Færslur fimmtudaginn 20. nóvember 2003

Kl. 10:33: Séríslensk "spamvörn" fyrir netföng 

Mörgum er umhugað um að fela netfangið sitt eins og hægt er fyrir glæpamönnunum sem safna netföngum sem birtast á vefsíðum og senda ruslpóst ("spam").

Sumir nota Javascript kóða til að fela netfangið í HTML skjalinu. Gallinn við þetta er að notendur frumstæðra vafra og þeir sem hafa af einhverjum ástæðum slökkt á Javascript í vafranum sínum sjá ekki netfangið.

Aðrir birta bara netfangið alls ekki og bjóða fólki einungis upp á að senda sér tölvupóst gegn um innsláttarreiti á vefsíðu. Það virkar ágætlega en er dáldið kauðskt og óþjált.

Enn aðrir birta svo aðeins netfangið sem mynd án alt="" texta, en sú aðferð er einna verst því að blindir, sjóndaprir og notendur texta -vafra hafa enga leið til að skynja netfangið sem sést á myndinni.

Fjórða leiðin er sú að birta netfangið en skeyta inn einhverju bulli sem fólk getur fjarlægt handvirkt úr netfanginu áður en það sendir póst. (dæmi: mar_nospam@amomy.net, mar-remove.this@amomy.net eða mar-at-amomy.net) Ókosturinn við að nota þessi ensku orð er sá að allir glæpamennirnir sem safna netföngum fyrir ruslpóstsendingar eru fyrir löngu búnir að kenna forritunum sínum að fjarlægja bullið þannig að eftir standi löglegt netfang. Trikkið er bara að leita að "nospam" og fjarlægja það og öll bandstrik, punkta eða udirstrik sitt hvoru megin við það. Sama gildir um önnur algeng orð.

Fimmta leiðin virkar eingöngu fyrir þá sem vilja birta netfangið sitt íslendingum en ekki öðrum. Hún byggist einfaldlega á því að skeyta inn íslenskum bullorðum (s.s. eydathessu.mar@amomy.net eða ekkirusl_mar@amomy.net) sem íslendingar skilja og fatta að fjarlægja. Þetta virkar vel vegna þess að allir vondu spam-glæpamennirnir eru útlendingar sem skilja ekki bofs í íslensku og vita ekki betur en að "ekkirusl" sé nafnið mitt. :-)

Svör frá lesendum (6) | Varanleg slóð

Kl. 08:40: Til heiðurs mammoni og anda jólanna... 

...þá ætla ég að segja já við Birta.is um að þau megi borga mér fyrir að setja blikkandi auglýsingaborða dauðans efst á síðurnar mínar.

Fregnir herma...

  • að um sé að ræða staka auglýsingaherferð eins ákveðins fyrirtækis en ekki langtíma viðskiptamódel Birta.is (a.m.k. ekki enn þá).
  • að því sem næst öllum sé boðin sama krónutalan fyrir þessar auglýsingabirtingar.
  • að valið á bloggurunum í þessa herferð hafi verið tiltölulega óvísindalegt. (Stefán Pálssson, "frægasti og besti bloggari landins", og aðrir geta því tekið gleði sína á ný. :-)

Aðal ástæðan fyrir því að ég ætla að segja já, er að mér finnst þetta áhugavert framtak og vil styðja við það. Sér í lagi hlakka ég til að fylgjast með áhrifum þessa frumkvöðlastarfs á umræðuna í blogglandi, og sjá hvort þetta form auglýsinga muni lifa eitthvað áfram. Þó segist mér sá hugur að fyrsta herferðin með þessu formi verði jafnframt sú allra áhrifaríkasta út af nýjabruminu, en það fellur svo ósköp fljótt af svona hlutum. Þannig grunar mig að það muni almennt ekki svara þessum kostnaði að auglýsa á bloggvefjum þegar nýjabrumsins nýtur ekki lengur við.

Sendu þitt svar | Varanleg slóð


 

Flakk um vefsvæðið



 

Færslur í nóvember 2003

nóvember 2003
SunMán ÞriMið FimFös Lau
            1.
2. 3. 4. 5. 6. 7. 8.
9. 10. 11. 12. 13. 14. 15.
16. 17. 18. 19. 20. 21. 22.
23. 24. 25. 26. 27. 28. 29.
30.            

Nýleg svör frá lesendum

  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Stefán (Hugmynd að gjörningi)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • mylotarg drug (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • pamelaanderson (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Production Music (Íslenskt leitarvélaspam?)
  • ma801zda (Vélrænar þýðingar)
  • tapasbocnoa (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)
  • Siggi Palli (Vélrænar þýðingar)
  • Bjarni Rúnar (HOWTO: Fix the hCalendar and hCard accessibility and i18n problems)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)