Þegar bloggari "hættir að blogga"
Af virðingu við þá sem vilja falla í gleymsku þá ætla ég ekki að nefna nein nöfn.
Nýverið ákvað vinsæll bloggari að "hætta" blogga. En viðkomandi gerði meira en það, því hann notaði þá aðferð að láta lénið sitt renna út og tryggði þar með að síðan hans og allar beinar heimildir um skrifin hans hurfu á einu bretti. Eftir stendur tímabundin dæld í veraldarvefnum - brotnar vísanir og tapað samhengi.
Í heilt ár hafði þessi einstaklingur lagt mikinn metnað í skemmtileg skrif, upplýsingaöflun, krassandi uppljóstranir, og náð að byggja upp alveg þokkalega stóran hóp áhugasamra lesenda sem studdu hann með ráðum og dáð. En hvað stendur nú eftir þegar horft er til baka? - Ekkert. Ekki svo mikið sem bóksafur. Það er eins og ekkert af þessu hafi gerst, og fyrst ekki er lengur hægt að vísa í þá gullnámu heimilda sem viðkomandi færslusafn var, þá liggur það ljóst fyrir að viðkomandi vefsíða mun á skömmum tíma falla í gleymsku vefsins.
Gott og vel.
Maður hefði samt einhvern veginn ætlað að bloggari sem sýndi af sér mikinn metnað og kenndi sig við fjölmiðlun, blaðamennsku og fagleg vinnubrögð mundi velja aðra leið til að "hætta að blogga" - eða réttara sagt léti sér nægja að hætta að blogga. Það er nefnilega tvennt ólíkt að hætta að blogga og það að eyða út öllum heimildum um skrifin sín og þar með möguleikum annara til að njóta þeirra og rýna þau í framtíðinni.
Ég hélt í einfeldni minni að alvöru blaðamönnum dytti ekki í huga að gera svoleiðis. Í það minnsta grunar mig að einhver mundi gagn-hrína hástöfum ef slík vinnubrögð væru viðhöfð af RÚV, Mbl, eða maður tali ekki um Stöð 2.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (13)
Óli Gneisti svarar:
Ég sé þennan áveðna vef ennþá þó ég hafi heyrt að aðrir geri það ekki. Ef þú spáir annars í samanburðinn við aðra fréttamiðla þá eru það bara dagblöð sem hægt er að komast í eftir að fréttirnar birtast, nema náttúrulega þeir fjölmiðlar sem eru komnir með þetta á netið.
16. desember 2003 kl. 13:42 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Óli, lénið er útrunnið og það sem þú sérð eru bara draugar fortíðar sem hafa líklega eitthvað með úrelt "cache" einhversstaðar að gera.
Í hópi hefðbundinna (old-school) fjölmiðla þá eiga fréttavefir/blogg einmitt mest skylt með dagblöðum. Það er líka í eðli vefsins sem umræðu- og útgáfuvettvangs að nota beinar tilvísanir í stað þess að afrita/ljósrita/taka upp á band og vista í gagnasöfnum óháðra aðila. Þetta leggur óhjákvæmilega ríkari "skyldu" á útgefendur vefmiðla að tryggja varanlegt aðgengi að heimildum, og hlýtur að móta þær kröfur sem gerðar eru til "faglegra vinnubragða" á vefnum. Bloggarar eru í auknum mæli farnir að leiða umræðuna um þessi mál.
Enn fremur er gagnlegt að skoða hvernig hugtök á borð við "frumrit" og "eintök" næstum merkingarlaus á vefnum/netinu - eða a.m.k. er merking þeirra allt önnur en við eigum að venjast í efniskennda útgáfuheiminum.
16. desember 2003 kl. 13:53 GMT | #
Ritstjórn FRÉTTA svarar:
Það er alltaf gaman þegar menn tuða og væla um prótókoll, starfshætti og venjur - en iðka það ekki sjálfir. Elsku Már minn - ef þú hefðir ekki notað nema teskeið af blaðamennskuháttum þeim sem þú kvartar yfir - þá hefðirðu haft samband við bloggara þann sem þú ert að ræða um og leitað skýringa áður en þú vælir yfir alþjóð eins og barn sem búið er að taka sælgætið af :-) Það er góð og gild regla í blaðamennsku að tala fyrst við aðilann og skella síðan fram frétt.
Kannski ertu að ræða um frettir.com...kannski ekki.
En fyrst þú ert einu sinni búinn að klikka á fyrstu reglunni, þá var náttúrulega ekki við öðru að búast en að þú klikkaðir líka á annarri reglunni. Það stendur nefnilega eftir meira en bókstafur af því sem skrifað var á frettir.com - öll skrifin standa eftir þó þú hafir ekki aðgang að þeim einmitt núna.
Auðvitað stóð aldrei til að láta þetta hverfa, það vildi bara þannig til að sá sem seldi lénið fylltist óstjórnlegri græðgi og ákvað skyndilokun rétt eins og fulltrúar Hafrannsóknarstofnunar. Engin viðvörun - bara lok, lok og læs og krafa um 200$ greiðslu fyrir endurnýjun, í stað hefðbundinna 20$.
Ritstjórinn var fyrir löngu búinn að ákveða að hætta með vefinn, hann gerði tilraun fyrir nokkrum vikum en gerði þá þau mistök að tilkynna það. Afleiðingarnar voru slíkur ófriður að fresta var lokuninni. Þá var ákveðið á fjölmennum ritstjórnarfundi að hætta þegar 12 mánuðir væru liðnir, slétt ár, frá upphaf skrifanna, eða í lok annarrar viku desembermánaðar. En tilkynna það ekki, bara hætta að láta hann uppfærast. Mistökin voru hins vegar þau að treysta lénafyrirtækinu erlenda og bíða eftir tilkynningunni um að nú væri komið að endurnýjun. Slík tilkynning barst aldrei - heldur var skellt í lás eins og áður sagði.
Stíf bréfaskrif standa nú yfir við fyrirtækið með alls kyns lagavísunum, í þeirri von að það taki sönsum og hegði sér eins og ábyrgur aðili - einmitt í því skyni að efnið verði áfram til staðar fyrir þá sem vilja rýna í söguna. Hins vegar hefur allt efnið verið tekið saman og komið fyrir á öðrum stað - til vonar og vara ef allt bregst.
Sem sagt, kæri Már, áður en þú geysist fram á ritvöllinn með alhæfingar, stór orð og gífuryrði, slakaðu aðeins á og reyndu að komast til botns í málum fyrst áður en þú birtir niðurstöður sem síðan reynast algjört bull. Slíkt þykir ekki góð blaðamennska - og ekki gott veganesti þeirra sem vilja predika um góða bloggsiði.
f.h. fjölmennrar ritstjórnar FRÉTTA
Steingrímur S. Ólafsson
16. desember 2003 kl. 14:11 GMT | #
Einar Örn svarar:
Gaman að heyra að Fréttir ætla að hafa efnið áfram aðgengilegt.
Það er hins vegar dálítið erfitt að réttlæta einhver fjárútlát í léni þegar menn eru hættir, bara svo að gamlar vísanir virki ennþá.
Það er hins vegar frábært ef menn sjá sér fært um það, því það er gaman að geta skoðað gamlar ritdeilur þar sem allar vísanir virka ennþá.
Það er eiginlega spurning hvernig maður á að vísa í hluti á öðrum vefsíðum, því það er næstum því öruggt að þær vísanir virki ekki eftir nokkra mánuði. Ég reyni því alltaf núna að vitna í það, sem ég vill kommenta á, í stað þess að treysta því að viðkomandi síða verði ennþá lifandi eftir einhvern tíma.
16. desember 2003 kl. 14:17 GMT | #
Ágúst svarar:
"Það er hins vegar dálítið erfitt að réttlæta einhver fjárútlát í léni þegar menn eru hættir"
...þess vegna er einmitt miklu sniðugra að halda bara áfram :)
16. desember 2003 kl. 14:22 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Iss, hver þarf að stunda "góða blaðamennsku" þegar hann er með svarhala í dagbókinni sinni? Á blogginu getur heimildaöflun átt sér stað eftir á. (Ég er svo róttækur að það hálfa væri nóg.) ;o)
Varðandi ásakanir hæstvirts ritstjóra um skort á "heimildaöflun", þá er rétt að það komi fram að ég hafði (og hef enn) undir höndum tölvupóst frá ritstjóranum sjálfum þar sem hann segist hafa látið vera að endurnýja lénið. Þú kannski skilur að ég get ekki gefið upp hver heimildamaður minn er, en hann er traustur. ;-)
Samkvæmt þeim og öðrum beinum heimildum sem ég hef undir höndum þá var ekki annað að sjá en að þú hefðir a) viljandi látið lénið renna út, b) hefðir ekki í hyggju að koma færslusafninu aftur á vefinn - a.m.k. ekki í upprunalegri mynd og/eða á sama stað.
Það er flott að vita að þú sért búinn að skipta um skoðun - eða að þetta hafi allt verið misskilningur af minni hálfu og annara.
16. desember 2003 kl. 14:22 GMT | #
svansson svarar:
Það er samt spurning hvort hægt er að kalla viðkomandi "bloggara" í eiginlegum skilningi. Þetta var líklega meira í ætt við eins manns umfjöllunarvef, og umfjöllunarefnið var fréttir. Sambærilegur vefur hefði getað verið til um pólitík, kvikmyndir, bækur osfrv. Vefurinn þróaðist síðan smám saman í "skúbb"-vef. Þeir sem vildu leka e-u fóru þangað.
Ég held að RF hafi aldrei litið á sig sem þátttakanda í blogginu og er þá hægt að ætlast til þess hann hegði sér sem slíkur?
16. desember 2003 kl. 14:22 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Svansson, enda ganga þessar almennu hugleiðingar mínar einmitt út á það hvort þetta samræmist hugmyndafræði/starfsaðferðum blaðamennskunnar - ekki hins óbreytta random-bloggara.
16. desember 2003 kl. 14:25 GMT | #
Ritstjórn FRÉTTA svarar:
Hvaða vitleysa er þetta? Póst frá mér um að ég hafi ekki í hyggju að koma færslusafninu aftur á vefinn? Ertu genginn af göflunum drengur? Ertu að halda því fram að ég hafi viljað stroka ársvinnu út??
Varðandi að "láta lénið viljandi renna út", nægir að vitna í það sem ég skrifaði áðan:
"Þá var ákveðið á fjölmennum ritstjórnarfundi að hætta þegar 12 mánuðir væru liðnir, slétt ár, frá upphaf skrifanna, eða í lok annarrar viku desembermánaðar. En tilkynna það ekki, bara hætta að láta hann uppfærast."
Hugmyndin var s.s. að halda ekki áfram með vefinn en auðvitað að hafa liðið efni áfram aðgengilegt. Hvað af þessu er erfitt fyrir þig að skilja?
F.h. fjölmennrar og nú bálreiðrar ritstjórnar FRÉTTA sem hefur aldeilis ekki skipt um skoðun
Steingrímur S. Ólafsson
16. desember 2003 kl. 14:35 GMT | #
Hrafnkell svarar:
Í sumum tilfellum gæti bloggari alls ekki viljað að eftir stæðu neinar heimildir. Skrifin gætu hafa átt sér stað á tímabili í lífi manna sem þeir vilja hugsanlega skilja við. Blogg er í mörgum tilfellum líka skemmtiefni og er aðeins skemmtilegt u.þ.b. á þeim tima sem það er skrifað og ekki ætlað að lifa.
16. desember 2003 kl. 15:09 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Og þar höfum við það. :-)
Með alveg sérdeilis "ófaglegum" aðferðum tókst mér (og okkur) að leiða einhvers konar sannleika í ljós, og e.t.v. að vekja einhverja til umhugsunar um þessi mál almennt. Hér er enginn að halda fram einhverjum stóra sannleik.
P.S. Elsku Steingrímur, ekki vera reiður. Svona sætur strákur eins og þú. ;-)
P.P.S. Til að fyrirbyggja allan misskilning þá vil ég benda öllum hlutaðeigandi á að ég hef aldrei kynnt mig sem "faglegan fjölmiðil" eða "blaðamann" og því felst engin mótsögn í því þótt ég fylgi ekki nákvæmlega hefðbundnum starfsaðferðum þeirrar stéttar. :-)
16. desember 2003 kl. 15:14 GMT | #
Ritstjórn FRÉTTA svarar:
Tilgangurinn með bullinu í þér var sem sagt að vekja einhverja til umhugsunar um þessi mál almennt og "leiða sannleika í ljós"? Ehhhh...ok.
E.s. Ég er ekki reiður, en ég hef þurfti að loka ritstjórnina inn á prentlager til að koma í veg fyrir heimsókn til þín. Hún er samt öllu fríðari en ég.
E.e.s. Ritstjórn FRÉTTA gagnrýnir ekki vinnubrögð þín um handvirkar bakvísanir með PingBuddy, eða vangaveltur um CSS-style DHTML selectors. Fyrir því er góð ástæða...líklega sú sama og þú ættir að hugleiða áður en þú gagnrýnir næst starfshætti fjölmiðla.
kv
16. desember 2003 kl. 15:25 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Hehehehehehehe ehhhh... ok. Bara allar stóru kannónurnar dregnar fram.
Af því ég er bara smápeð þá á ég ekki að gagnrýna starfshætti fjölmiðla - væntanlega af því ég gæti ekki með nokkru móti skilið hinar djúpstæðu útpældu ástæður fyrir því að lénið þitt rann út og var ekki endurnýjað. Ég sé það núna að ég ætti að skammast mín og snarhætta því að skipta mér af hlutum (eða tjá mig um þá) sem ég hvorki skil né koma mér við.
Allavega... þetta verður sífellt fróðlegra. Lengi lifi svarhalar, því þar eru fréttirnar sagðar. :-)
16. desember 2003 kl. 15:33 GMT | #