Sunnudagsmorguninn

Skrifađ 24. nóvember 2003, kl. 09:44

ţađ var sumariđ 1997. Létt djamm og gott kynlíf laugardagsnóttina. Sólríkur sunnudagsmorgun. Ég vaknađi á loftdýnunni í grćna framherberginu á Lokastígnum - ţessu sem var sneisafullt af dóti. Klukkurnar í Hallgrímskirkju vöktu mig á slaginu 9:00. Dottađi. Rumskađi aftur viđ klukknahljóminn kl. 9:15. Ég gleymi aldrei ţessum klukknahljóm rétt fyrir utan gluggann. Aldrei áđur hafđi ég sofiđ nálćgt svona stórri kirkju.

Klukkan var ekki orđin tíu og foreldrar Stínu voru komin á kreik. Snemma á sunnudegi. Inga ađ stússa í eldhúsinu - líklega ađ taka til morgunmat og vaska upp frá ţví kvöldinu áđur. Í gegnum ţunnan millivegginn milli herbergisins sem viđ Stína sváfum í og stofunnar bárust skrýtnir tónar. Rámur og röff hljómur frá tónlistarmanni sem Stína frćddi mig á ađ héti Tom Waits og sér ţćtti ekki par skemmtilegur. En pabbi hennar fílađi hann á sunnudagsmorgni. Nýbakađur tengdafađir minn hćkkađi meira í tónlistinni handan viđ vegginn. Ég lá á loftdýnunni og starđi á loftiđ og hlustađi á ţessa einföldu, skrýtnu tónlist og ţynnkulegu texta. Eitthvađ stórt gerđist ţennan morgun.

Nokkrum mánuđum seinna, eftir stanslausar ásóknir minningarinnar um ţennan magnađa morgun, ţá keypti ég minn fyrsta Tom Waits geisladisk. Small Change. Líklega sami diskurinn og Róbert spilađi handan viđ spónaplötuvegginn á Lokastígnum ţennan sunnudagsmorgun, sumariđ sem viđ Stína byrjuđum saman.

Ţannig gerđist ţađ.


Svör frá lesendum (1)

  1. Ágúst svarar:

    Ég keypti mér fyrsta diskinn minn međ Tom Waits hjá Valda í dag. Used Songs heitir hann og er safndiskur frá 8. áratugnum ('73-80).

    Ţađ er alfariđ ykkur Ernu (erfđafrćđirokkara) "ađ kenna". Gat ekki lengur ekki átt neitt međ Tom Waits og satt ađ segja ţekkti ég ekki til hans.

    Ég er alveg ađ fíla hann (sem kemur kannski ekkert á óvart) og kannast ágćtlega viđ nokkur laganna.

    Nćst ćtla ég ađ fara ađ ţínum ráđum og kaupa nýrra efni međ honum.

    28. nóvember 2003 kl. 19:55 GMT | #

Ţessum svarhala hefur veriđ lokađ. Kćrar ţakkir til ţeirra sem tóku ţátt í umrćđunni.


 

Flakk um vefsvćđiđ



 

Nýleg svör frá lesendum


 

 

Yfirlit yfir ţetta skjal

(Atriđin í listanum vísa á ákveđna kafla ofar á síđunni.)