Mauraþúfan 2003, eða flutningsdagurinn mikli
Í dag flytjum við frá Stórholti 1 (á 4. hæð milli gamla Japis hússins og LHÍ þessa rúmu 120 metra fyrir hornið á Listaháskólanum, yfir götuna og upp Stangarholtið í hús númer 6 og upp á 2. hæð þar.
Þetta er of stutt til að það taki því að leigja flutningabíl, þannig að við ætlum bara að lalla þetta í hægðum okkar með einn og tvo kassa í einu, og eina og eina mublu í einu eftir því sem okkur berst liðsstyrkur og vöðvaafl.
Ég er núna að fara að SMSa alla vini og kunningja til að draga þá á staðinn, en forvitnir lesendur munu geta keyrt framhjá og séð burðardýrin að verki.
Gangi okkur vel. :-)
Már Örlygsson



Þessum svarhala hefur verið lokað. Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í umræðunni.