Afstæðishyggja er sniðug
Matti Á svarar áhugaverðum pælingum Bjarna um trúleysi og trúboð með vangaveltum um afstæðishyggju. Ég veit ekki alveg hver niðurstaðan átti að vera í pistli Matta, en ég veit fyrir víst að mér finnst afstæðishyggja dáldið sniðug. Nokkrar ástæður:
- Í henni felst sú hugmynd að heimurinn sé ávallt flóknari en svo að hann rúmist í einni kenningu eða einu gildismati.
- Hún neyðir mann til að skoða og taka til greina sjónarmið annara í kringum sig.
- Hún gerir mann meðvitaðri um takmarkanir eigin skoðana og gildismats.
- Hún auðveldar manni að sjá hvernig afstaða manns og gildismat er mótað af menningarlegum bakgrunni og aðstæðum manns.
- Hún er andstaðan við "mitt-gildismat-er-réttara-og-betra-en-þitt-og-ég-lem/kúga/dissa-þig-ef-þú -samþykkir-það-ekki attitjúdið" sem hefur tröllriðið vestrænu gildismati undanfarnar aldir
Gæði Afstæðishyggjunnar eru nefnilega ekki algild :-)
Eins og allir góðir hlutir þá er afstæðishyggjunni best beitt í hófi. Þannig stefnir í óefni þegar fólk notar hana sem flóttaleið, og þorir ekki að mynda sér eða standa við eigin skoðanir.
P.S. Mér finnast sögur eins og þessi sem Matti Á segir af Alan Sokal vera sniðug útgáfa af sögunni um nýju fötin keisarans. Hún afsannar hins vegar engan veginn gagnsemi og gildi afstæðishyggjunnar.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.