Birta.is vill auglýsa á bloggsíðum

Skrifað 19. nóvember 2003, kl. 15:15

Velti fyrir mér hvað mér á að finnst um tilboð frá Birta.is um að fá X þúsund krónur á mánuði (eða "fyrir einn mánuð") gegn því að þau megi birta auglýsingar á síðunni minni. Velti fyrir mér hvað verður eftir af þessari tölu þegar skattmann verður búinn að éta sína sneið af henni.

Hverjir aðrir en við Svavar hafa fengið svona tilboð?


Svör frá lesendum (20)

  1. Einar Örn svarar:

    Ég fékk svona tilboð.

    19. nóvember 2003 kl. 15:36 GMT | #

  2. Stefán svarar:

    Hey, ég fékk ekki svona tilboð. Það má túlka á tvenna vegu:

    1. Sem grófa móðgun, þar sem aðstandendur Birtu geri sér ekki grein fyrir stöðu minni sem besta og frægasta bloggarans.
    2. Sem hrós, þar sem aðstandendur Birtu geri sér grein fyrir því að tilgangslaust sé að gera mér slíkt tilboð - þar sem ég myndi augljóslega aldrei bjóða mig til sölu...

    19. nóvember 2003 kl. 15:55 GMT | #

  3. Gummi Jóh svarar:

    Ég fékk svona...

    Finnst þetta þannig lagað vera ókeypis peningur.

    19. nóvember 2003 kl. 16:04 GMT | #

  4. Már Örlygsson svarar:

    Stefán, það færi náttúrulega ekkert kapítalistafyrirtæki með snefil af sjálfvirðingu að auglýsa hjá yfirlýstum kommúnista eins og þér.. ;o)

    19. nóvember 2003 kl. 16:10 GMT | #

  5. Ágúst svarar:

    Eina ástæðan fyrir því að ég er ekki móðgaður yfir að hafa ekki fengið neitt tilboð er sú staðreynd að besti og frægasti bloggarinn skuli ekki heldur hafa fengið neitt.

    19. nóvember 2003 kl. 17:12 GMT | #

  6. anon svarar:

    [- Athugasemd eytt. Hér svörum við með nafni og alvöru netfangi, takk fyrir. - Már harðstjóri -]

    19. nóvember 2003 kl. 18:28 GMT | #

  7. Einar Örn svarar:

    Það er náttúrulega hneyksli að besta og frægasta bloggaranum skuli ekki hafa verið boðið uppá þetta. Eeeen, ég tek því ekki beint sem að menn séu að bjóða sig til sölu einsog Stefán orðar það.

    Ég hef ekki mikinn hug á að reyna að græða mikinn pening með blogginu, en það væri frábært ef góðir bloggarar, sem eru t.d. í skóla, gætu haft einhvern pening útúr þessu og þannig lagt meiri metnað í síðuna sína.

    Hins vegar gildir öðru ef að auglýsingin fer að hafa (beint eða óbeint) áhrif á innihald síðunnar.

    19. nóvember 2003 kl. 18:31 GMT | #

  8. Einar Örn svarar:

    Og kannski að bæta því við að (að minnsta kosti samkvæmt þeim upplýsingum, sem ég hef fengið) þá setja auglýsendurnir engann fyrirvara með innihaldið, hvort sem það tengist þeirra rekstri eða gæti hugsanlega skaðað einhverja ímynd, sem fyrirtækið er að reyna að byggja upp.

    19. nóvember 2003 kl. 18:33 GMT | #

  9. gunnare svarar:

    Þetta hlýtur að vera eitthvað netsvindl í ætt við gull-og-græna-skóga tilboðin sem berast frá Nígeríu. Þeir hafa komist yfir eitthvern netfangalista og dælt þessu út. Heppinn ég að vera ekki á svona lista :)

    19. nóvember 2003 kl. 19:42 GMT | #

  10. Zato svarar:

    Ég fékk ekki svona tilboð ..... djö. !!!

    I want free money !

    19. nóvember 2003 kl. 19:53 GMT | #

  11. Gummi Jóh svarar:

    Væntanlega hafa Birtu menn einhvern vegin fundið út hverjum skal senda þetta mail.

    Aldurshópur þeirra sem les síðuna, heimsóknafjöldi kannski og þar fram eftir götunum.

    Auglýsendur hljóta að gera sér grein fyrir að blogg er ekkert öðruvísi en aðrir miðlar með það að auglýsingin er þarna bara til þess eins að sýna sig en ekki hafa áhrif. Þetta er jú auglýsing en t.d. ekki logo eða gif hreyfimynd styrktaraðila.

    En svo er þetta auðvitað svo nýtt að þetta á allt eftir að koma í ljós.

    19. nóvember 2003 kl. 21:18 GMT | #

  12. Rökkvi svarar:

    Hey, ég sendi Birtu email um hvort þeir vildu ekki gera mér svona tilboð einhverntíman í sumar og þeir svöruðu ekki. Það hlýtur að þýðar að þeir vilji ekki auglýsa á dónalegum politically incorrect heimasíðum því ég er nokkuð handviss um að ég er með mun meiri umferð á lágmenning.is heldur en þið eruð með á ykkar síður (var með 20 þús heims. í síðasta mánuði).

    19. nóvember 2003 kl. 21:38 GMT | #

  13. anon svarar:

    [- Athugasemd eytt. Hér svörum við með nafni og alvöru netfangi, takk fyrir - Már harðstjóri -]

    19. nóvember 2003 kl. 22:07 GMT | #

  14. Sigurjón svarar:

    Birta.is er skandal fyrirtæki....ég myndi ekki taka við peningum frá þeim no matter what!

    20. nóvember 2003 kl. 01:22 GMT | #

  15. Már Örlygsson svarar:

    Sigurjón. Þetta er ómálefnalegt, órökstutt skítkast og ekkert annað. Ég læt það þó standa fyrst þú varst svo góður að kasta skít undir nafni og réttri vefslóð. :-)

    Ef þú hefur hug á að standa við þessi orð þín, þá mættir þú gjarnan skrifa ítarlegri færslu á heimasíðuna þína og vísa á hana héðan.

    Í öðrum fréttum er að ég fann mig knúinn til að eyða tveimur fremur neikvæðum athugasemdum sem féllu hér að ofan (#6 og #13) í skjóli nafnleyndar. Mér finnst leiðinlegt að vera í hlutverki harðstjórans.

    20. nóvember 2003 kl. 08:16 GMT | #

  16. Már Örlygsson: Til heiðurs mammoni og anda jólanna...

    "...þá ætla ég að segja já við Birta.is um að þau megi borga mér fyrir að setja blikkandi auglýsingaborða dauðans efst á síðurnar mínar. Fregnir herma... að um sé að ræða staka auglýsingaherferð eins ákveðins fyrirtækis en ekki langtíma viðskiptamódel..." Lesa meira

    20. nóvember 2003 kl. 08:50 GMT | #

  17. svansson.net svarar:

    Jahérna. Er það sem mér sýnist? Már ekki enn búinn að taka við fyrstu krónunni og strax farinn að passa eins og ég veit ekki hvað upp á mannorð Birtu;)

    20. nóvember 2003 kl. 09:16 GMT | #

  18. Már Örlygsson svarar:

    Svansson,

    1. Þetta er augljóslega risastórt mannónískt samsæri. :-)
    2. Athugasemdirnar sem ég eyddi beindust ekki að Birta.is heldur ákveðnum bloggurum.

    20. nóvember 2003 kl. 09:34 GMT | #

  19. Stefán Halldórsson svarar:

    Birta smirta, vottever segi ég bara....vottever!

    20. nóvember 2003 kl. 14:35 GMT | #

  20. Bjarni Rúnar svarar:

    Iss, ég er svo móðgaður að fá ekki tilboð að ég er að hugsa um að boycotta birta.is og kaupa engar vörur af þeim í heila viku!

    20. nóvember 2003 kl. 15:00 GMT | #

Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.


 

Flakk um vefsvæðið



 

Nýleg svör frá lesendum

  • business loans (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Hannahrl (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Dinesh (Req.js - javascript lazy-loading and dependency managment made easy)
  • Már (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Ada (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • notandi (Taubleyjur í nútímanum - lítill leiðarvísir handa hræddri þjóð)
  • Geir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Jenný (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Óli Jens (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Már (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Kjartan S (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Pjétur G (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • reynir (Lausnin á efnahagsvandanum)
  • Egill (Lausnin á efnahagsvandanum)

 

 

Yfirlit yfir þetta skjal

(Atriðin í listanum vísa á ákveðna kafla ofar á síðunni.)