Takk, takk partípakk
Þakka öllum sem komu í innfluntingspartíið okkar. Kveðjur til þeirra sem forfölluðust, nenntu ekki, eða við gleymdum að bjóða. Þið komið bara næst. ;-)
Mætingin var fín, stemmning létt og kát, og Garpur svaf í gegnum allt saman á efri hæðinni (rumskaði reyndar tvisvar en sofnaði strax aftur í bæði skiptin).
Niðurstaða: nýja íbúðin stóðst partíprófið með sóma.
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.