Kl. 22:32: Er ritstuldur í gangi á Jól.is?
Salvör Jólanörd sakar aðstandendur söluvefsvæðisins Jól.is um að hafa afritað fullt af heimildum og efni af jólavefnum hennar og endurbirt án þess að biðja um Salvöru um leyfi og vísa í heimildir.
Ljótt ef satt er, og í fljótu bragði virðist Salvör í fullum rétti að finnast á sér brotið.
Hvað segja aðstandendur vefsvæðisins Jól.is? Ég sendi þeim póst...
Uppfært 18. des.: Ég fékk í nótt nokkuð ítarlegt svar frá Jóni Gunnari Gylfasyni, einum aðstandenda Jól.is. Ég ætla að bíða með að tjá mig þar til ég hef fengið viðbrögð um hvort megi birta bréfið hans hér (eða annarsstaðar). Það má þó nefna sýn Jóns á þetta mál virtist vera aðeins önnur en Salvarar, og hann lýsir m.a. aðdragandanum öðruvísi en hún. Í bréfi Jóns kom ennfremur fram að Jól.is hafa fjarlægt af síðunni hjá sér allt efnið sem Salvör telur upp sem stolið á brotasíðunni.
Svör frá lesendum (10) |
Varanleg slóð
Kl. 10:43: Mogginn "skúbbar"
Diskó-Margeir benti mér á glæsilegt skúbb hjá Mbl.is í morgun: Dímon segir upp öllu starfsfólki sínu.
[Kjú: lagið úr tékknesku aulabárðunum]
Minnir óneitanlega á eitthvað sem ég sagði frá 28. nóvember síðast liðinn. Getur verið að Mbl.is og aðrir alvöru fjölmiðlar birti ekki neinar fréttir nema þær sem berast á formi fréttatilkynninga? Það er líka áhugavert að sjá hvernig Mbl.is er skrifuð þannig að hvergi kemur fram hvenær uppsagnirnar áttu sér raunverulega stað.
Það er reyndar almennt viðurkennd staðreynd að ef maður vill fá umfjöllun um eitthvað í íslenskum fjölmiðlum, þá þarf maður að skrifa þá umfjöllun sjálfur frá a til ö, og því þarf þessi "örlitla töf" á "skúbbi" Mbl.is í raun ekki að koma neinum mikið á óvart.
Mig grunar að við bloggarar ættum almennt að fara að taka hlutverk okkar alvarlegar hvað varðar miðlun almennra frétta og frásagna af atburðum, en Fréttir.com (heitinn) gaf ágætt fordæmi í þeim efnum, og þó sá vefur sé horfinn af vettvangi er ekkert sem kemur í veg fyrir að hinn almenni bloggari taki upp þráðinn og reyni (þó ekki væri nema af veikum mætti) að segja fréttir af því sem gerist í kringum hann - sérstaklega ef Mbl.is og aðrir fjölmiðlar hafa ekki sagt frá þeim enn þá.
Mig grunar ennfremur að við eigum eftir að sjá hlutina þróast í þessa átt, að bloggarar muni í auknum mæli verða uppspretta frétta sem hinir stóru og svifaseinu fjölmiðlar éta síðar upp eftir þeim beint eða óbeint og miðla áfram til stærri markhóps - væntanlega eftir að hafa rýnt þær og sannreynt með faglegum hætti.
Svör frá lesendum (6) |
Varanleg slóð
Nýleg svör frá lesendum