Mogginn "skúbbar"
Diskó-Margeir benti mér á glæsilegt skúbb hjá Mbl.is í morgun: Dímon segir upp öllu starfsfólki sínu.
[Kjú: lagið úr tékknesku aulabárðunum]
Minnir óneitanlega á eitthvað sem ég sagði frá 28. nóvember síðast liðinn. Getur verið að Mbl.is og aðrir alvöru fjölmiðlar birti ekki neinar fréttir nema þær sem berast á formi fréttatilkynninga? Það er líka áhugavert að sjá hvernig Mbl.is er skrifuð þannig að hvergi kemur fram hvenær uppsagnirnar áttu sér raunverulega stað.
Það er reyndar almennt viðurkennd staðreynd að ef maður vill fá umfjöllun um eitthvað í íslenskum fjölmiðlum, þá þarf maður að skrifa þá umfjöllun sjálfur frá a til ö, og því þarf þessi "örlitla töf" á "skúbbi" Mbl.is í raun ekki að koma neinum mikið á óvart.
Mig grunar að við bloggarar ættum almennt að fara að taka hlutverk okkar alvarlegar hvað varðar miðlun almennra frétta og frásagna af atburðum, en Fréttir.com (heitinn) gaf ágætt fordæmi í þeim efnum, og þó sá vefur sé horfinn af vettvangi er ekkert sem kemur í veg fyrir að hinn almenni bloggari taki upp þráðinn og reyni (þó ekki væri nema af veikum mætti) að segja fréttir af því sem gerist í kringum hann - sérstaklega ef Mbl.is og aðrir fjölmiðlar hafa ekki sagt frá þeim enn þá.
Mig grunar ennfremur að við eigum eftir að sjá hlutina þróast í þessa átt, að bloggarar muni í auknum mæli verða uppspretta frétta sem hinir stóru og svifaseinu fjölmiðlar éta síðar upp eftir þeim beint eða óbeint og miðla áfram til stærri markhóps - væntanlega eftir að hafa rýnt þær og sannreynt með faglegum hætti.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (6)
svansson svarar:
Það má líka auðveldlega færa rök að því að Fréttir.com hafi sýnt fram á bæði eftirspurn og framboð sem bloggið getur annað. Bæði varð síðan mjög vinsæli, og einnig fékk RF stöðugan straum af ábendingum eða skúbbum sem ekki birtust annars staðar. Besta dæmið um það var til dæmis Baráttan um Norðurljós.
17. desember 2003 kl. 14:54 GMT | #
Ágúst svarar:
Ég stóð í þeirri trú að það væri sérstakur starfsmaður hjá Fréttablaðinu í því að kópíra fréttir af bloggsíðum :-þ
17. desember 2003 kl. 17:12 GMT | #
Gunnar svarar:
Er þetta ekki almennt einkenni á íslenskum fjölmiðlum í dag, eins og frettir.com sýndu okkur fram á? Og maður fattaði ekki einu sinni að það væri ekki verið að segja frá því sem væri að gerast, jafnvel þó maður vissi af því að eitthvað væri að gerast!
En ég er alveg sammála því að bloggarar ættu að taka "hlutverk" sitt alvarlega eða ætti maður að segja mögulegt hlutverk? Og það er greinilega tómarúm í fréttamiðlun á Íslandi í dag. En vandamálið er samt að fæst okkar hafa samböndin til að halda úti fréttavef, sjá http://truth.is/archives/000001.html
Þessi grein er að vísu ekki mjög hnitmiðuð, enda skrifuð í sorg ;) svo frekar en fylla kommenta kerfið hans Mása af mínu blaðri (sorry, á erfitt með að takmarka mig, of blautur á bak við eyrun) þá skrifaði ég aðra, more to the point (vonandi) og setti á http://truth.is/archives/000004.html
Er ég kannski enn meira gerpi að nota kommentakerfið hans Más til að koma þessum pælingum á framfæri? Úff, erfitt að lifa í nýjum heimi, plís látið mig vita ef ég er að brjóta einhverjar óskrifaðar reglur
17. desember 2003 kl. 21:31 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Mér finnst gott að láta nota mig ;-)
17. desember 2003 kl. 22:41 GMT | #
Þórarinn Leifsson svarar:
Maður hlýtur að gera þá kröfu til alvöru fjölmiðla að þeir gulltryggi heimildir fyrir sínum fréttum. Var þessi þarna fréttir.com ekki einmitt að lenda í að vera of fljótur með eitthvað sem reyndist síðan ekki vera rétt? Kanski man ég þetta ekki alveg.
Ég sé ekki neinn akkur í því að einhverjir bloggfúskarar úti í bæ séu hafnir upp og taldir til fjölmiðla. Ekki er ég að reka fjölmiðil. Fjölmiðill á að vera eitthvað stórt og vandað.
Mín skoðun er að blogg séu ágætt fordyri fjölmiðla. Vandamálið á íslandi er frekar að opinberir fjölmiðlar eru ekki nógu flottir og vel frá gengnir tildæmis miðað við Evrópu. Þeir mega ekkert við því að skúbba of mikið. Þeir eiga að vanda sig og brjóta blöðin betur um. Í því sambandi er það ánægjulegt að sjá að þeir hafa tekið sér mánuð til að velta Dímon fréttinni fyrir sér áður en þeir byrtu hana.
Takk fyrir skemmtilegt og vandað fordyri fjölmiðla Már!
21. desember 2003 kl. 15:39 GMT | #
Óli Kristján svarar:
Það ætti nú að fara varlega í að eigna Morgunblaðinu fréttina. Öllu ítarlegri frétt birtist af þessu skömmu áður á fréttavef tímaritsins Tölvuheims. (Sjá http://www.heimur.is/?frettir=single&newsflokkur=T%F6lvur&fid=1650)
29. desember 2003 kl. 13:29 GMT | #