Áfram Paul
Rétt fyrir jólin kom ég við í 12 tónum og keypti nokkrar plötur. Þar á meðal var nýja platan hans Pauls Lydons, Vitlaust hús. Mæli með henni. Óvenjuleg, tilraunakennd, ljóðræn og mjög low-fi (ég fíla svoleiðis!). Vex með hverri hlustun.
Á heimasíðu Pauls má finna tvö tóndæmi af nýju plötunni og tvö dæmi af eldri plötum hans.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (3)
egill svarar:
Svo má ekki gleyma því að Paul er einn mesti ljúflingur sem fyrirfinnst á þessu landi.
30. desember 2003 kl. 14:49 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Amen, Egill! Við gömlu vinnufélagar hans í Hugsmiðjunni vorum einmitt að tala um það um daginn. :-)
30. desember 2003 kl. 15:02 GMT | #
Bergur svarar:
Mér fannst einmitt gamana ð lesa það í fréttablaðinu rétt fyrir jólin að þá var verið að spyrja tónlistarfólk með hvaða plötu það mælti með. Flest allir mæltu með Maus, Mínus og fleiri böndum í þeim dúr.
Það var síðan gaman að sjá það að Heiða (Unun) mælti einmitt með plötunni hans Pauls.
1. janúar 2004 kl. 18:05 GMT | #