Fríið gengur vel. Okkur líður vel. Garpur saknar mömmu sinnar (lýsir sér í því að hann vill ekki fara að sofa á kvöldin). Góð tengsl að myndast smátt og smátt milli hans og ömmu og granddad. Göngutúrar eru góðir.
Aðrar fréttir: Í Englandi er grasið grænt í janúar og sumar jurtir bera blóm og ég var búinn að gleyma hvað internettengingar yfir módem eru ógeeeeðslega hægar.
Sendu þitt svar |
Varanleg slóð
Kl. 23:54: Gamlar lummur útgáfubransans
Í gærkvöldi sat ég og spjallaði við mömmu mína um heima og geima, og talið barst að tölvutækninni og því hvernig fólk er farið að nota tölvurnar og netið til að sækja og hlusta á tónlist.
Ég sagði henni frá því hvernig tónlistarstórfyrirtækin og hagsmunasamtök þeirra (t.d. STEF) tala hástöfum um það að netið og tölvutæknin sé að drepa tónlistariðnaðinn og að það þurfi að setja hömlur á þesa nýju tækni og herða löggjöfina og auka eftirlit með netnotkun almennings.
Mamma hlustaði þögul á þetta allt saman og sagði svo: "Já en þetta er nákvæmlega það sem þeir sögðu þegar kasettutækin komu fyrst á markaðinn og líka þegar vídeótæki komust í almannaeigu. Tónlistarmenn áttu að svelta og kvikmyndafyrirtækin áttu að hætta að búa til kvikmyndir og fólk að hætta að fara í bíó. Ég veit ekki betur en allt gagni þetta nú samt einhvern veginn."
Hún veit kannski ekki mjög mikið um tölvur og svoleiðis hún mamma mín, en hún er nægilega lífsreynd til að þekkja gamlar lummur þegar hún heyrir þær.
Mér fannst þetta áhugavert. :-)
Svör frá lesendum (11) |
Varanleg slóð
Nýleg svör frá lesendum