Farinn til .uk
Eftir hádegið fljúgum við feðgarnir til Englands og verðum þar út næstu viku. Það verður ágætt að slappa aðeins af, leika við Garp og leyfa honum að kynnast Völu ömmu og granddad Steve betur. Það er búin að vera dálítil törn hjá mér í vinnunni undanfarna daga. Það virðast allir hafa fengið þá hugmynd að það væri sniðugt að opna nýja vefsvæðið sitt um miðjan janúar...
Jæja, notið nú tækifærið og spammið svarhalana í dagbókinni á meðan ég verð í burtu.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.