Lengi lifi áramótadagskrá RÚV

Skrifað 2. janúar 2004, kl. 16:23

Djöfull var áramótaskaupið heiftarlega slæmt. Ágúst Guðmundsson er fínn kvikmyndagerðarmaður en það liggur greinilega ekki fyrir honum að búa til áramótaskaup. Ég hló nákvæmlega þrisvar en í tvö skiptanna endaði viðkomandi atriði með einhverjum grínfræðilegum ósköpum ...eða hélt of lengi áfram.

Ólíkt Ágústi, þá er Hrafn Gunnlaugsson ekki góður kvikmyndagerðarmaður. Það að þetta heimavídeó hans og Davíðs Oddssonar skuli vera sýnt á besta tíma í RÚV rekur bara síðasta naglann í þá kenningu manna að RÚV sé orðið formlegt málgagn Sjálfsstæðisflokksins og vina hans. Sjaldan hefur verið gerð jafn léleg íslensk kvikmynd og þessi. Handrit, leikur, leikstjórn, myndataka, klipping, lýsing, tónlistarval, hljóðvinnsla - allt var þetta langt undir pari.

Ávarp forsætisráðherra á gamlárskvöld var algjör snilld. Þarna fékk forsætisráðherra vor tækifæri til að spinna öllum hneykslismálum ársins upp í persónulega og pólitíska sigra fyrir sig og ríkisstjórnina - og fá þetta nýjasta skáldverk sitt vistað um aldur og ævi í myndasafni málgagns Sjálfsstæðisflokksins (RÚV) - ásamt heimavídeói Krumma félaga síns.

Ávarp útvarsstjóra er líka alltaf jafn skemmtilegt. Líklega eini liðurinn í dagskrá RÚV sem fær minna áhorf en skjáleikurinn. Aldrei nokkurntíman er jafn mikill fjöldi sjónvarpstækja stillt á "mute" og síðustu 40 mínúturnar fyrir miðnætti á Gamlárskvöld. Fjarstýringin (og þar með "mute" takkinn) er biluð á sjónvarpinu heima, þannig að malandinn í Markúsi heyrðist í nokkrar mínútur áður en við gengum að tækinu og slökktum (hann var að trufla áhugaverðar samræður á heimilinu), en stuttu áður en það gerðist þá heyrði ég ekki betur en hann væri rövla um konuna sína og eitthvað. Mig grunar að í trausti þess að enginn hlusti á ávarpið þá blaðri hann einhverja helvítis steypu - uppnefni óvini sína (t.d. alla kommúnístana sem enn eru á launaskrá ljósvakadeildar Sjálfstæðisflokksins) og reyti af sér brandara og klámvísur sem hann fær ekki að segja heima hjá sér. Getur einhver staðfest þessa kenningu mína, eða hrakið hana?

Hinn árlegi sirkus á gamlárskvöld var í styttra lagi þetta árið, og var bara eitt atriði (einhver grey selur að leika sér með bolta) sem var síðan klippt á í miðjum klíðum til að koma áramótaávarpi Markúsar Arnar að. Guðforðiokkur frá því að það tefjist um nokkrar mínútur.

Sem betur fer voru flugeldarnir flottir, maturinn góður, kakan æði, kampavínið freyðandi og partíið líflegt.


Svör frá lesendum (9)

  1. Einar Örn svarar:

    Alveg 100% sammála. Það eina, sem ég vildi bæta við þetta er að í Mogganum í dag, þá fær "Opinberun Hannesar" ÞRJÁR STJÖRNUR!!!!!!! Á hvaða lyfjum var sá gagnrýnandi þegar hann horfði á myndina? Eina skýringin, sem ég finn er að hún hafi breyst í einhverja stórkostlega snilld eftir að ég hætti að horfa eftir 45 mínútur.

    Áramótaskaupi fær þó útreið í blaðinu, sem eykur aðeins trúverðugleikann. Reyndar bakkar gagnrýnandinn og telur upp einhver 6-7 atriði, sem honum fannst góð, en voru í raun hræðileg.

    Mesta snilldin við þetta allt saman er svo að nú er byrjað að sýna Opinberun Hannesar Í BÍÓ! Hver í ósköpunum fer á þá mynd eftir að það er búið að sýna hana á RÚV? Hausinn á mér hringsnýst þegar ég reyni að spá í hvernig mönnum datt þetta allt saman í hug :-)

    2. janúar 2004 kl. 18:43 GMT | #

  2. anna svarar:

    Jú, Einar Örn, svarið er einfalt. Það er augljóst að markaðsmenn reikna ekki með því að nema 40% þjóðarinnar hafi nennt að eyða kvöldinu með Hannesi á RUV. Myndin er hinsvegar svo hræðilega slæm, að þessi 40% ræddu ekki um annað á kaffistofum landsins í dag. Þar með þurfa þeir sem ekki horfðu á RUV, að kaupa sig inn í samræðurnar. Í bíó!

    Markaðssnilld á heimsmælikvarða. ehm...

    Ég svissaði nú yfir á stöð 2 á meðan þetta arfa slappa skaup var sent út og fannst stöðin númer tvö skárri. Með áherslu á skárri.

    2. janúar 2004 kl. 19:14 GMT | #

  3. Heiða svarar:

    Já mér fannst Opinberun Hannesar var alveg hroðalega vond mynd, en ég hélt það væri bara af því að mér finnst Davíð Oddsson vera aumur rithöfundur. Gaman að vita að ég var ekki eina manneskjan sem velti fyrir sér hvernig í ósköpunum stæði á því að þetta rusl væri sýnt á gamlárskvöld. Annars var þetta sæljón í sirkusnum en ekki selur...hefði frekar viljað meiri sirkus en Markús Örn. Og gleðilegt ár fyrst ég er á annað borð að tjá mig :)

    2. janúar 2004 kl. 19:21 GMT | #

  4. Ingþór svarar:

    Áramótaskaupið var það lélagasta síðan skráningar um gott skaup hófust um 800 árum fyrir Krist. Þetta viðurstyggilega söngva-glingur lét mig strax fá tilfinningu um að slæmt skaup væri framundan og var skaupið álíka spennandi og blaut tuska á gólfinu. Þessi Ágúst Guðmundsson á EKKI að leikstýra skaupinu enda er það jafn misheppnað og að láta Lalla Johns stjórna brúðkaupi í 600 manna sal og róna á Hlemmi sjá um matreiðsluna, Ágúst á frekar að leikstýra þáttaröðum sem eru lausir við allan húmor því að hann þarf að vera mjög mikið undir áhrifum eiturlyfja til að sjá hvað húmor er og hvernig húmor lítur út og hvernig húmor verður til. OPINBERUN HANNESAR var líka hörmung einnig furða ég mig á því eins og Hrafn Gunnlaugsson er ágætur leikstjóri, hvernig þetta gat misheppnast svona því að handritið og sagan var snjöll en hefði virkað betur í Hollywood-mynd með Robert DeNiro í hlutverki Hannesar en ég veit að Hollywood á ekki til eins gribbulegan kvennmann og þessi Björt, þannig að þeir hefðu þurft að nota bara Owen Wilson og breyta honum í kvennmann með aðstoð tæknibrellna.

    4. janúar 2004 kl. 14:25 GMT | #

  5. Jósi svarar:

    Þetta er alrangt hjá þér.

    Þetta var sæljón, ekki selur.

    5. janúar 2004 kl. 23:38 GMT | #

  6. Már Örlygsson svarar:

    Jámm og ojújú, Heiða var búin að benda á þetta. Ég gæti reynt að útskýra að ég þekki alveg í sundur seli og sæljón og vissi alveg að þetta var sæljón en þegar ég skrifaði færsluna þá langaði mig bara að skrifa "selur" og lét það eftir mér, en þó satt sé þá er það svo fáránlegt að enginn mundi trúa mér. ... Ég held ég beri bara fyrir mig "tímabundnum geðrofum" og láti það koma í ljós hvort fólk vorkenni mér ekki bara. :-)

    5. janúar 2004 kl. 23:55 GMT | #

  7. SiggiSveinn svarar:

    Ég vorkenni alltaf fólki sem ber fyrir sig "tímabundnum geðrofum". ;)

    6. janúar 2004 kl. 02:57 GMT | #

  8. Ágúst svarar:

    Talandi um seli. Einu sinni kom hingað lítill gutti í heimsókn, 5-6 ára, og til að hann hefði eitthvað fyrir stafni á meðan mamma hans blaðraði og drakk kaffi var hann settur í gamla leikjatölvu sem til er á heimilinu.

    Nema hvað, ég var eitthvað að útskýra leikreglurnar fyrir honum í einhverjum mörgæsaleik þegar ég sagði "svo verðurðu að passa þig á sprungunum því að það geta komið selir upp úr þeim".

    Vatt sá sá stutti upp á sig og mælti, "seeeelur?? Sérðu það ekki maður að þetta er rostungur! Átt þú ekki að vera í framhaldsskóla?"

    Ég var ekkert að benda honum á að ég væri svo hámenntaður að ég væri í háskóla en virti þess í stað fyrir mér appelsínugula, skögultennta "selina".

    7. janúar 2004 kl. 03:18 GMT | #

  9. Már Örlygsson: Hræðsla við Opinberunina?

    "Er það bara ég, eða virðast fæstir kvikmyndagagnrýnendur þora að tjá sig um Opinberun Hannesar - nema náttla kvikmyndagagnrýnandi Morgunblaðsins, hann gaf víst myndinni glimrandi dóma og þrjár stjörnur! Jón Hákon á Kvikmyndir.com gefur myndinni 1 1/2 s..." Lesa meira

    8. janúar 2004 kl. 21:05 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)