KB lógóið - :| - :)
Meistari Oscar kommentar á nýja KB Banka lógóið. Einn gamall vinnufélagi minn kom með nákvæmlega sama komment þegar hann sá lógóið fyrst, en þessi skemmtilega Flash framsetning Oscars tekur brandarann á enn hærra plan. Bráðfyndið. :)
Sjálfan rámar mig reyndar í eitthvað íslenskt frystihús eða fiskútflutningsfyrirtæki sem hafði alveg ótrúlega líkt lógó ...nema hvít táknmynd á bláum fleti. Man ekki fyrir mit litla líf hvaða fyrirtæki það var. Líklega er það farið á hausinn eða búið að sameinast einhverju öðru og henda gamla merkinu. Man einhver eftir þessu?
Menn eru eitthvað að pirra sig á þessu á INT vefnum. Skil ekki af hverju. Lógó er bara lógó. Ekki eins og himinn og jörð farist með svona löguðu.
Már Örlygsson



Nýleg svör frá lesendum