Hræðsla við Opinberunina?

Skrifað 8. janúar 2004, kl. 20:38

Er það bara ég, eða virðast fæstir kvikmyndagagnrýnendur þora að tjá sig um Opinberun Hannesar - nema náttla kvikmyndagagnrýnandi Morgunblaðsins, hann gaf víst myndinni glimrandi dóma og þrjár stjörnur!

Jón Hákon á Kvikmyndir.com gefur myndinni 1 1/2 stjörnu en rökstyður þá einkunn einungis með tveimur stuttum málsgreinum, og Þórarinn "badabing" segir pass. Seinni partinn í dag hlustaði ég svo á kvikmyndagangrýnanda á Rás 2 tipla í kringum Opinberunina eins og köttur í kringum brennheitan graut - gott ef grauturinn var ekki baneitraður líka.

Gagnrýnandinn í útvarpinu lýsti því yfir að hann gæfi ekkert alltaf stjörnur þegar um íslenskar myndir væri að ræða og ætlaði sér í lagi ekki að leggja stjörnudóm á Opinberunina. Svo brá hann á það klassíska ráð að ræða nánst ekkert um myndina sjálfa, heldur forðaði sér beint út í einhverjar umræður um eldri kvikmyndir og skáldverk sem "minntu hann" á það sem væri til umfjöllunar í Opinberuninni - smásaga eftir Þórarin Eldjárn, etc. etc. Það eins sem kom út úr grei manninum var að honum þótti stíllinn á Opinberuninni meira í ætt við sjónvarpsmyndir, eða öllu heldur sjónvarpsþætti, eða framhaldsþætti, en virtist svo átta sig á því að hann var búinn að segja of mikið og þagnaði snarlega.

Þetta fannst mér fyndið, en um leið athyglivert.

Mér fannst samt alveg best að sjá Hrafn sjálfan í Kastljósinu um daginn halda því fram að hljóð- og myndvinnslan í myndinni væri í raun afskaplega flókin og fullkomin, og að léleg myndatakan væri í raun svakalega avant-garde "reportage" stíll sem við dauðlegir smáborgararnir skildum bara ekki. Ég verð þó að viðurkenna að mér fannst þetta svolítið kyndug fullyrðing því ég vissi ekki betur en að þáttagerðarmenn á Skjá einum hafi beitt nákvæmlega þessum sama myndatökustíl alveg frá stofnun stöðvarinnar, og bæði RÚV og Stöð 2 noti þetta í miklum mæli í sinni þáttagerð, og allir þessir aðilar hafi sýnt mun betra vald á tækninni en Hrafn í sinni 50 milljóna króna kvikmynd.

Ég hefði gjarnan viljað sjá Kristján eða Simma rífa Hrafn í sig þarna í Kastljósinu, en því miður var kvikmyndin ekki umfjöllunarefni þáttarins þannig að það varð ekkert úr því.

Getur einhver sagt mér það, eru gagnrýnendur virkilega ragir við að tjá sig um þessa kvikmynd, eða hef ég bara ekki fylgst nægilega vel með?

Viðbót: Deiglupenninn Svansson biður mig að minnast á ónefndan Opinberunarpistil hans á Deiglunni. Það er hér með gjört.


Svör frá lesendum (9)

  1. svansson svarar:

    Hey, ekki gleyma ónefndum Deiglupistli;)

    8. janúar 2004 kl. 21:29 GMT | #

  2. Már Örlygsson svarar:

    Hmmm... Góður punktur Svansson. Reyndar þá ætti ég reyndar ekkert að vísa á greinina þína af því þú varst Pappírspési og vísaðir ekki á neina af síðunum sem þú vitnaðir í. Mér fannst það aðallega óheppilegt af því þú notar svo tilvitnanirnar til að rökstyðja þá skoðun þína að það eigi að einkavæða RÚV. ;-) (P.S. Ég er búinn að uppfæra pistilinn. :-)

    8. janúar 2004 kl. 21:38 GMT | #

  3. svansson svarar:

    Já - en það er samt alveg augljóst (hverjum sanngjörnum gagnrýnanda;) að ég er fyrst og fremst að nota tilvísanirnar til að sýna fram á viðhorf og rökstyðja út frá því mína skoðun.

    En ég viðurkenni það að ég var að flýta mér og lét nægja að setja slóðina í textann. Vona bara að Helga Kress taki nú ekki upp á því að saka mig um ritstuld fyrir fljótfærnina;)

    8. janúar 2004 kl. 22:01 GMT | #

  4. svansson svarar:

    hey, ég bað nú aldrei um link sko - svo hégómlegur vil ég ekki vera. Það voru að sjálfsögðu engin falin skilaboð í hinni vinsamlegu ábendingu um að þér hefði láðst að minnast á hann;)

    8. janúar 2004 kl. 22:03 GMT | #

  5. Már Örlygsson svarar:

    Heh, Æi ég meinti samt ekki að þú hefðir verið að "misnota" tilvísanirnar á neinn hátt, heldur að mig grunar að einhverjir sem lásu bara þessar stuttu tilvitnanir og höfðu ekki færi/nennu á að copy-peista slóðir og lesa stærra samhengið, að þeir hafi í einhverjum tilfellum lagt saman tvo og tvo og fengið út fimm. Nevermind. Ég er bara linkahóra. ;-)

    8. janúar 2004 kl. 22:09 GMT | #

  6. Grani svarar:

    Ég las pistilinn þinn gaumgæfilega og er honum sammála. Hins vegar vil ég sundurliða þessa leikaragreiningu sem víða fer fram í krítik varðandi myndina og langar að það komi fram að þar finnst mér móðirin leika alveg snilldarvel. Sú áhugaleikkona (já takið eftir - áhugaleikkona) heitir Sigríður Helgadóttir og á alls ekki skilið neikvæða umfjöllun - annað á við um aðra leikara (flesta í það minnsta). Takk fyrir góða pistla!

    9. janúar 2004 kl. 18:32 GMT | #

  7. Árni svarar:

    Hey, mér finnst flott hjá þér að birta þessa grein, gæinn á mogganum er örugglega undir áhrifum frá Hrafni. Það er mikið um svoleiðis spillingu, sem dæmi má nefna að morgunblaðið birti ekki dóm um nýju bók hannesar hólmsteins, sem er víst algert hneyksli, því að hannes hefur völd á mogganum og vildi eki sjá slæmann dóm fyrr en hagnaðurinn fyrir jólasöluna væri búinn að skila sér inn.

    10. janúar 2004 kl. 14:43 GMT | #

  8. Einar svarar:

    Árni. Morgunblaðið byrti nær eins síðu dóm um bók Hannesar. Þetta var í sérstöku aukablaði um jólabækurnar, kom ut vel fyrir jól. Ég las þetta en þótti ekki merkilegt og lagði því innihaldið ekki á mynnið.

    10. janúar 2004 kl. 21:44 GMT | #

  9. bal svarar:

    það sést í myndavélamanninn á kránni hjá hlemmi, ótrúlegt að fólk skuli ekki taka eftir svona mistökum

    13. janúar 2004 kl. 15:59 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)