Opið bréf til Finna.is (vegna höfundaréttarbrots)
To: finna
hjá finna.is
Subject: Blogg og höfundaréttur
Til þess er það varðar hjá Finna.is
Ég sé að á blogggáttinni ykkar (http://www.finna.is/finna/blogg/) birtið þið dagbókarfærslu eftir mig óbreytta og í heild sinni. Þetta gerið þið án míns leyfis og án þess vísa beint á upprunalegu greinina, en hvort tveggja er skilyrði sem ég set fyrir slíkri notkun á efni eftir mig.
Ég sé ennfremur að þið birtið í heild sinni færslur eftir fleiri bloggara sem veit fyrir víst að sumir hverjir hafa ekki gefið leyfi sitt fyrir þessari notkun á þeirra efni.
Samkvæmt Íslenskum höfundalögum er réttur minn hvað þetta varðar 100% skýr, og að þeim sökum krefst ég þess að allar færslur eftir mig verði fjarlægðar af síðunni ykkar, a.m.k. þar til okkur hefur samist um sanngjarna greiðslu fyrir birtingarréttinn. Í millitíðinni er ykkur að sjálfssögðu frjálst að vísa á greinar eftir mig og birta fyrirsögn og útdrátt eins og hann birtist í RSS skránni fyrir dagbókina mína.
Ég er fyllilega tilbúinn að ræða sanngjarnt endurgjald fyrir þau afnot sem þið hafið nú þegar haft af skrifum mínum, og möguleg afnot ykkar af efni eftir mig í framtíðinni. Ég á von á að við komumst að sanngjarnri niðurstöðu sem báðir aðilar geta verið sáttir við.
Virðingarfyllst,
Már Örlygsson
Már Örlygsson



Svör frá lesendum (12)
Gneistinn: Þjófnaður á netinu
21. nóvember 2003 kl. 16:31 GMT | #
Katrín Oddsdóttir svarar:
Heill og sæll Már og takk fyrir bréfið opna. Blogfærslan þín, sem var áhugaverð mjög og fjallaði um hvernig mætti forðast spam-póst, hefur verið tekin af Finna og ekki verður vitnað í færslur þínar í framtíðinni án fengis leyfis. Ég er sú sem er árbyrg fyrir því að textinn þinn hafnaði þarna, þar sem ég er ritstjóri Finna.is og hef eins og þú segir sett inn fjölmargar vefleiðarafærslur á þessa síðu okkar að undanförnu. Ég hafði nefnilega vonast til að geta búið til nokkurs konar blog-torg þar sem hinn venjulegi notandi gæti lagt leið sína og lesið skemmtileg skrif fólks sem vill birta pælingar sínar á netinu. Þar sem þinn vefleiðari var skráður á síðuna Blog-listann okkar í gær, gerði ég ráð fyrir að þú vildir kynna þín ágætu skrif sem flestum og þar af leiðandi væri birting á færslu þinni með hlekk yfir á síðuna þína (sem vissulega var til staðar) þér að skapi. En eins og þú segir sjálfur er raunin ekki sú og ég bið þig innilega afsökunar að hafa birt skrif þín án leyfis. Kannski skjátlaðist mér þegar ég gerði ráð fyrir að hinir fjölmörgu skemmtilegu pennar blogheimsins vildu láta vitna í sig á miðlægum grunni, framtíðin mun væntanlega leiða það í ljós.
Lifðu heill, gangi þér vel og eigðu frábæra helgi,
Katrín Oddsdóttir, ritstjóri Finna.is
21. nóvember 2003 kl. 16:37 GMT | #
Sindri svarar:
Katrín, að endurbirta greinar eftir aðra í heild sinni á sinni eigin vefsíðu og að vitna í skrif fólks eru tveir gjörólíkir hlutir.
21. nóvember 2003 kl. 16:53 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Sæl Katrín.
...uh...
...og takk fyrir símatalið sem ég fékk í þessum orðum skrifuðum. :-) Ég ætla að blogga lauslega það sem okkur fór á milli í sér færslu.
21. nóvember 2003 kl. 16:54 GMT | #
Már Örlygsson: Bloggátt Finna.is - leiðir til úrbóta
21. nóvember 2003 kl. 17:25 GMT | #
Steini svarar:
Mér finnst þú merkilega hörundssár yfir höfundarrétti þínum á þessum texta... svona miðað við þær umræður sem við höfum átt um höfundarrétt á öðrum hugverkum.
22. nóvember 2003 kl. 03:24 GMT | #
Ari svarar:
Skelfing er þetta óttalega mikið væl yfir lásí bloggi.. (þú og allir hinir líka)
Þú ert eins leiðinlegur og hugsast getur :)
Annars varðandi þennan umrædda póst, (spamvörn), þá var svarið frá 'addi' mun áhugaverðara en pósturinn sjálfur.
Ætli það sé copyright á því líka? T.d ef svarandi er ekki með veffang. Hver á þá réttinn á svarpóstinum? Þú?
22. nóvember 2003 kl. 14:46 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Sæll Ari og velkominn í hóp okkar leiðinlega fólksins. :-)
Sama hversu lélegt eða "lásí" bloggið mitt (eða annara) kann að vera, þá er það samt bloggið mitt og mér þykir ósköp mikið vænt um það og vil gjarnan fá allan heiðurinn af því hversu lélegt og "lásí" það er. ;-)
Varðandi höfundarétt á svörum, þá á Addi höfundarétt á svarinu sínu, en ég hlýt að eiga vissan afnota/birtingarrétt á svarinu hans þar sem hann valdi að skrifa það á opna vefsíðu í minni eigu. Addi er samt höfundur svarsins með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgja. Hins vegar, ef Addi þessi er nafnlaus og ófinnanlegur þá vandast málið og væntanlega verður viðkomandi svar höfundarréttarlaust ... (eða hvað?) ...a.m.k. verður harla erfitt að framfylgja höfundarétti ef enginn höfundur finnst. ..??
23. nóvember 2003 kl. 16:02 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Steini, eins og kemur fram í næstu færslu eftir þessari, þá er alvöruþunginn í þessu "opna" bréfi hálfgerð uppgerð af minni hálfu - svona tongue-in-cheek, meira til að undirstrika það að þó ég (og aðrir) séum "bara bloggarar" þá er það sem við skrifum alveg jafn mikið "hugverk" og það sem birtist á Mbl.is og annars staðar á vefnum og á prenti.
Mig grunar nefnilega að þeim Katrínu og Finna.is hefði aldrei dottið í hug að gera þetta sama við fréttir eða greinar úr Morgunblaðinu eða Femin.is eða öðrum "alvöru vefsvæðum"...
En já, það má vel vera að ég sé ekki 100% sjálfum mér samkvæmur í þessum efnum. Ég reyni að vera það, og vonandi er mér að takast það smátt og smátt með árunum... ;-)
23. nóvember 2003 kl. 18:18 GMT | #
Ari svarar:
já ég er hundleiðinlegur og gef mig ekki!
á að fara selja auglýsingar á bloggið þitt?
http://mar.anomy.net/entry/2003/11/20/08.40.30/
ætli það sé borgað eftir 'smellum eða heimsóknum'?
hvort semer, kanski ættir þú að hugsa málið áður en þú bannar finna.is að linka á þig :)
allavega fann ég þig af batman.is!
24. nóvember 2003 kl. 15:01 GMT | #
Már Örlygsson svarar:
Ari, ég hef hvorki bannað Finna.is né neinum öðrum að vísa (linka) á greinarnar sem ég skrifa. Þvert á móti þá beinlínis hvet ég Finna.is í bréfinu hér að ofan til þess að vísa á færslurnar mínar í stað þess að afrita þær í heild sinni inn á Finna.is.
Mér sýnist vera einhver misskilningur í gangi hjá þér hvað þetta varðar.
24. nóvember 2003 kl. 15:12 GMT | #
Agust Flygenring - semsagt.net: Að finna Flyernings
28. nóvember 2003 kl. 20:00 GMT | #