hægt, en að einhverjar slíkar breytingar séu í bígerð. Einkar fróðlegt.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.