Blóð og drulla

Skrifað 30. desember 2003, kl. 10:00

Eða eins og segir í laginu: "sullum bull og bullum sull og ojbjakk en það svínerí..." ...sem lekur út úr vinstra eyranu á mér.

Eða: "Ég heyri svo vel ég heyri..." ...stanslaust píp.

Eyrnabólga rokkar.

Í bæði gær og fyrradag vaknaði ég nokkuð ágætur en bólgan og sársaukinn ágerðist jafnt og þétt eftir því sem leið á daginn og undir kvöld var sársaukinn orðinn mjög óþægilegur og undir miðnættið var ég að auki kominn með nokkuð háan hita. Dagurinn í dag virðist ætla að verða svipaður. Reynsla mín síðustu daga bendir sterklega til þess að Ibufen sé helvítis lyfleysa.

Uppfært nokkrum mínútum seinna: Vera var rétt í þessu að skamma mig fyrir að hallmæla Ibufen. :-) Að betur íhuguðu máli þá grunar mig að ástæðan fyrir því að það hefur ekkert gagnast mér sé sú að þrýstingurinn í eyranu á mér sé fyrst og fremst gröftur og drasl en ekki vefjabólga - en Ibufen virki fyrst og fremst á bólgna vefi. Getur einhver staðfest eða fellt þessa kenningu mína?


Svör frá lesendum (4)

  1. Hrafnkell svarar:

    ég er nú ekki fróður um lyf en já ég held þetta sé rétt hjá þér. Ibufen er bólgueyðandi og verkjastillandi, ekki graftareyðandi :)

    30. desember 2003 kl. 13:44 GMT | #

  2. Ágúst svarar:

    Á þeim ágæta vef http://www.lyfjastofnun.is segir um Íbúfen (í sérlyfjatextum):

    Lyfhrif: Lyfið minnkar myndun prostaglandína í líkamanum með því að hindra verkun enzýmsins cýkló-oxygenasa, hemur myndun forefna prostaglandína og tromboxans. Það hefur bólgueyðandi, verkjastillandi og hitalækkandi verkun. Bólgueyðandi verkunarháttur lyfsins er ekki að fullu þekktur en talinn vera vegna útlægra áhrifa lækkaðs magns prostaglandína í bólgnum vef. Verkjastillandi verkun er talin vera vegna útlægra áhrifa minnkaðs magns prostaglandína. Hitalækkandi verkun er talin vera vegna áhrifa lyfsins á hitastjórnstöð í undirstúku sem veldur víkkun útlægra æða sem leiðir til aukins blóðflæðis til húðar, svitamyndunar og hitataps. Hin miðlægu áhrif í undirstúku eru talin vera vegna minnkaðs magns prostaglandína.

    Í stuttu máli held ég að þetta þýði að það sé "bólgueyðandi" :) Enda er notkun lyfsins þessi:

    Ábendingar: Bólgueyðandi og verkjastillandi lyf, ætlað til notkunar við liðagigt, slitgigt, tíðaverkjum, tannpínu og höfuðverk. Lyfið má einnig nota sem verkjalyf eftir minni háttar aðgerðir, t.d. tanndrátt.

    Þetta er pretty much lyfið sem er nógu "veikt" til að þú getir keypt það sjálfur (fyrir rúmu ári síðan fékkst leyfi til að selja 400 mg töflur í lausasölu, í stað aðeins 200 mg áður, og var ekki að sökum að spyrja að landinn gleypti "sterkari" töflurnar í sig í tonna tali.

    Þetta er "vöðvabólgu- og beinverkjalyf" almennings og margt kvenfólk notar það við tíðaverkjum, þó gamla góða paracetamólið virki vel fyrir sumar og aðrar segi Treóið best vegna þess að upptaka þess er fljótari þar sem það er í freyðitöfluformi (en er annars acetýlsalicýlsýra, sem flestir þekkja sem asperín).

    Íbúfen er líka "allrahanda" lausn á öllum bólgum meðal lækna hefur manni stundum fundist.

    En Íbúfenið er ágætt svo langt sem það nær. Það aftur á móti virkar ekkert alltaf en sé það tekið við "réttum" verkjum virkar það yfirleitt fínt. Oft er hinsvegar bara best að taka sem minnst, sofa sem mest og láta líkamann vinna á krankheitunum sjálfur. Hita- og verkjastillandi lyf geta þá komið að góðum notum til að maður sofi (meira og) betur.

    Og ég veit ekki til að nein lyf séu "graftareyðandi", nema þá með óbeinum hætti.

    Það skal svo að lokum tekið fram að undirritaður hefur aldrei lært staf í lyfjafræði og skal því taka öllu hér að ofan með þeim fyrirvara :-)

    30. desember 2003 kl. 13:49 GMT | #

  3. Már Örlygsson svarar:

    Málið er að ég veit ekki hvers kyns þessi þrýstingur í eyranu á mér er. Hvort hann er bara gröftur, eða hvort hann sé líka bólgnir vefir.

    Það er spurningin.

    30. desember 2003 kl. 13:53 GMT | #

  4. Gunnar svarar:

    Eyrnabólga er (afaik) fyrst og fremst afleiðing/einkenni einhvers annars og þess vegna eru þessar tilraunir til að drepa hana með sýklalyfjum hálfvonlausar (fyrir nú utan að gera fólk ónæmt fyrir þessum lyfjum). Og mín reynsla (af eyrnabólgu barna) er sú að vestræn læknavísindi hafi einfaldlega ekki hugmynd um hvernig hægt er að stoppa ástæðurnar og ráðist því á afleiðingarnar í staðinn. Og íbúfenið er bara ekki alveg að passa við þína bólgu, hefur alveg hjálpað mínum litla að komast í gegnum næturnar, allavega stundum

    En það sem hefur reynst vel í minni fjölskyldu er að tala við hómópata, smáskammtalækni. Við gáfumst upp þegar sá litli var kominn með í eyrun viku eftir að sýklalyfjaskammti lauk, fengum tíma hjá hómópata, remedíur þar og síðan þá hefur hann haldist heill (7,9,13)

    Vona að þetta hætti að hrjá þig, hefur sýnst á mínum mönnum að þetta sé alger óbjóðsverkur.

    2. janúar 2004 kl. 20:38 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)