Blogggátt Finna.is - leiðir til úrbóta
Í framhaldi af opna bréfinu mínu til Finna.is, þá fékk ég vingjarnlegt símtal frá Katrínu sem vinnur hjá Finna.is og sér um blogggáttina þeirra. Niðurstaðan var eins og mig hafði hálfpartinn grunað: Ákvörðunin að birta bloggfærslur í heild sinni var ekki hugsuð til enda, og eftir mis-harðorðar og mis-alvarlegar ábendingar frá bloggurum þá hafa þau séð villu síns vegar og ætla að endurskoða framsetninguna á blogggáttinni. Jei! :-)
Eins og Katrín segir, þá vilja flestir (en þó ekki alveg allir) bloggarar að skrifin þeirra fái sem víðasta lesningu. Ég sjálfur er engin undantekning á því. Hins vegar er mikill munur á því að birta stuttan útdrátt eða tilvitnun og vísa á varanlega slóð á heimasíðu bloggarans, og því að endurbirta færsluna í heild sinni á heimasíðu Finna.is.
Í því liggja mistök Katrínar og félaga hjá Finna.is og í því liggur jafnframt lykillinn að því hvernig má halda rekstri blogggáttarinnar áfram í sátt og samlyndi við fólkið í blogglandi.
Leiðir til úrbóta
- Finna.is þurfa að hætta að birta færslur í heild sinni, nema fyrir liggi yfirlýst samþykki viðkomandi bloggara.
- Í stað fullra færslna þurfa ritstjórar blogggáttarinnar að takmarka sig við titil og inngangsorð hverrar blogggreinar (eða krassandi tilvitnun) og vísa svo áfram á varanlega vefslóð inn á vefsvæði viðkomandi bloggara.
Ef þessum einföldu vinnureglum er fylgt, og ef ritstjórnin er dugleg að finna og raða saman spennandi efni í blogglandi, þá getur blogggátt á Finna.is auðveldlega orðið mjög spennandi viðkomustaður fyrir stóran hóp fólks sem hefur hvorki þekkingu né nennu til að fylgjast með öllu í blogglandi og eins fyrir þá sem vilja víkka aðeins út blogg-sjóndeildarhringinn sinn með hjálp blogggáttarinnar.
Mér finnst hugmyndin prýðileg hjá þeim Katrínu og Finna.is, enda eru nokkur ár síðan ég byrjaði fyrst að hvetja menn á borð við Björgvin og Geir Hrekkjusvín, og Nagportal Egil til að setja upp svona blogggáttir með ritstjórn. Þær hugmyndir mínar fengu aldrei neinn hljómgrunn og því fór svo að ég gafst upp, en núna get ég glaðst yfir því að einhver annar hefur fengið þessa góðu hugmynd og ætlar þar að auki að framkvæma hana!
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (6)
Friðbjörn Orri svarar:
Eitt er þó sem vekur mér spurn. Er það ekki alveg jafn rangt að taka tilvitnun eða titil færslu af bloggsíðu, fréttavef, eða öðru slíku eins og það er rangt að taka færsluna í heild sinni?
Svipar til þess ímyndaða muns á að stela þúsundkalli eða milljón. Eðli máls er það sama óháð magni.
Nú er ég enginn sérfræðingur í höfundaréttarlögum né öðrum lögum. Hefurðu skoðað þetta eitthvað?
21. nóvember 2003 kl. 18:34 GMT | #
Gneistinn: Viltu láta velja fyrir þig?
21. nóvember 2003 kl. 18:44 GMT | #
Óli Gneisti svarar:
Það er ákaflega mikill munur, það að vitna í síður er bara einsog dagblöðin gera á hverjum degi (vitna í vefmiðla eða greinar í öðrum dagblöðum).
21. nóvember 2003 kl. 18:50 GMT | #
Friðbjörn Orri svarar:
Líklega er það rétt. Tilvitnanir með réttum formerkjum eru auðvitað löglegar.
21. nóvember 2003 kl. 18:57 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Íslensk höfundalög leyfa sérstaklega notkun tilvitnana og stuttra útdrátta úr hugverkum annara til að kynna viðkomandi hugverk og opna fyrir gagnrýna umræðu í samfélaginu.
22. nóvember 2003 kl. 12:19 GMT | #
Agust Flygenring - semsagt.net: Að finna Flyernings
28. nóvember 2003 kl. 19:59 GMT | #