Eyrnabólginn
Er með eyrnabólgu dauðans með hlustarverk og hita og allez. Er búinn að lifa á engiferi, sítrónu og hvítlauk og gleypa öll tiltæk lyf. Vona að ég verði skárri í fyrramálið.
Uppfært 9 tímum síðar: Mesta bólgan er hjöðnuð og sárasti verkurinn horfinn. Kannski er það sýklalyfjunum að þakka - eða íbúfeninu, en í morgun vaknaði ég með eyrað fullt af blóðlitum vökva. Bjakk.
Uppfært eftir hádegi: Læknirinn á heilsugæslunni sagði mér að hafa engar áhyggjur og halda bara áfram að bryðja Doxitab draslið sem e´g var byrjaður að taka. Ef mér finndist ég ennþá heyra illa eða vera með hellu eftir 6-7 vikur(!!) þá ætti ég að koma aftur og fá "þrýsingsmælingu".
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (1)
Hrafnkell svarar:
síðast þegar ég fékk eyrnabólgu, 16 ára, þá endaði það með því að báðar hljóðhimnurnar sprungu (reyndar stakk læknirinn gat á aðra). Mér hefur sjaldan liðið jafn vel og þegar verkurinn hvarf skyndilega og gröfturinn fór að leka út úr eyranu.
29. desember 2003 kl. 18:11 GMT | #