Að stela jólunum?
Alltaf gaman að róta upp smá moldviðri í miðju jólastressinu. ;-)
Samkvæmt Salvöru er Júlli á Dalvík ósáttur yfir noktun aðstandenda Jól.is á efni sem hann á höfundarétt á.
Ég kíkti framhaldi af því á Jólavef Júlla og rambaði þar inn á snjókallasíðuna sem geymir fjöldamargar myndir af sætum snjókörlum í alls kyns stellingum, sem flestar virðast skannaðar af póstkortum eða upp úr bókum.
Þá spyr ég: Fékk Júlli leyfi hjá höfundum/eigendum snjókarlamyndanna? ...og hvar getur hann heimilda og uppruna þessara mynda? Skiptir það máli í í ljósi yfirstandandi umræðu um jólavefi og höfundarétt?
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (5)
Salvör svarar:
Fá okkar þola mjög nákvæma skoðun varðandi höfundarrétt. Ég hef oft brotið íslensk höfundarréttarlög. Ég hef ekki getað annað. Sem tölvukennari í tuttugu ár hef ég líka oft verið nauðbeygð til að afrita efni sem ég veit að var höfundarréttarvarið t.d. forrit sem voru notuð í kennslunni. Það var venjan að kaupa eitt eintak í skólann og það var stundum erfitt að fá peninga bara í þetta eina eintak.
18. desember 2003 kl. 17:17 GMT | #
Gunnar svarar:
Ha? Eru þá höfundarréttarlögin bara til þess að verja þín gögn Salvör? En ekki þeirra sem smíðuðu forritin? Dóh. Ég er ekki alveg að skilja þetta.
Ég meina, þú hefðir bara einfaldlega átt að sleppa því að nota þessi forrit í kennslunni ef ekki var til peningur fyrir þeim. Eða nota 30 daga prufuútgáfur (eins og ég hef stundum gert með Dreamweaver og fleiri forrit). Ef þú á annað borð trúir á höfundarrétt þá hefðirðu átt að sleppa því að kenna það sem var ekki hægt án þess að brjóta hann.
Þetta er ekki beint að vera sjálfum sér samkvæmur að mínu mati.
Tek það fram til að forðast misskilning að ég er ekki hrifinn af höfundarrétti í núverandi mynd og tel hann vera hindrun á framþróun menningarinnar.
Geri mér þó fullkomlega grein fyrir að á einhvern hátt verður að umbuna þeim sem smíða efni en við verðum að finna leið til að gera það sem ekki hindrar aðra í að vinna með það efni og þróa áfram.
Eins gott að það var ekki höfundarréttur á hjólinu...
18. desember 2003 kl. 19:42 GMT | #
Hrafnkell svarar:
Gunnar, þetta er hvorki sanngjart af þér né góð samlíking.
Fólk í skólum er oft NAUÐBEYGT til að brjóta höfundarrétt. Því er GERT að kenna á ákveðin hugbúnað af yfirmönnum.
Jól.is er ásakað um að afrita efni án heimildar í því sem virðist vera í hagnaðarskyni ef rétt reynist.
Og enginn er fullkominn. Ef enginn mætti gagnrýna aðra nema vera fullkominn sjálfur yrði lítil framþróun. Við eigum að þakka fyrir ábendingar um rangfærslur en ekki reyna að beina athyglinni frá okkur með því að reyna að benda á aðra.
18. desember 2003 kl. 21:34 GMT | #
Gunnar svarar:
Samlíking? Var ekki að líkja þessu saman né var ætlunin að draga úr alvarleika brota jol.is. Þykir leitt ef það var hægt að skilja þetta þannig.
Einungis að benda á að mér finnst ósamræmi þarna á milli og stend við það. Þú meinar semsagt að ef þér er gert að brjóta lög af yfirmönnum þá sé það skárra en ef þú tekur það upp hjá þér sjálfur? Að boð yfirmanna séu lögum æðri? Og er það ekki í hagnaðarskyni ef þú ert að vinna við að kenna á illa fenginn hugbúnað? Fær fólk ekki laun fyrir að vinna? Og er það ekki hugsanlega hræðslan við að eigin tekjur minnki sem fær fólk til að samþykkja að gera þetta?
Sanngjarnt? Er það ósanngjarnt að benda á þetta ósamræmi hjá Salvöru? Ég var einmitt að undirstrika það að enginn er fullkominn og því skyldum við fara varlega í að dæma aðra.
En ég er sammála þér um það að á þessu er stigsmunur og brot jol.is er mun alvarlegra. En mér finnst ekki eðlismunur á því að stela hugbúnaði eftir fyrirmælum annara og því að stela texta annara að eigin frumkvæði, finnst þér það? Er það ekki þjófnaður hvort heldur sem er?
Og ef þér fannst ég vera að segja að ég væri fullkominn þá veit ég ekki hvernig þú fékkst það út, sé ekkert í mínu svari sem segir það. Ábendingar um slíkt eru því vel þegnar.
Mér finnst bara að fólk sem fyllist heilagri reiði þegar stolið er frá því sjálfu mætti skoða (viðurkenndan) eigin þjófnað frá öðrum.
Tek samt aftur fram að ég er ósáttur við núverandi höfundarlög og áskil mér fullan rétt til að brjóta þau og verð ekkert voða fúll ef einhver annar "stelur" frá mér (það hefur gerst og mun eflaust gerast oftar).
Og voða finnst mér skrýtið að þú talar um að það megi gagnrýna til að framþróun sé ekki stöðvuð en skammar mig svo fyrir að gagnrýna...
18. desember 2003 kl. 22:10 GMT | #
Salvör svarar:
Gunnar, Þér finnst ósamræmi í því sem ég segi. Mér finnst að sumu leyti þú sért að gera mér upp skoðanir og viðhorf sem ég hef ekki. Ég vil benda þér á að þó að ég bendi fólki á að það sé að brjóta höfundaréttarlög og vísi í því lög þá felst EKKI í því einhver yfirlýsing frá mér um að ég sé alfarið sammála þeim lögum. Ég er bara að benda á að það eru ákveðnar leikreglur í samfélaginu og við sækjum rétt okkar á grundvelli þeirra. Ég tel að höfundarréttarlög séu alls ekki sniðin fyrir nýjan heim þekkingarsamfélagsins.
Þú segir: "...En mér finnst ekki eðlismunur á því að stela hugbúnaði eftir fyrirmælum annara og því að stela texta annara að eigin frumkvæði, finnst þér það". Mér finnst mikill eðlismunur á því að fjölfalda hugbúnað og að afrita texta og breyta og fela uppruna texta og birta hann í nýju samhengi. Þetta er gert á jol.is, það eru þurrkaðar t.d. upplýsingar um höfunda og uppruna. Þetta væri sama og að afrita hugbúnað, þurrka út allar upplýsingar um rétthafa og höfunda, skella eigin lógó á hann og auglýsa hann og selja undir nafni þjófsins. Mér finnst annað ef þú ert með tvær tölvur heima hjá þér og kaupir eitt löglegt eintak af Office frá Microsoft og afritir svo (ólöglega)yfir á hina tölvuna þína eða hvort þú stelur Office pakkanum á Kazaa og krukkar í kóðanum og kallar nýja kerfið Skoffín og opnar svo netsjoppu og ferð svo að selja Skoffín pakkann út um allar trissur sem þína eigin afurð.
19. desember 2003 kl. 18:47 GMT | #