Kl. 15:31: Litið í eigin barm
Í ljósi hugleiðinga minna frá því fyrr í dag (Þegar bloggari "hættir að blogga") þá vil ég vera fyrstur til að benda á þá óþægilegu staðreynd að síðan mín datt út af netinu fyrir tæpum tveimur árum síðan og enn er stór hluti gamla færslusafnsins fyrir þann tíma ekki kominn á vefinn aftur.
Það hefur þó verið alveg frá upphafi yfirlýst stefna mín að mjatla þessu gamla dóti inn á vefinn aftur og sú vinna er enn í gangi - þótt hægt gangi.
Svör frá lesendum (11) |
Varanleg slóð
Kl. 13:21: Þegar bloggari "hættir að blogga"
Af virðingu við þá sem vilja falla í gleymsku þá ætla ég ekki að nefna nein nöfn.
Nýverið ákvað vinsæll bloggari að "hætta" blogga. En viðkomandi gerði meira en það, því hann notaði þá aðferð að láta lénið sitt renna út og tryggði þar með að síðan hans og allar beinar heimildir um skrifin hans hurfu á einu bretti. Eftir stendur tímabundin dæld í veraldarvefnum - brotnar vísanir og tapað samhengi.
Í heilt ár hafði þessi einstaklingur lagt mikinn metnað í skemmtileg skrif, upplýsingaöflun, krassandi uppljóstranir, og náð að byggja upp alveg þokkalega stóran hóp áhugasamra lesenda sem studdu hann með ráðum og dáð. En hvað stendur nú eftir þegar horft er til baka? - Ekkert. Ekki svo mikið sem bóksafur. Það er eins og ekkert af þessu hafi gerst, og fyrst ekki er lengur hægt að vísa í þá gullnámu heimilda sem viðkomandi færslusafn var, þá liggur það ljóst fyrir að viðkomandi vefsíða mun á skömmum tíma falla í gleymsku vefsins.
Gott og vel.
Maður hefði samt einhvern veginn ætlað að bloggari sem sýndi af sér mikinn metnað og kenndi sig við fjölmiðlun, blaðamennsku og fagleg vinnubrögð mundi velja aðra leið til að "hætta að blogga" - eða réttara sagt léti sér nægja að hætta að blogga. Það er nefnilega tvennt ólíkt að hætta að blogga og það að eyða út öllum heimildum um skrifin sín og þar með möguleikum annara til að njóta þeirra og rýna þau í framtíðinni.
Ég hélt í einfeldni minni að alvöru blaðamönnum dytti ekki í huga að gera svoleiðis. Í það minnsta grunar mig að einhver mundi gagn-hrína hástöfum ef slík vinnubrögð væru viðhöfð af RÚV, Mbl, eða maður tali ekki um Stöð 2.
Svör frá lesendum (13) |
Varanleg slóð
Nýleg svör frá lesendum