Opinbert svar Hannesar

Skrifađ 8. janúar 2004, kl. 20:54

Hannes Hólmsteinn sendi frá sér í dag 15 blađsíđna greinargerđ (PDF) ţar sem hann svarar ţeim ásökunum um ritstuld sem hann mátti sćta rétt fyrir jól.

Mér sýnist Hannes ná ađ svara ágćtlega fyrir sig. Ég hef reyndar ekki lesiđ í ţaula gagnrýnina sem hann fékk á sig, en mér fannst hins vegar alltaf hálfgerđ skítalykt af ţví hversu seint sú gagnrýni kom fram, og hvernig hún hafđi allt yfirbragđ skipulagđrar atlögu ađ Hannesi og bókinni hans.

Ég hafđi samt gaman ađ ţví ađ lesa uppljóstrun Páls Ásgeirs um ađ ţrátt fyrir yfirlýsingar um Sri Lanka-dvöl, sé Hannes búinn ađ vera á Íslandi síđan fyrir áramót. :-) Mér finnst bloggiđ hans Palla blađamanns vera drullufínt.


Svör frá lesendum (6)

  1. Ágúst svarar:

    "mér fannst hins vegar alltaf hálfgerđ skítalykt af ţví hversu seint sú gagnrýni kom fram, og hvernig hún hafđi allt yfirbragđ skipulagđrar atlögu"

    Gleymdu ekki "fyrirsjáanleg". Auk ţess sem hann hefđi hreinlega aldrei getađ fengiđ ađ njóta sannmćlis hjá ákveđnu fólki. Klassísk persónuleg óvild.

    Ekki ţađ ađ ţađ er örugglega ýmislegt til í ţessari gagnrýni en hún er vissulega vatn á óvildarmyllu Hannesar.

    Og nei, ég er ekki ađ segja ađ ţessi óvild sé ekki áunnin. Kannski erum viđ bara orđin óvön ađ menning sé dćmd eftir flokkslínum.

    8. janúar 2004 kl. 23:19 GMT | #

  2. Sverrir svarar:

    Mér fannst ţađ besta viđ svar Hannesar ađ hann forđađist einmitt ađ tala um pólitískar ofsóknir eđa saka alla gagnrýnendur um ađ dćma eftir flokkslínum. Ef hann hefđi gert ţađ hefđi sú málsvörn veriđ lítils virđi.

    Og ađ hann gerir sér grein fyrir ţví ađ ritstuldur er alvörumál, sem er meira en sumir sem ćtla sér ađ "verja" hann međ ţeim rökum ađ ţađ sé í lagi ađ stela.

    En ţađ eru ekki rök í málinu ađ segja ađ gagnrýni "komi seint fram". Ef höfundar stunda vafasöm vinnubrögđ er ţađ beinlínis skylda ritdómara ađ benda á ţađ.

    Höfundurinn hefur vissulega einnig rétt á ađ svara fyrir sig. Mér finnst jákvćtt ađ ţetta mál sé í tiltölulega málefnalegum farvegi og vona ađ ţađ haldist í honum.

    9. janúar 2004 kl. 11:03 GMT | #

  3. Ţórarinn LEifsson svarar:

    "allt yfirbragđ skipulagđrar atlögu ađ Hannesi".

    Vćri gaman ef ţú fćrir dýpra ţarna. Biđur sá sem ekki veit. Mainar ţú ađ Gauti og Kress og Halldór G ofl hittist á fundum og skipuleggji ađför? Sjálfur er ég stoltur af ósmekklegri og ómálafnalegri ađför ađ ţví sem á ekki virđingu mína. Enginn skipuleggur mig, nema kanski Ical.

    bestu kveđjur totil

    9. janúar 2004 kl. 11:46 GMT | #

  4. Már Örlygsson svarar:

    Totil, ég er ekki ađ leggja til neinar samsćriskenningar. Ţetta var bara sú tilfinning sem ég fékk ţegar öll lćtin byrjuđu.

    9. janúar 2004 kl. 13:15 GMT | #

  5. Ţórarinn LEifsson svarar:

    Ok. Fair enough.

    9. janúar 2004 kl. 14:45 GMT | #

  6. Hannes Hólmsteinn Gissurarson svarar:

    Vegna orđa Páls Ásgeirs um heimkomu mína er rétt ađ upplýsa, ađ ég kom til landins síđdegis á nýársdag og lét verđa mitt fyrsta verk ađ sćkja nýársfagnađinn í Perluna. Ég kom beint frá Sri Lanka, ţar sem ég hafđi veriđ í jólaleyfi, áđur en ég átti ađ sćkja ráđstefnu Mont Pelerin samtakanna, sem ég er varaformađur í, en ţau samtök eru eins konar málfundafélag frjálslyndra frćđimanna. Ég tók mér hins vegar góđan tíma í ađ fara yfir fréttaflutning af „máli“ mínu, enda ekki vanţörf á. Eflaust hefur mér orđiđ eitthvađ á, eins og öllum, í bók minni, ţótt ég legđi mig allan fram um ađ skrifa fróđlega og skemmtilega bók, sem vćri líka sanngjörn í garđ söguhetjunnar, Halldórs Kiljans Laxness. En mér fannst herferđin gegn mér í fjölmiđlum fáránleg og nánast óskiljanleg. Hannes Hólmsteinn

    18. janúar 2004 kl. 11:19 GMT | #

Ţessum svarhala hefur veriđ lokađ. Kćrar ţakkir til ţeirra sem tóku ţátt í umrćđunni.


 

Flakk um vefsvćđiđ



 

Nýleg svör frá lesendum

  • business loans (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Hannahrl (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiđarvísir handa hrćddri ţjóđ)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiđarvísir handa hrćddri ţjóđ)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiđarvísir handa hrćddri ţjóđ)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir ţetta skjal

(Atriđin í listanum vísa á ákveđna kafla ofar á síđunni.)