Kl. 17:25: Blogggátt Finna.is - leiđir til úrbóta
Í framhaldi af opna bréfinu mínu til Finna.is, ţá fékk ég vingjarnlegt símtal frá Katrínu sem vinnur hjá Finna.is og sér um blogggáttina ţeirra. Niđurstađan var eins og mig hafđi hálfpartinn grunađ: Ákvörđunin ađ birta bloggfćrslur í heild sinni var ekki hugsuđ til enda, og eftir mis-harđorđar og mis-alvarlegar ábendingar frá bloggurum ţá hafa ţau séđ villu síns vegar og ćtla ađ endurskođa framsetninguna á blogggáttinni. Jei! :-)
Eins og Katrín segir, ţá vilja flestir (en ţó ekki alveg allir) bloggarar ađ skrifin ţeirra fái sem víđasta lesningu. Ég sjálfur er engin undantekning á ţví. Hins vegar er mikill munur á ţví ađ birta stuttan útdrátt eđa tilvitnun og vísa á varanlega slóđ á heimasíđu bloggarans, og ţví ađ endurbirta fćrsluna í heild sinni á heimasíđu Finna.is.
Í ţví liggja mistök Katrínar og félaga hjá Finna.is og í ţví liggur jafnframt lykillinn ađ ţví hvernig má halda rekstri blogggáttarinnar áfram í sátt og samlyndi viđ fólkiđ í blogglandi.
Leiđir til úrbóta
- Finna.is ţurfa ađ hćtta ađ birta fćrslur í heild sinni, nema fyrir liggi yfirlýst samţykki viđkomandi bloggara.
- Í stađ fullra fćrslna ţurfa ritstjórar blogggáttarinnar ađ takmarka sig viđ titil og inngangsorđ hverrar blogggreinar (eđa krassandi tilvitnun) og vísa svo áfram á varanlega vefslóđ inn á vefsvćđi viđkomandi bloggara.
Ef ţessum einföldu vinnureglum er fylgt, og ef ritstjórnin er dugleg ađ finna og rađa saman spennandi efni í blogglandi, ţá getur blogggátt á Finna.is auđveldlega orđiđ mjög spennandi viđkomustađur fyrir stóran hóp fólks sem hefur hvorki ţekkingu né nennu til ađ fylgjast međ öllu í blogglandi og eins fyrir ţá sem vilja víkka ađeins út blogg-sjóndeildarhringinn sinn međ hjálp blogggáttarinnar.
Mér finnst hugmyndin prýđileg hjá ţeim Katrínu og Finna.is, enda eru nokkur ár síđan ég byrjađi fyrst ađ hvetja menn á borđ viđ Björgvin og Geir Hrekkjusvín, og Nagportal Egil til ađ setja upp svona blogggáttir međ ritstjórn. Ţćr hugmyndir mínar fengu aldrei neinn hljómgrunn og ţví fór svo ađ ég gafst upp, en núna get ég glađst yfir ţví ađ einhver annar hefur fengiđ ţessa góđu hugmynd og ćtlar ţar ađ auki ađ framkvćma hana!
Svör frá lesendum (6) |
Varanleg slóđ
Kl. 16:32: Höfundaréttur og blogg
Ég stóđst ekki mátiđ ađ senda alvöruţrungiđ bréf til Finna.is eftir ađ ég sá hvernig ţeir eru ađ horfa framhjá höfundarétti bloggara, eins og skrifin okkar séu bara ókeypis auglýsingasölumateríal fyrir ţá. Blah. :-)
Samkvćmt Matta ţá eru fleiri en Finna.is sem gera svona. Ullabjakk.
Mér finnst bara svo móđgandi ađ ţeim skuli ekki hafa dottiđ í huga ađ spurja leyfis - ţó ekki vćri nema. Ţađ hefđi veriđ svo auđvelt ađ nálgast ţessa hluti í miklu meiri sátt viđ bloggsamfélagiđ.
Uppfćrt: Ég fékk símtal frá Katrínu sem sér um blogggáttina á Finna.is. Ţađ fór vel á međ okkur og ég mér heyrđist á henni ađ ţau ćtluđu ađ endurskođa framsetninguna hjá sér ţannig ađ allir yrđu sáttir. Mér finnst ţađ frábćrt ţví ég held ađ ţetta geti orđiđ alveg bráđskemmtileg síđa hjá ţeim.
Sendu ţitt svar |
Varanleg slóđ
Kl. 16:12: Opiđ bréf til Finna.is (vegna höfundaréttarbrots)
To: finna
hjá finna.is
Subject: Blogg og höfundaréttur
Til ţess er ţađ varđar hjá Finna.is
Ég sé ađ á blogggáttinni ykkar (http://www.finna.is/finna/blogg/)
birtiđ ţiđ dagbókarfćrslu eftir mig óbreytta og í heild sinni. Ţetta geriđ ţiđ án míns leyfis og án ţess vísa beint á upprunalegu greinina, en hvort tveggja er skilyrđi sem ég set fyrir slíkri notkun á efni eftir mig.
Ég sé ennfremur ađ ţiđ birtiđ í heild sinni fćrslur eftir fleiri bloggara sem veit fyrir víst ađ sumir hverjir hafa ekki gefiđ leyfi sitt fyrir ţessari notkun á ţeirra efni.
Samkvćmt Íslenskum höfundalögum er réttur minn hvađ ţetta varđar 100% skýr, og ađ ţeim sökum krefst ég ţess ađ allar fćrslur eftir mig verđi fjarlćgđar af síđunni ykkar, a.m.k. ţar til okkur hefur samist um sanngjarna greiđslu fyrir birtingarréttinn. Í millitíđinni er ykkur ađ sjálfssögđu frjálst ađ vísa á greinar eftir mig og birta fyrirsögn og útdrátt eins og hann birtist í RSS skránni fyrir dagbókina mína.
Ég er fyllilega tilbúinn ađ rćđa sanngjarnt endurgjald fyrir ţau afnot sem ţiđ hafiđ nú ţegar haft af skrifum mínum, og möguleg afnot ykkar af efni eftir mig í framtíđinni. Ég á von á ađ viđ komumst ađ sanngjarnri niđurstöđu sem báđir ađilar geta veriđ sáttir viđ.
Virđingarfyllst,
Már Örlygsson
Svör frá lesendum (12) |
Varanleg slóđ
Nýleg svör frá lesendum