Innflutningspartí á morgun
Við Stína höfum boðað til lítils innflutningspartís annað kvöld, laugardag, kl. 22:00 í nýju íbúðinni okkar í Stangarholti 6 (ská á móti myndbandaleigunni James Bönd).
Ég er búinn að senda út slatta af boðsskeytum í tölvupósti, en eins og alltaf þá gleymast einhver nöfn í öllum hamagangnum, og einhverjir póstar skila sér ekki. Það þýðir að þó að þú hafir ekki fengið tölvupóst frá okkur, þá er þér engu að síður líklega boðið. :-)
Sér í lagi hefði ég gaman að því að sjá andlitin á sambloggurum, stalkerum og öðrum reglulegum lesendum. Ef þið hafið ekkert sérstakt að gera annað kvöld þá megið þið alveg kíkja í heimssókn. Leyniorð kvöldsins er "smu" :-)
Innflutningsgjafir eru afþakkaðar, en ef fólk má til með að gefa okkur eitthvað, þá þykja okkur s-afrísk og grísk hvítvín mjög góð, sem og flest bragðmeiri rauðvín. Okkur vantar hvorki búsáhöld né skrautmuni.
P.S. Svo vill til að Logi er líka með innflutningspartí annað kvöld, í Stórholti 1 (4.h), kl. 20:00 og þeim sem þekkja hann líka er óhætt að líta við hjá honum. Við Stína verðum þar framan af kvöldi.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (6)
Bergur svarar:
Hehe, það er alveg á hreinu að ef maður vildi komast inn í leyniklúbbin hans Mása, og það yrði spurt (eins og í öllum leyniklúbbum) :
"What's the secret password?"
að þá myndi maður fyrst prófa "Bobs your ankle" og því næst "smu"
;)
12. desember 2003 kl. 15:32 GMT | #
Tóró svarar:
Ég myndi fyrst prófa "smu", og ef það gengi ekki upp myndi ég bara prófa "smu" aftur (og aftur...)
12. desember 2003 kl. 15:47 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Smu off! :-)
12. desember 2003 kl. 17:15 GMT | #
Soffi svarar:
ég mæti esskan
13. desember 2003 kl. 14:53 GMT | #
Vefdagbok Tryggva: Operation Smu
14. desember 2003 kl. 17:26 GMT | #
Erling Ormar Vignisson svarar:
Suss... of seint í rassinn lesið - í dag er mánudagur og innflutningspartíið sannarlega liðið. Ég hefði vel getað látið mér detta í hug að mæta sem einn af stalkerum og reglulegum lesendum. Ojæja... bíð bara þar til þið flytjið næst / bjóðið í annað opið partí ;) Smu að sinni.
15. desember 2003 kl. 12:41 GMT | #