Litið í eigin barm
Í ljósi hugleiðinga minna frá því fyrr í dag (Þegar bloggari "hættir að blogga") þá vil ég vera fyrstur til að benda á þá óþægilegu staðreynd að síðan mín datt út af netinu fyrir tæpum tveimur árum síðan og enn er stór hluti gamla færslusafnsins fyrir þann tíma ekki kominn á vefinn aftur.
Það hefur þó verið alveg frá upphafi yfirlýst stefna mín að mjatla þessu gamla dóti inn á vefinn aftur og sú vinna er enn í gangi - þótt hægt gangi.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (11)
Ritstjórn FRÉTTA svarar:
Loksins þegar umræðan var að verða athyglisverð á næsta innslagi á undan - lokarðu þá á svarhalann? Er verið að takmarka tjáningafrelsið eða einfaldlega verið að tryggja að þú hafir síðasta orðið?
Ritstjórnin öll hjá FRÉTTUM :-)
16. desember 2003 kl. 18:06 GMT | #
Gunnar svarar:
Hmm, ekki að efast um rétt hvers manns til að slökkva á sínu bloggi eða hætta umræðum en...
Komið skýrt svar frá Steingrími um hans blogg en mig langar soldið í svar frá Má við spurningunni hér að ofan, hví stöðva svaraflæðið við síðustu færslu?
Ég veit ekki með ykkur en oft finnast mér svörin vera skemmtilegri en bloggið ;) (Þetta svar er ekki eitt af þeim).
16. desember 2003 kl. 20:33 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Gunnar, æi, ég vildi bara setja tappa í þessa umræðu þarna áður en hún súrnaði meira. Tilfinningin sagði mér að allt það markverðasta væri um garð gengið og eftir væru bara fleiri ad hominen kannónuskot. Steingrímur hafði fengið sanngjarnt færi á að a) koma sínum leiðréttingum á framfæri b) upplýsa almenning um fyrirætlanir sínar og c) skamma mig eins og lítinn krakka. Ég taldi það nóga gestrisni af minni hálfu.
Að sjálfssögðu nýtti ég tækifærið og veitti mér síðasta orðið. Skárri væri það nú. ;-)
16. desember 2003 kl. 22:03 GMT | #
svansson.net svarar:
Ég hefði reyndar vilja ræða meira um það hvort það samrýmdist reglum fjölmiðla að hafa þetta á netinu áfram. Er ekkert viss um það. En það er samt óleyst spurning með varðveislu á netfréttum. Bókasöfnin varðveita allt prentað efni en ekki efnið á netinu og hvernig á að varðveita það.
16. desember 2003 kl. 22:17 GMT | #
Ásdís Huld svarar:
Eitthvað rámar mig nú í að verið sé að skoða það hvernig hægt er að varðveita netið (allt?!?) skv. lögum og öllu sem því fylgir... en það gæti tekið tíma að finna það út. Fyrir þá sem ekki hafa þolinmæðina [a.k.a flestir netverjar :)] þá er tilvalið að skoða "The Wayback Machine" (www.archive.org). Þetta er gloppótt, en samt furðu innihaldsríkt og sögulegt safn af vefsíðum. Margt sem er horfið af upprunalega léninu má finna þarna.
17. desember 2003 kl. 00:20 GMT | #
Tryggvi R. Jónsson svarar:
Síðan er græja sem kemur fram sem Nedlib í UserAgent sem rita.bok.hi.is hefur verið að keyra annað slagið. Það er víst einhver græja í líkingu við Archive.org á vegum evrópskra bókasafna ef ég man rétt. Spurning hversu alvarlega þeir ætla að taka varðveisluhlutverk sitt á rafrænum gögnum. Já og svo er cache-ið hjá Google oft talsvert gott.
17. desember 2003 kl. 11:01 GMT | #
Jósi svarar:
"Lengi lifi svarhalar, því þar eru fréttirnar sagðar."
Það að loka þessum svarhala er þér til minnkunar Már minn. Talsmaður opinnar umræðu verður að vera fyrirmynd annara barna í góðum siðum. Ég held að öllum finnist það vera ansi skrýtnir prímadonnuhættir í þér að loka þessu.
18. desember 2003 kl. 20:40 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Bíddu vinur... nú er ég ekki alveg að skilja rökleiðinguna þína. Á ég að skilja það sem svo að af því ég er almennt hrifinn af opinni, frjálsri og lifandi umræðu á netinu, þá er það allt í einu orðin mórölsk skylda mín að hafa alla svarhala á heimasíðunni minni opna 24 klst. á sólarhring? Getur ekki einhver hluti "opnu umræðunnar" átt sér stað annarsstaðar en á heimasíðutetrinu mínu?
Annað: Nú getur þú lesið ástæðuna fyrir því að ég lokaði þessum ákveðna svarhala í svari #3 hér að framan (n.b. þá ég eyddi ég ekki neinu, ég bara lokaði fyrir ný svör) og þar sem ég tek almennt ekki mark á órökstuddum ásökunum um prímadonnuhátt, þá þætti mér fróðlegt að vita hvað þú telur hafa "tapast" við það að ég lokaði þessum ákveðna svarhala um daginn.
Fyrir mér vakir að reyna að rækta vitsmunalega og siðaða umræðu hérna á síðunni minni, og þegar ég fæ á tilfinninguna að það sé ekki að takast, þá skrúfa ég tappann á, þakka þáttakendum fyrir sín framlög, hugsa minn gang og reyni aftur seinna. Ég leyfi þeim svörum sem komin eru að standa óbreyttum og ósködduðum, þátttakendum er því í sjálfsvald sett að halda umræðunni áfram einhversstaðar annarsstaðar - bara ekki á þessum ákveðna stað í persónulegu dagbókinni minni.
19. desember 2003 kl. 00:31 GMT | #
Jósi svarar:
"Hefðir þú viljað sjá fleiri ad hominen kannónuskot á mig?" Jájá. Þú ert ekkert heilagri en aðrir. "Telur þú að sjónarmið og leiðréttingar Steingríms og fyrirætlanir hans með lokun Fréttir.com hafi ekki verið komin nægilega skýrt á framfæri?" Nei, mér sýndist bæði Steingrímur og fleiri hafa meira að segja. "Telurðu að svarhalinn hafi, þegar þarna var komið sögu, verið á hraðri siglingu í átt til jákvæðrar, málefnalegrar umræðu fullrar af ómetanlegum gullkornum sem heimurinn líður fyrir að ekki litu dagsins ljós?" Nei, en færslan sem hann er við var ekki ekki beinlínis jákvæð og málefnaleg. Hún var nöldur yfir ákvörðun Steingríms. Hann (og aðrir) ættu að fá að nöldra á móti. Þú skrifar: "Iss, hver þarf að stunda "góða blaðamennsku" þegar hann er með svarhala í dagbókinni sinni?". Í því felst að leyfa fólki að skrifa á (í??) svarhalann.
ps. Mér finnst annars Steingrímur vera kjáni að standa svona að þessu. Mér finnst bara að svarhalinn hefði átt að vera opinn svo að hann gæti varið sig -og ég gæti uppnefnt hann að vild :-)
19. desember 2003 kl. 22:06 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Takk fyrir svarið Jósi.
20. desember 2003 kl. 02:52 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
[Þetta svar skrifaði ég á sínum tíma "offline" en gleymdi svo að senda það inn. Betra er seint en aldrei:]
Tveir punktar Jósi:
A) Já, já, ég álít mig alveg svakalega heilagan. Bla, bla, tsk, tsk...
B) Umrædd færsla var skrifuð stríðnislega með það í huga að fá viðbrögð. Það tókst! Hún innihélt hins vegar líka að mínu mati áhugaverðar pælingar um varanleika og heimildagildi vefútgáfu. Útgangspunktur pælinganna var voveiflegt brotthvarf Frettir.com og var byggð á traustum heimildum, þ.e. svörum Steingríms sjálfs við nákvæmlega sömu spurningum og hann skammaði mig fyrir að hafa ekki spurt hann! (ATH: Ég kaus að loka umræðunni í stað þess að espa menn enn meira upp með því að benda á þetta ósamræmi í málflutningi Steingríms.)
Eflaust hefði verið hægt að sleppa stríðnistóninum í færslunni, en innihald hennar stóð engu að síður á þokkalega málefnalegum grunni og mátti gjarnan dæmast sem slíkt.
31. janúar 2004 kl. 20:58 GMT | #