Er ritstuldur í gangi á Jól.is?
Salvör Jólanörd sakar aðstandendur söluvefsvæðisins Jól.is um að hafa afritað fullt af heimildum og efni af jólavefnum hennar og endurbirt án þess að biðja um Salvöru um leyfi og vísa í heimildir.
Ljótt ef satt er, og í fljótu bragði virðist Salvör í fullum rétti að finnast á sér brotið.
Hvað segja aðstandendur vefsvæðisins Jól.is? Ég sendi þeim póst...
Uppfært 18. des.: Ég fékk í nótt nokkuð ítarlegt svar frá Jóni Gunnari Gylfasyni, einum aðstandenda Jól.is. Ég ætla að bíða með að tjá mig þar til ég hef fengið viðbrögð um hvort megi birta bréfið hans hér (eða annarsstaðar). Það má þó nefna sýn Jóns á þetta mál virtist vera aðeins önnur en Salvarar, og hann lýsir m.a. aðdragandanum öðruvísi en hún. Í bréfi Jóns kom ennfremur fram að Jól.is hafa fjarlægt af síðunni hjá sér allt efnið sem Salvör telur upp sem stolið á brotasíðunni.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (10)
Salvör svarar:
Það var ótrúlegt að hlusta á Jón Gunnar á Bylgjunni núna í hádegisfréttum. Ég segi að þessi maður lýgur því að ég hafi einhvern tíma gefið leyfi fyrir þessari birtingu. Hann sagði það í útvarpinu. Ég tel mjög mikilvægt að stemma á einhvern hátt stigu við svona framkomu, svona netrupli eins og stundað er á www.jol.is.
það verður afar erfitt að fá fólk til að setja sitt efni á vefsíður og miðla og deila með fjöldanum ef fólk viðhefur svona vinnubrögð.
Hvernig þætti þér ef einhver Jónatan Jónsson byrjaði að blogga núna og afritaði beint helstu gullkornin sem þú hefur birt á blogginu þínu og léti líta út sem það væri hans pælingar?
18. desember 2003 kl. 12:32 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Svohljóðandi er bréfið sem ég fékk frá Jóni Gunnari birt með hans leyfi en án allrar ábyrgðar:
From: Jón Gunnar Gylfason
Samkvæmt símtali við Salvöru í nóvember í fyrra stóðum við í þeirri meiningu að hún hefði gefið leyfi á að nota hennar efni þar.
Salvör hefur ekki haft samband við okkur, tilvitnun í bréf frá okkur er ekki svarbréf til hennar heldur til Þorvaldar Pálmasonar Verkefnisstjóra í Menntasmiðju KHÍ við spurningu hans um hvort að laufabrauðsuppskriftin væri efnisstuldur. Þarna er greinilega verið að slíta úr samhengi.
Væri ekki snilld hjá henni að hafa samband við okkur og láta okkur vita hvort að hún vill að við tökum út það efni sem við höfðum fengið leyfi símleiðis (okkar mistök að gera það ekki skriflega) eða hvort að hún vill að við setjum inn klausu um það hvaðan efnið er með tengil í hennar síðu. Það er það sem við höfum gert ef eigendur efnis biðja um það.
Við erum hissa á því að Salvör sé að hugsa um að fara í mál við okkur og er greinilega búinn að leggja mikla vinnu í að valda okkur "óþægindum" og sérstaklega þegar kemur í ljós að hún starfar sem sérfræðingur á vegum forsætisráðuneytisins með verkefnastjórn upplýsingasamfélagsins sem vinnur m.a. eftir þessu: "Leggja ber áherslu á að ná víðtækri samstöðu í þjóðfélaginu um þróun upplýsingasamfélagsins og samstarfi milli aðila sem koma að framkvæmd verkefna á því sviði" http://forsaetisraduneyti.is/interpro/for/for.nsf/pages/wpp0128 Hversvegna gat Salvör ekki sent einn póst á okkur, kona sem er ábyrg fyrir því að veita ráðleggingar um framtíð upplýsingasamfélagsins ætti að vera fær um að setja saman eitt bréf eða svo.
Við viljum að lokum biðja Salvöru afsökunar á þeim skaða sem hún hefur orðið fyrir vegna þessa og bjóðumst til að bæta henni hann á sanngjarnan hátt. Við viljum líka þakka þér, Már fyrir að láta okkur vita af þessu því án þín hefðum við sennilega lent í því að vera dregin fyrir dómara á nýju ári alveg grandalaus.
Að lokum læt ég fylgja með það bréf sem er verið að vitna í svar okkar við og finnst okkur frekar skondið að það sé þjóðareignin laufabrauð sem kom þessu öllu af stað. http://www.jol.is/laufabraud.php?id=1
Eftirfarandi hefur verið fjarlægt af jól.is
Þetta efni, hvort sem það er copy/peistað af hennar vef eða ekki er ekki hennar eign en góð tilraun samt og verður þetta efni áfram á www.jol.is.
Með bestu kveðju
Jón Gunnar Gylfason 8961090 (símanúmerið er einnig að finna á www.jol.is) Solveig Edda Vilhjálmsdóttir
18. desember 2003 kl. 12:37 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Mín skoðun:
Þegar ég las bréfaskipti þeirra Jóns Gunnars og Þorvaldar (sem Jón Gunnar vitnar til í lið 2 í svari sínu hér að framan) þá hnaut ég um að á Jóni mátti skilja að hann teldi að hann mætti afrita þessa ákveðnu laufabrauðsuppskrift og leiðbeiningar Salvarar af því fyrirbærið laufabrauð væri hluti af íslenski menningu og undanþegið höfundarrétti. Sér í lagi virtist hann ekki telja þörf á að vísa á Salvöru sem heimildarmann eða höfund þessarar ákveðnu uppskriftar og leiðbeiningatextans sem fylgdi.
Sama virðist uppi á teningnum á öðrum síðum á Jól.is að á fæstum stöðum er þess getið hvaðan textinn er fenginn - óháð því hvort hann var fenginn með réttu eða röngu.
18. desember 2003 kl. 12:46 GMT | #
Salvör Gissurardóttir: Bylgjan fjallar um ásakanir mínar um ritstuld
18. desember 2003 kl. 12:47 GMT | #
egill svarar:
Voðalega leiðist mér þegar fólk getur endalaust farið í hart, í staðinn fyrir að leysa málin á rólegu nótunum.
Það eru að koma jól. Við erum að tala um vef tengdan jólunum. Er þetta allt saman í anda jólanna?
Ég hlýt að vera svona vitlaus, en mér finnst þetta allt saman hið fáránlegasta mál. (P.s. þoli ekki þegar fólk fær efni "lánað", því varla dettur nokkrum manni í hug að það hafi verið takmark í sjálfu sér að setja upp heilan vef og stela sem mestu frá öðrum. Þoli enn síður þegar fólk fer af stað með hörku eins og Salvör gerir, ég verð bara að vera ósammála þessari aðferð.)
18. desember 2003 kl. 13:58 GMT | #
Einar Örn svarar:
Já, vá, ég trúi ekki að þetta hafi komist í hádegisfréttirnar. Þetta er án efa "Ekki frétt" ársins :-)
Salvör hefur eflaust mikið til síns máls og ég hef lent nokkrum sinnum í að verið er að kópera skrif manns, án þess að ég hafi nennt að gera neitt í því.
Ég verð eiginlega að dást pínu að Salvöru fyrir að nenna að standa í þessu. Vá, hvað ég myndi ekki nenna þessu þrasi :-)
18. desember 2003 kl. 14:24 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Egill, við vitum að það er alveg til fólk sem finnst alveg eðlilegt að búa til heilt vefsvæði úr texta og myndir sem það fær "að láni" héðan og þaðan líta síðan með stolti á verkið og kalla það sitt. Auðvitað er niðurstaðan á vissan hátt "þeirra verk" en það er bara hálf sagan.
Einar, ég er innilega sammála því að þetta hafi verið algjör ekkifrétt - sérstaklega í ljósi þess að það er í raun ekkert búið að gerast enn þá. Díalógurinn er rétt að byrja.
Hins vegar finnst mér öll umræða um þessi mál fróðleg og gagnleg - sama þótt sumir fari meira geist en aðrir.
Hins vegar þætti mér fróðlegt að sjá fleiri en Jól.is fara í saumana á höfundarréttarmálum sínum og þeirra sem þeir hafa "fengið lánað" hjá. Þannig hef ég t.d. áður gagnrýnt Deigluna fyrir það hvernig þeir nota myndir annara án þess svo mikið sem tilgreina hvaðan þeir stálu þeim. (Sjá eldri færslu: "Hugverkaþjófnaður Deiglunnar" http://mar.anomy.net/entry/2003/07/26/23.27.56/)
18. desember 2003 kl. 14:55 GMT | #
egill svarar:
Jújú, við vitum það alveg. Ég er bara í jólastuði og finnst að allir eigi að strjúka á sér bumbuna, elska friðinn, kviðinn, og vera vinir.
18. desember 2003 kl. 15:03 GMT | #
Salvör svarar:
Svar við bréfi Jóns Gunnars lið fyrir lið:
1)Ég hef aldrei gefið leyfi fyrir þessari birtingu og myndi aldrei gera það á þessu formi og kannast ekki við neitt símtal.
2)Ég hef aldrei sagt að setningin sem ég birti úr bréfi hafi verið úr bréfi til mín. Ég tók hana með án þess að nafngreina viðtakenda og sendanda vegna þess að í orðalaginu felst alveg gífurlegur hroki og lítilsvirðing á vinnu fólks sem hefur sett efni inn á Netið
3)Mér virðist gæta pirrings yfir að ég hafi ekki sjálf haft samband við jol.is. Ég er í Hagþenki, félagi fræðirita og kennslugagnahöfunda og Myndstefi, félagi myndhöfunda og reyni eins og ég get að beina svona málum til þessara félaga.
4)Ha? ætla ég að fara í mál? Hef ég einhvern tíma sagt það? ... hmmm... kannski Hagþenkir hafi sent bréf og hótað málsókn... til þess eru hagsmunafélög. Fínt ef Hagþenkir er að vinna í málinu, ég skrifaði þeim og bað um það. Vil líka leiðrétta að ég vinn ekki lengur hjá forsætisráðuneyti, hætti fyrir hálfu ári, verkefninu um upplýsingasamfélagið sem ég vann við erlokið. það hlýtur að standa á einhverri vefsíðu sem ég hef gleymt að uppfæra.
5)Fínt að fá afsökunarbeiðni. Enn fínna ef aðstandendur jol.is iðrast gerða sinna og muni í framtíðinni virða hugverk og vinnu annarra og reyna að hafa sem mest af efni sem þeir hafa sjálfir tekið saman.
18. desember 2003 kl. 17:09 GMT | #
Gunnar svarar:
Það er ljótt að stela. Ekki síst jólunum.
En líka soldið sammála Agli að þetta er ekki beint jólastemmingin, hefði mátt leysa þetta án þessara láta, hefði ég haldið. Skil samt vel reiðina.
Merkilegt hvað er erfitt að tala um hluti þegar maður þekkir báða málsaðila...
18. desember 2003 kl. 19:31 GMT | #