Meira af Bush
Það fer mikið fyrir harðri gagnrýni á Bush forseta í Bandaríkjunum þessa dagana, en það er líklega hluti af undirbúningnum fyrir forsetakosningarnar þar í landi næsta haust. Nokkur dæmi:
- Harper's Magazine: Revision Thing -
"A history of the Iraq war, told entirely in lies"
. - Moveon.org samtökin standa nú fyrir samkeppninni Bush in 30 Seconds sem gaf almenningi kost á að senda inn sjónvarpsauglýsingar sem gagnrýna Bush, og besta auglýsingin verður svo sýnd um öll Bandaríkin þegar líður nær kosningunum í haust. Mínar uppáhalds eru: Polygraph, In My Country, Child's Play, og Wake Up America.
The Nation: Comparing Bush and a Certain Dictator:
"What is surprising is that [Republican National Committee Chairman Ed] Gillespie, who is supposedly trying to reelect President Bush, has been working overtime to publicize comparisons of of the Republican chief executive to Nazi leader Adolf Hitler."
Um var að ræða auglýsingu sem barst inn í "Bush in 30 Seconds" samkeppnina en umsjónaraðilar hennar, Moveon.org, hafa svarað með þessum orðum: [the] ads attacked by RNC chairman [Gillespie] are not Moveon.org voter fund ads.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.