Kl. 15:32: Afstæðishyggja er sniðug
Matti Á svarar áhugaverðum pælingum Bjarna um trúleysi og trúboð með vangaveltum um afstæðishyggju. Ég veit ekki alveg hver niðurstaðan átti að vera í pistli Matta, en ég veit fyrir víst að mér finnst afstæðishyggja dáldið sniðug. Nokkrar ástæður:
- Í henni felst sú hugmynd að heimurinn sé ávallt flóknari en svo að hann rúmist í einni kenningu eða einu gildismati.
- Hún neyðir mann til að skoða og taka til greina sjónarmið annara í kringum sig.
- Hún gerir mann meðvitaðri um takmarkanir eigin skoðana og gildismats.
- Hún auðveldar manni að sjá hvernig afstaða manns og gildismat er mótað af menningarlegum bakgrunni og aðstæðum manns.
- Hún er andstaðan við "mitt-gildismat-er-réttara-og-betra-en-þitt-og-ég-lem/kúga/dissa-þig-ef-þú -samþykkir-það-ekki attitjúdið" sem hefur tröllriðið vestrænu gildismati undanfarnar aldir
Gæði Afstæðishyggjunnar eru nefnilega ekki algild :-)
Eins og allir góðir hlutir þá er afstæðishyggjunni best beitt í hófi. Þannig stefnir í óefni þegar fólk notar hana sem flóttaleið, og þorir ekki að mynda sér eða standa við eigin skoðanir.
P.S. Mér finnast sögur eins og þessi sem Matti Á segir af Alan Sokal vera sniðug útgáfa af sögunni um nýju fötin keisarans. Hún afsannar hins vegar engan veginn gagnsemi og gildi afstæðishyggjunnar.
Sendu þitt svar |
Varanleg slóð
Rétt fyrir jólin kom ég við í 12 tónum og keypti nokkrar plötur. Þar á meðal var nýja platan hans Pauls Lydons, Vitlaust hús. Mæli með henni. Óvenjuleg, tilraunakennd, ljóðræn og mjög low-fi (ég fíla svoleiðis!). Vex með hverri hlustun.
Á heimasíðu Pauls má finna tvö tóndæmi af nýju plötunni og tvö dæmi af eldri plötum hans.
Svör frá lesendum (3) |
Varanleg slóð
Kl. 10:44: Djöfull er ég leiðinlegur
Heyrist ekkert frá mér nema eitthvað helvítis krankleikablogg.
Þá vitið þið hvernig ég verð þegar ég fer að blogga frá elliheimilinu.
Svör frá lesendum (1) |
Varanleg slóð
Eða eins og segir í laginu: "sullum bull og bullum sull og ojbjakk en það svínerí..."
...sem lekur út úr vinstra eyranu á mér.
Eða: "Ég heyri svo vel ég heyri..."
...stanslaust píp.
Eyrnabólga rokkar.
Í bæði gær og fyrradag vaknaði ég nokkuð ágætur en bólgan og sársaukinn ágerðist jafnt og þétt eftir því sem leið á daginn og undir kvöld var sársaukinn orðinn mjög óþægilegur og undir miðnættið var ég að auki kominn með nokkuð háan hita. Dagurinn í dag virðist ætla að verða svipaður. Reynsla mín síðustu daga bendir sterklega til þess að Ibufen sé helvítis lyfleysa.
Uppfært nokkrum mínútum seinna: Vera var rétt í þessu að skamma mig fyrir að hallmæla Ibufen. :-) Að betur íhuguðu máli þá grunar mig að ástæðan fyrir því að það hefur ekkert gagnast mér sé sú að þrýstingurinn í eyranu á mér sé fyrst og fremst gröftur og drasl en ekki vefjabólga - en Ibufen virki fyrst og fremst á bólgna vefi. Getur einhver staðfest eða fellt þessa kenningu mína?
Svör frá lesendum (4) |
Varanleg slóð
Nýleg svör frá lesendum