Föstudagsskúbb: Öllu starfsfólki Dímon sagt upp
Í dag var öllu starfsfólki hugbúnaðarfyrirtækisins Dímons sagt upp störfum, "allt frá framkvæmdastjóra og niður úr"
.
Ekki hefur verið skýrt frá ástæðunni opinberlega (væntanlega birtist fréttatilkynning seinna í dag eða eftir helgi) en fregnir herma að ætlunin sé að endurráða einhvern hluta starfsfólksins ef tekst að skapa rekstrargrundvöll að nýju.
Alltaf leiðinlegt þegar svona aðgerða er þörf. Ég óska fyrrverandi starfsfólki og yfirmönnum Dímon velfarnaðar.
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (10)
JBJ svarar:
Vonandi varstu ekki á undan sjálfum starfsmönnunum að láta maka þeirra og fjölskyldu vita...
29. nóvember 2003 kl. 00:28 GMT | #
Bjössi svarar:
... Dímon var allavega með 2 stórar atvinnuauglýsingar í sumar þar sem þeir leituðu að forriturum, það hefur þá væntanlega ekki verið gott að fá þau störf :P
29. nóvember 2003 kl. 16:22 GMT | #
Einar Jón svarar:
Ég fór einmitt í atvinnuviðtal hjá þeim fyrir tæpum 3 mánuðum - þá töluðu þeir eins og það væri rífandi bisness, nýbúnir að ná stórum samningum og allt brjálað að gera langt fram á næsta ár.
Eru þetta öruggar heimildir?
29. nóvember 2003 kl. 19:30 GMT | #
Gunnar svarar:
vá þetta eru rosalegar fréttir. Þeir voru víst með einhvern samning við [stórt erlent fyrirtæki] í vasanum fyrir fáum mánuðum síðan.
Már veistu af hverju þeir þurfa að grípa til þessara ráða?
30. nóvember 2003 kl. 10:59 GMT | #
Kiddi svarar:
Hefurðu heyrt eitthvað meira? Ég er alltaf að bíða eftir fréttatilkynningunni sko.
3. desember 2003 kl. 22:41 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Nei ekkert heyrt meira. Menn hafa greinilega ákveðið að gera þetta bara í kyrrþey.
Sjiii.. ekki nóg með að ég hafi skúbbað alla aðra fjölmiðla landsins, heldur er ég einn með fréttina. :-|
4. desember 2003 kl. 09:05 GMT | #
Freyr svarar:
Án þess að hafa first-hand upplýsingar um málið, þá get ég sagt að Dímon var með rosa samning við [stórt erlent fyrirtæki]. [Viðkomandi fyrirtæki] sá fyrir 90% af tekjum Dímons á tímabili. Skyndilega kom annar aðili sem var/er að gera sömu hluti og Dímon og náði að sannfæra [Fyrirtækið] um að fjármagna þeirra vinnu frekar. Og það var það sem gerðist. [Fyrirtækið] pulled the plug.
4. desember 2003 kl. 10:44 GMT | #
Logi svarar:
Ég vann hjá dímon þangað til fyrir helgi og ég get staðfest að hlutirnir gerðust í stórum dráttum eins og Freyr lýsir.
Hinsvegar vil ég benda fólki á að það er trúnaðarmál að Dímon hafi verið í samstarfi við [Stórt erlent fyrirtæki] og að þó menn viti margir af því er óráðlegt að að skrifa það neitt opinberlega.
Þetta gerðist allt mjög snögglega hjá Dímon og þeir voru búnir að ráða 2 nýja menn þegar var kippt undan þeim en þeir voru beðnir um að mæta ekki til starfa. Það sorglegasta við þessa sögu alla er hvað Dímon gekk vel og hvað það var vel rekið fyrirtæki. Nú hefur maður kanski ekki unnið á gæfulegustu stöðum síðustu árin en það var alveg einstakelga vel að öllu staðið hjá Dímon miðað við það sem ég hafði séð áður.
4. desember 2003 kl. 13:43 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Að vinsamlegri beiðni Loga þá skipti ég raunverulegu nafni viðkomandi fyrirtækis út fyrir orðin "[stórt erlent fyrirtæki]". Ég vil ekki að svarhalinn á síðunni minni verði þess valdandi að einhverjir fái á sig kæru eða vesen.
4. desember 2003 kl. 13:54 GMT | #
steini svarar:
Þakka þér fyrir samstarfið Logi :-)
9. desember 2003 kl. 21:02 GMT | #